Smore logo
remove_red_eye 427
page background

Fréttamolar úr MS

27.03.2026

Fréttamolar úrMS27.03.2026

Fjörugur mars og páskafrí framundan Fjörugur mars og páskafrí framundan

User uploaded image
zoom_out_map

Kæru nemendur. Mars hefur verið fjörugur mánuðir með frumsýningu á Fútlús, Morfískeppni, opnu húsi, kosningum SMS og öllu því fjöri sem skólastarfið býður uppá.


Nú er komið að páskafríi til og með 6. apríl. Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. apríl. Eftir páskafrí fáið þið miðannarmat sem gefur mikilvægar upplýsingar um stöðuna í áföngum.


Við vonum að þið njótið páskafrísins og við sjáumst hress að því loknu!

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

User uploaded image
zoom_out_map

30. mars-6. apríl: Páskafrí

Miðvikudagur 8. apríl: Kennsla frá 8:30-10:30. Kennsla fellur niður frá 10:45 vegna starfsþróunardags starfsfólks.

Föstudagur 10. apríl: Miðannarmat vorannar birtist í Innu

Skóladagatal 2026-2027 Skóladagatal 2026-2027

Skóladagatal 2026-2027 hefur verið samþykkt og birt á heimasíðu skólans. Smellið á myndina til að sjá dagatalið í betri upplausn.

User uploaded image
open_in_new zoom_out_map Show in original size

Fræðslu- og aðalfundur foreldraráðs 23. mars Fræðslu- og aðalfundur foreldraráðs 23. mars

User uploaded image
zoom_out_map

Foreldraráð skólans hélt fræðslu- og aðalfund fyrir foreldra mánudaginn 23. mars. Á fundinum kynnti Jórunn skólahjúkrunarfræðingur þá þjónustu sem hún býður upp á í skólanum og sagði foreldrum frá mikilvægum atriðum og áskorunum í forvarnarstarfi um þessar mundir. Til að mynda er aukin ljósabekkjanotkun áhyggjuefni sem og kynheilsa ungmenna. Jórunn verður með fræðslu fyrir nemendur um þessi málefni í vor.


Ragga nagli hélt erindi um skjánotkun ungmenna og tengsl mikillar samfélagsmiðla- og skjánotkunar við aukinn kvíða og þunglyndi. Í kjölfarið skapaðist gott samtal milli foreldra um þessi atriði. Loks voru hefðbundin aðalfundarstörf. Fjármunir foreldraráðs fara fyrst og fremst í það að styrkja edrúpottinn eftir böll með peningagjafabréfum. Einnig styrkir félagið Thalíu og ýmis verkefni að beiðni skólans eða nemendafélagsins og er mikill fengur fyrir skólann að eiga gott bakland í foreldrum.

Tímabókanir hjá Jórunni hjúkrunarfræðingi

Niðurstöður kosninga SMS Niðurstöður kosninga SMS

Niðurstöður kosninga til stjórnar SMS 2026-2027 liggja fyrir og má sjá hér fyrir neðan. Eftir páska verður svo boðað til viðtala þar sem nemendur geta gefið kost á sér í nefndir.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
pdf
insert_drive_file
kosningavaka sms 2026.pdf
Download
11.1 MB

Vel heppnað opið hús Vel heppnað opið hús

Það var mikið líf og fjör þann 18. mars þegar opið hús fór fram hér í skólanum. Nemendur stóðu sig með sóma við að kynna skólann, baka vöfflur og leiðsegja gestum um gangana. Takk fyrir alla aðstoðina!

User uploaded image
zoom_out_map

Frábærir 🧇bakarar

User uploaded image
zoom_out_map

Þýskukennarar að störfum

User uploaded image
zoom_out_map

Íslenska 💓 MS

User uploaded image
zoom_out_map

Mikil kæti með námsframboðið

User uploaded image
zoom_out_map

Velkomin í MS 🎈

User uploaded image
zoom_out_map

Glaðir nemendur! 🤩

Leikfélagið Thalía kom, sá og sigraði með FÚTLÚS 🎭 Leikfélagið Thalía kom, sá og sigraði með FÚTLÚS 🎭

User uploaded image
zoom_out_map

Leikfélagið Thalía sýndi á dögunum söngleikinn Fútlús í Hlégarði og fóru nemendur á kostum í sýningunni undir leikstjórn Ásgríms Geirs Logasonar. Sýningin einkenndist af miklum krafti og skein leik-, söng- og dansgleðin í gegn frá upphafi til enda.


Áhorfendur tóku sýningunni gríðarlega vel og uppselt var á allar sýningar, sem er glæsilegur vitnisburður um áhuga og stuðning við leiklistarstarf MS-inga.


Skólinn óskar öllum sem komu að sýningunni innilega til hamingju með frábæran árangur!

Sundvitinn - bjargráð við tölvuvanda! Sundvitinn - bjargráð við tölvuvanda!

User uploaded image
zoom_out_map

Sundvitinn er alltaf að verða betri og betri í að leysa tölvu- og tæknivandamál. Ef nemendur eru í tæknivandræðum er þeim bent á að spyrja Sundvitann fyrst, áður en leitað er til skrifstofu eða tölvuumsjónar.

Sundvitinn
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Gleðilega páska 🥰🐣 Gleðilega páska 🥰🐣

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter