Smore logo
remove_red_eye 153
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

9. tbl. 4. árg. - nóvember 2023

Fréttabréf Grenivíkurskóla 9. tbl. 4. árg. - nóvember 2023
zoom_out_map

Kæra skólasamfélag

Skólaárið rúllar áfram og kominn nóvember. Framundan er myrkasti tími ársins og þá er um að er að leita allra leiða til að létta lundina og lýsa upp skammdegið. Við minnum á að gott er að skoða fatnað og töskur barnanna með tilliti til endurskinsmerkja, þau gera gæfumun.


Það var heilmargt um að vera í október. 7. og 8. bekkur fór í frábæra ferð á Reyki, 8.-10. bekkur tók þátt í velheppnuðum Deigludegi í Hrafnagilsskóla og allir nemendur skólans unnu að fjölbreyttum verkefnum í tengslum við þemaviku sem helguð var bókum eftir David Walliams.


Einnig voru haldnir vel heppnaðir tónleikar hjá Tónlistarskóla Eyjafjarðar í mánuðinum og þá stóð félagsmiðstöðin fyrir afar veglegu og metnaðarfullu Halloween-balli þar sem hryllingurinn var allsráðandi.


Framundan í nóvember er svo hitt og þetta. Föstudaginn 3. nóvember eru síðustu danstímarnir, en þann dag verður einnig danssýning kl. 13:00. Starfsdagur er þann 8. nóvember, en þá er frí hjá nemendum, og svo er komið að viðtalsdagi þann 9. nóvember. Frekari upplýsingar og skráning hvað það varðar berst ykkur innan skamms.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

zoom_out_map

Vígsluathöfn nýju skólalóðarinnar

Framkvæmdum við þennan áfanga nýrrar skólalóðar er nú lokið, en svæðið var formlega tekið í notkun við hátíðlega athöfn þann 27. október sl. Gleðin skein úr andlitum gesta og er almenn ánægja með framkvæmdina. Svæðið er hið glæsilegasta með litlum íþróttavelli með körfuboltaspjöldum, fjölbreyttum leiktækjum og opnu svæði þar sem koma má fyrir hjóla/brettarömpum síðar. Hóll til að renna sér niður af var byggður upp efst á lóðinni og mun vonandi nýtast vel þegar snjóa tekur. Þá verður komið fyrir skrautgróðri á lóðinni innan um og á milli leiksvæðanna, ásamt því að klára frekari frágang, vonandi strax á næsta ári.


Skólastjóri flutti stutta tölu og að því loknu komu þrír af nemendum fjórða bekkjar og fluttu þakkir og lýstu ánægju með svæðið. Síðan klipptu börnin á borða og svæðið var formlega opnað og gestir fengu skúffuköku í tilefni dagsins.

zoom_out_map

Deigludagur - skapandi stöðvavinna í Hrafnagilsskóla

Miðvikudaginn 18. október tóku Grenivíkurskóli, Þelamerkurskóli, Valsárskóli og Hrafnagilsskóli sig saman og buðu nemendum á unglingastigi þessara skóla upp á sameiginlega stöðvavinnu þar sem skapandi skólastarf var í hávegum haft. Vinnan fór fram í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit og var hluti af Deigluverkefninu, er skólarnir fengu styrk úr Sprotasjóði fyrir því verkefni, sem unnið hefur verið að í samvinnu skólanna síðastliðið ár.


Dagurinn var vel heppnaður og nemendur ánægðir með þá skapandi og skemmtilegu vinnu sem þar fór fram.


Sjá nánar í frétt á heimasíðu Hrafnagilsskóla.

Nemendaráð 2023-2024

Nemendur á unglingastigi og miðstigi kusu fulltrúa í nemendaráð fyrir skólaárið 2023-2024 um daginn. Á unglingastigi voru kosnir þrír fulltrúar, en tveir á miðstigi. Nemendaráðið er að þessu sinni skipað eftirtöldum nemendum:


  • Móeiður Alma Gísladóttir - 9. bekkur
  • Baldur Þór Henrýsson - 8. bekkur
  • Katla Eyfjörð Þorgeirsdóttir - 8. bekkur
  • Björg Guðrún Sigurbjörnsdóttir - 7. bekkur
  • Jónatan Þór Sigurjónsson - 7. bekkur


Við óskum þeim til hamingju með kjörið og höfum fulla trú á því að þau sinni störfum sínum af krafti í vetur.

zoom_out_map

Heilsueflandi skóli

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "Nýjar leiðir í nóvember". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

zoom_out_map

Grænfáninn

Í næstu fréttabréfum ætlum við að vekja athygli á fræðslupökkum sem Landvernd gefur út og nálgast má á vefsíðunni Menntun til sjálfbærni. Í þessum mánuði er sjónum beint að loftslagskvíða, en það er tilfinning sem felur í sér miklar áhyggjur eða óvissu vegna loftslagsbreytinga og áhrifa þeirra. Til eru ýmsar leiðir til að vinna með slíkar tilfinningar og má sjá dæmi um það í fræðslupakka þessa mánaðar, ásamt verkefnum og frekara efni.


Frekari upplýsingar og hugmyndir að ýmsum verkefnum má finna á hér.


Þá er tilefni til að benda á verkefnið "Nægjusamur nóvember" sem Landvernd stendur einnig fyrir. Nóvember er orðinn einn neysluríkasti mánuður ársins, með fjölmörgum afsláttardögum og upphafi jólaundirbúningsins. Nægjusamur nóvember er hugsað sem mótsvar við þessu, og hvatning til hugarfarsbreytingar þegar kemur að neysluvenjum okkar.

Myndir úr skólastarfinu - október

  • Skólabúðir á Reykjum - 7.-8. bekkur
  • Deiglan - skapandi smiðjur fyrir 8.-10. bekk - 18. október
  • Tónleikar TE - 20. október
  • Vígsla nýju skólalóðarinnar - 27. október 2023

Á döfinni í nóvember

  • 1. nóvember: 9. og 10. bekkur fer í heimsókn í MA og VMA. Foreldrafundir um kvöldið.
  • 3. nóvember: Danssýning kl. 13:00.
  • 8. nóvember: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
  • 9. nóvember: Viðtalsdagur.
  • 16. nóvember: Dagur íslenskrar tungu.
  • 22. nóvember: Skáld í skólum koma í heimsókn.
open_in_new zoom_out_map
zoom_out_map

Grenivíkurskóli

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Email: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Website: http://www.grenivikurskoli.is
Location: Grenivík
Phone: 414-5413
Facebook: https://www.facebook.com/search/top?q=greniv%C3%ADkursk%C3%B3li

Grenivíkurskóli Grenivík
Grenivíkurskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter