Fréttamolar úr MS
27.03.2026
Fjörugur mars og páskafrí framundan
Kæru nemendur. Mars hefur verið fjörugur mánuðir með frumsýningu á Fútlús, Morfískeppni, opnu húsi, kosningum SMS og öllu því fjöri sem skólastarfið býður uppá.
Nú er komið að páskafríi til og með 6. apríl. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. apríl. Eftir páskafrí fáið þið miðannarmat sem gefur mikilvægar upplýsingar um stöðuna í áföngum.
Við vonum að þið njótið páskafrísins og við sjáumst hress að því loknu!
Dagsetningar framundan
30. mars-6. apríl: Páskafrí
Miðvikudagur 8. apríl: Kennsla frá 8:30-10:30. Kennsla fellur niður frá 10:45 vegna starfsþróunardags starfsfólks.
Föstudagur 10. apríl: Miðannarmat vorannar birtist í Innu
Skóladagatal 2026-2027
Skóladagatal 2026-2027 hefur verið samþykkt og birt á heimasíðu skólans. Smellið á myndina til að sjá dagatalið í betri upplausn.
Fræðslu- og aðalfundur foreldraráðs 23. mars
Foreldraráð skólans hélt fræðslu- og aðalfund fyrir foreldra mánudaginn 23. mars. Á fundinum kynnti Jórunn skólahjúkrunarfræðingur þá þjónustu sem hún býður upp á í skólanum og sagði foreldrum frá mikilvægum atriðum og áskorunum í forvarnarstarfi um þessar mundir. Til að mynda er aukin ljósabekkjanotkun áhyggjuefni sem og kynheilsa ungmenna. Jórunn verður með fræðslu fyrir nemendur um þessi málefni í vor.
Ragga nagli hélt erindi um skjánotkun ungmenna og tengsl mikillar samfélagsmiðla- og skjánotkunar við aukinn kvíða og þunglyndi. Í kjölfarið skapaðist gott samtal milli foreldra um þessi atriði. Loks voru hefðbundin aðalfundarstörf. Fjármunir foreldraráðs fara fyrst og fremst í það að styrkja edrúpottinn eftir böll með peningagjafabréfum. Einnig styrkir félagið Thalíu og ýmis verkefni að beiðni skólans eða nemendafélagsins og er mikill fengur fyrir skólann að eiga gott bakland í foreldrum.
Niðurstöður kosninga SMS
Niðurstöður kosninga til stjórnar SMS 2026-2027 liggja fyrir og má sjá hér fyrir neðan. Eftir páska verður svo boðað til viðtala þar sem nemendur geta gefið kost á sér í nefndir.
Vel heppnað opið hús
Það var mikið líf og fjör þann 18. mars þegar opið hús fór fram hér í skólanum. Nemendur stóðu sig með sóma við að kynna skólann, baka vöfflur og leiðsegja gestum um gangana. Takk fyrir alla aðstoðina!
Mikil kæti með námsframboðið
Velkomin í MS 🎈
Glaðir nemendur! 🤩
Leikfélagið Thalía kom, sá og sigraði með FÚTLÚS 🎭
Leikfélagið Thalía sýndi á dögunum söngleikinn Fútlús í Hlégarði og fóru nemendur á kostum í sýningunni undir leikstjórn Ásgríms Geirs Logasonar. Sýningin einkenndist af miklum krafti og skein leik-, söng- og dansgleðin í gegn frá upphafi til enda.
Áhorfendur tóku sýningunni gríðarlega vel og uppselt var á allar sýningar, sem er glæsilegur vitnisburður um áhuga og stuðning við leiklistarstarf MS-inga.
Skólinn óskar öllum sem komu að sýningunni innilega til hamingju með frábæran árangur!
Sundvitinn - bjargráð við tölvuvanda!
Sundvitinn er alltaf að verða betri og betri í að leysa tölvu- og tæknivandamál. Ef nemendur eru í tæknivandræðum er þeim bent á að spyrja Sundvitann fyrst, áður en leitað er til skrifstofu eða tölvuumsjónar.