Hvalrekinn
Desember 2025
Jólakveðja frá starfsfólki
Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleði- og hamingjuríkra jóla.
Megi gæfa og góð heilsa umvefja ykkur um hátíðina og á nýju ári.
Með kærleikskveðju,
stjórnendur og starfsfólk Hvaleyrarskóla.
Miðvikudagurinn 17. desember - rauður dagur
- Jólamatur frá Matarstund verður þennan dag.
- Við hvetjum nemendur og starfsfólk til að mæta í jólapeysunum sínum og/eða einhverju rauðu.
Litlu-jólin föstudaginn 19. desember
Nemendur mæta sem hér segir:
- Kl. 8:20 - 10:30, nemendur í 1. og 2. bekk
- Kl. 9:00 - 11:00, nemendur í 3. og 4. bekk
- Kl. 9:50 - 11:50, nemendur í 5., 6. og 7. bekk
- Kl. 9:15 - 11:15, nemendur í 8., 9. og 10. bekk
- Gæsla verður fyrir þá nemendur í 3. og 4. bekk sem þurfa frá kl. 8:20 - 9:00.
- Umsjónarkennarar munu fylgja þeim nemendum sem skráðir eru í Holtasel þangað að litlu jólum loknum.
- Athugið að það er ekki hádegismatur þennan dag og mikilvægt að nemendur sem fara í Holtasel komi með hádegisnesti. Það verður síðan síðdegishressing.
Öðruvísi jóladagatal hjá nemendum í yngstu deild
Nemendur í yngstu deild taka þátt í „Öðruvísi jóladagatali“ sem er á vegum SOS barnaþorpa. Þetta er sjöunda árið í röð sem við tökum þátt í verkefninu. Í fyrra söfnuðust 100 þúsund krónur sem fóru í að styrkja nýtt fjölskyldueflingarverkefni SOS barnaþorpana í Malaví og í ár verður áfram safnað í fjölskylduverkefnið. Tilgangurinn með fjölskyldueflingunni er að hjálpa sárafátækum barnafjölskyldum að standa á eigin fötum.
Jóladagatalið gengur út á það að á hverjum degi sjá nemendur myndbönd frá ólíkum löndum í heiminum.
Hverjum degi fylgja umræðupunktar til að nemendur geti rætt saman um efni dagsins og einnig verður hægt að vinna ýmis verkefni í tengslum við hvern dag.
Holtasel - jólasmiðjur. Smellið á myndirnar.
Fernuflug
Lilja Kolbrún og Jón Gísli nemendur í Hvaleyrarskóla hlutu viðurkenningu í textasamkeppninni Fernuflug sem Mjólkursamsalan stendur fyrir. Valdir voru 48 framúrskarandi textar úr þeim 1200 sem bárust í keppnina. Í upphafi árs 2026 munu þessir textar prýða mjólkurfernur MS. Til hamingju, Lilja og Jón Gísli!
Kennsla hefst að loknu jólafríi samkvæmt stundaskrá mánudaginn 5. janúar 2026
Jólasamvera með leikskólabörnum
Við í Hvaleyrarskóla fengum yndislega heimsókn frá leikskólunum í hverfinu – Vesturkoti, Álfasteini og Smáralundi. Börnin komu á jólasamveru yngstu deildar og fylltu skólann gleði og hátíðlegri stemningu þar sem allir sungu saman jólalög undir stjórn Guðrúnar Árnýjar tónmenntakennara. Allir nutu þess að vera saman í desemberljósunum og það var sérstaklega gaman að sjá hvað börnin voru spennt og áhugasöm og tóku vel undir í jólalögunum. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og hlökkum til að taka á móti þeim aftur síðar.
Á döfinni í janúar 2026
Kennsla hefst mánudaginn 5. janúar
Lesferill – allir nemendur prófaðir í 1. – 10. bekk
Orðarún – nemendur í 3. – 8. bekk prófaðir
Logos skimun, jan – feb. nemendur í 3. bekk
Valgreinar vorannar hefjast 12. janúar
Námsviðtöl miðvikudaginn 4. febrúar
Skáklíf í Hvaleyrarskóla
Eins og undanfarin ár er mikið skáklíf í Hvaleyrarskóla. Skák er í stundatöflu hjá nemendum í 3. - 6. bekk. Við höfum verið með skákmót á öllum stigum skólans í haust og má sjá nokkrar myndir frá mótunum hér fyrir neðan.
Slökkviliðið í heimsókn til 3. bekkjar
Þriðjudaginn 18. nóvember kom slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í heimsókn til okkar í Hvaleyrarskóla. Þetta er árviss heimsókn slökkviliðsins í grunnskóla höfuðborgarsvæðisins í þeirra eldvarnarátaki. Nemendur fengu fræðslu á sal og síðan var haldið út þar sem sjúkrabíll og slökkviliðsbíll voru skoðaðir. Það vildi svo til að þegar út var komið þurfti slökkviliðið að fara í útkall þannig að heimsóknin varð styttri í annan endann. Þannig að það þarf að fylgja með mynd frá síðasta ári.
Lestrarsprettur í október
Við vorum með lestrarsprett í október og tengdum hann við Halloween. Lestrarsprettinum lauk föstudaginn 31. október og klæddu nemendur og kennarar sig upp í tilefni Halloween.
Við þökkum ykkur góðan lestrarsprett og hvetjum ykkur til að halda áfram að lesa með barninu/börnunum ykkar.
Myndir frá Vinaleikunum í byrjun nóvember
Spilatímar í hádegishléi
Eftir að notkun farsíma var bönnuð í skólum Hafnarfjarðar haustið 2024 komu kennarar með þá hugmynd að vera með opið inn í tvær bekkjarstofur fyrir nemendur í hádegishléum. Í annarri stofunni geta nemendur komið inn og lært, undirbúið sig fyrir næstu tíma eða slakað á. Í hinni stofunni eru spilatímar tvisvar í viku, þá er kennari með 2-4 spil uppi við og nemendur geta komið og spilað við samnemendur. Þessu fyrirkomulagi höfum við haldið áfram í vetur og það mælst vel fyrir.
Myndir frá skólastarfinu
Útitími hjá 1. bekk
Kirkju- og bæjarferð hjá 1. bekk
Útitími hjá 1. bekk
Heimsókn frá íþróttafélögum
Heimsókn frá íþróttafélögum
Heimsókn frá íþróttafélögum
Piparkökumálun foreldrafélagsins
Sunnudaginn 30. nóvember hélt foreldrafélagið piparkökudag með piparkökumálun á sal skólans. Málunin stóð frá kl. 11:00 til 13:00. Viðburðurinn var fyrir nemendur úr öllum bekkjum skólans og fjölskyldur þeirra. Einnig komu tveir jólasveinar í heimsókn.
Foreldrafélagið bauð upp á piparkökur og glassúr. Einhverjir mættu líka með sitt eigið kökuskraut.
Þá var 10. bekkur með fjáröflun fyrir vorferð. Þau seldu kaffi, kakó, smákökur og vöfflur.
Mjög góð mæting var á þennan viðburð.
Dagskrá Versins í desember 2025
Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum
Eins og undanfarin ár hefur Foreldrafélag Hvaleyrarskóla ákveðið að styrkja bekkjartengla í 1. - 5. bekk um hámark 10.000 kr. á önn til þess að gera eitthvað skemmtilegt með bekkjunum. Fyrirkomulagið er þannig að kvittanir fyrir útlögðum kostnaði auk samantektar á heildarkostnaði eru sendar á póstfang foreldrafélagsins (foreldrafelag@hvaleyrarskoli.is). Það sem fram þarf að koma er; nafn bekkjar og tilefni (hvað var gert með bekknum) og nafn, kennitala og bankaupplýsingar bekkjartengils. Foreldrafélagið endurgreiðir útlagðan kostnað eftir um viku.
Það er mikilvægt að efla starfið í foreldrafélaginu og í kringum börn okkar.
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:00 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/