Smore logo
remove_red_eye 1.3K
page background
page background

Hvalrekinn

Ágúst 2024

HvalrekinnÁgúst 2024
zoom_out_map

Við upphaf skóla

Ágætu foreldrar,


Þá fer að líða að upphafi skólaárs hjá okkur í Hvaleyrarskóla. Það er von okkar að allir hafi haft það sem allra best í sumarfríinu og séu tilbúnir að takast á við nýjar áskoranir á komandi skólaári.


Skólasetning er föstudaginn 23. ágúst, sjá nánari tímasetningar hér fyrir neðan. Við bjóðum foreldra/forráðamenn hjartanlega velkomna á skólasetninguna og hlökkum til að sjá sem flesta.


Eins og undanfarin ár fá nemendur stærstan hluta af námsgögnum afhendan í skólanum. Þó var sú breyting ákveðin í vor að foreldrar þurfa að kaupa skriffæri fyrir sína nemendur. Um er að ræða blýanta, penna, strokleður og liti. Þetta þarf að hafa í pennaveski og mikilvægt er að merkja það nemendum. Áfram þurfa nemendur svo að eiga skólatösku, sund- og íþróttafatnað.

Mikilvægt er að við brýnum fyrir börnunum mikilvægi þess að ganga vel um námsgögnin.


Góð mæting í skóla er veigamikill þáttur í farsælli skólagöngu og vellíðan barna og unglinga. Að missa ítrekað úr kennslustundum, t.d. í lestri á yngra stigi eða stærðfræði á eldri stigum, getur haft áhrif á námsárangur þegar fram í sækir.


Mikil umræða hefur verið um farsímanotkun ungmenna undanfarið og það truflandi áreiti sem símar geta haft á nám og vinnu nemenda. Skrifstofa mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar hefur verið að vinna tillögur að reglum fyrir símanotkun sem gilda eiga í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar. Þar til þær reglur líta dagsins ljós þá verður þetta einfalt hér í Hvaleyrarskóla, símar eiga ekki að sjást á skólatíma hjá nemendum. Ef nemendur þurfa að mæta með síma í skólann eiga þeir að vera í skólatöskunni frá upphafi skóladags og þar til skóla lýkur. Mikilvægt er að þið foreldrar ræðið ábyrga notkun á símum.

Ef þið foreldrar þurfið að ná í ykkar börn þá er að hringja á skrifstofu skólans.


Við vonum að allir hafi verið duglegir að lesa í sumar. Það er eins með lesturinn og annað sem við tökum okkur fyrir hendur að eftir því sem við æfum okkur meira þá gengur okkur betur.

Eigum ánægulegt skólaár!


Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri

zoom_out_map

Hvaleyrarskóli er hnetulaus skóli

Þar sem nemandi skólans er með bráðaofnæmi fyrir hnetum er Hvaleyrarskóli hnetulaus skóli og biðjum við foreldra jafnt sem starfsfólk að virða það. Nemendur og starfsfólk mega því ekki koma með hnetur í skólann.
zoom_out_map

Skólasetning

Skólasetningin föstudaginn 23. ágúst á sal skólans sem hér segir:


  • Kl. 8:30 - 2., 3. og 4. bekkur
  • Kl. 9:45 - 5., 6. og 7. bekkur
  • Kl. 11:00 - 8., 9. og 10. bekkur


  • Nemendur í 1. bekk verða boðaðir í viðtöl hjá umsjónarkennara þennan dag.


Skólasetningin hefst á sal skólans þar sem skólastjóri og deildarstjórar ræða við nemendur og foreldra. Að því loknu fara nemendur með umsjónarkennara í sína heimastofu þar sem farið er yfir skipulag vetrarins.


Mánudaginn 26. ágúst er skólasetning hjá nemendum í 1. bekk á sal skólans kl. 8:20. Að því loknu er Skólafærninámskeið fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 1. bekk til kl. 9:20. Þar verður farið yfir hagnýtar upplýsingar er varðar skólagöngu barnsins.


Kennsla hefst hjá öllum nemendum skólans mánudaginn 26. ágúst samkvæmt stundaskrá.

zoom_out_map

Mataráskrift skólaárið 2024-2025

Nú í vetur verður sú breyting að skólamáltíðir (hádegismatur) grunnskólanemenda verða gjaldfrjálsar fyrir alla nemendur. Til að framkvæmd þessi verði sem best þurfa foreldrar/forráðafólk nú að skrá hvern nemanda í mataráskrift ef vilji er til að nýta skólamatinn. Skráning nemenda í áskrift er nauðsynleg til að tryggja máltíðir fyrir alla sem þess óska en með því má halda matarsóun í lágmarki. Hér á að skrá nemendur í mataráskrift: https://askrift.skolamatur.is/


Hér má finna nánari upplýsingar frá Skólamat á íslensku, ensku og pólsku


Ávaxta- og grænmetishressing
Í morgunfrímínútum (á bilinu 9:15 -10:10 (um 20 mín. á hóp, hjá sumum afhent í stofur (1.-7. bk.) og öðrum í matsal (8.-10. bk.) er boðið upp á ávaxta- og grænmetishressingu í áskrift.

Síðdegishressing

Áfram verður hægt að kaupa síðdegishressingu af Skólamat en slíkt verður eingöngu í boði í fastri áskrift eftir vikudögum. Áskrift á síðdegishressingu fer fram í gegnum vef Skólamatar, https://askrift.skolamatur.is/.


Morgunverður
Dagleg rútína hefst með morgunmat, hafragraut, sem er í boði fyrir nemendur og starfsfólk skóla áður en kennsla hefst, eða um 10-15 mín. áður en fyrsta kennslustund hefst. Í boði er þorskalýsi. Engar skráningar eru fyrir þátttökunni og mæting frjáls en bærinn kaupir ákveðið magn á hverjum degi fyrir starfsfólk og nemendur eftir þörfum.

zoom_out_map

Holtasel

Nú er nýtt skólaár gengið í garð og stutt í að skólinn byrji á fullu og sama gildir um frístundaheimilið Holtasel. Fyrir ykkur sem ekki þekkið til þá er Holtasel frístundaheimilið í Hvaleyrarskóla og stendur það fyrir fjölbreyttri dagskrá eftir skóla fyrir nemendur í 1. til 4. bekk. Holtasel opnar kl: 13:00 alla skóladaga og er opið til 16:30. Þegar skertir dagar eru í skólanum opnar Holtasel fyrr og þarf að skrá börnin sérstaklega fyrir þá daga, við munum senda póst þegar kemur að þessum dögum.


Föstudaginn 23. ágúst eru starfsdagar í Holtaseli og því verður lokað þann dag. Föstudaginn 23. ágúst að lokinni skólasetningu eru foreldrar velkomnir að líta í heimsókn í Holtasel, kynnast starfsfólki og starfseminni.


Mándaginn 26. ágúst er opnað á venjulegum tíma eftir skóla fyrir þá sem eru skráðir og búnir að fá samþykkta umsókn.


Póstur verður sendur til foreldra með nánari upplýsingum áður en Holtasel hefst.

Síminn í Holtaseli er 534-0200 og hægt er að hringja í hann þegar starfið hefst á daginn, einnig er hægt að hringja í vinnusíma deildarstjóra 664-5778.

zoom_out_map

Skjánotkun

Það er fyrst og fremst á ábyrgð foreldra hversu mikil skjánotkun er á heimilinu.

Foreldrar þurfa því að leitast við að skapa jafnvægi í lífi barna sinna og einnig að skipuleggja skjálausar stundir saman.

Hér má finna skjáviðmið fyrir börn og ungmenni.

  • Skjavidmid-6-12ara
  • Skjavidmid-13-18ara

zoom_out_map

Lestur er lífsins leikur

Lestrarfærni er forsenda virkrar þátttöku í samfélaginu og bág lestrarfærni getur haft neikvæð áhrif á námsframvindu og þar með tækifæri á lífsleiðinni síðar meir. Þær staðreyndir að lestrarfærni íslenskra barna fór halloka voru kveikja þess að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði lögðu áherslu á að móta skýra og skilvirka læsisstefnu í Hafnarfirði sem næði til nemenda, kennara og foreldra. Unnið hefur verið markvisst eftir þeirri stefnu undanfarin ár sem hefur meðal annars skilað sér í aukinni samfellu milli skólastiga og lagt línurnar um mikilvægi læsis sem grunnstoð náms.

Hér má finna endurskoðaða lestrarstefnu Hafnarfjarðar Lestur er lífsins leikur.

zoom_out_map

Mikilvægar upplýsingar frá íþróttakennurum

  • Upplýsingar varðandi skólaíþróttir veturinn 2024-2025
  • Útiíþróttir frá 26. ágúst til 4. september
zoom_out_map

Kynningarglærur fyrir foreldra/ forráðamenn

Við höfum tekið þá ákvörðun að hafa þær upplýsingar sem alla jafna eru á haustfundum með foreldum/forráðamönnum aðgengilegar hér í Hvalrekanum frekar en að boða á fundi í skólanum. Nýta þá tækni sem við höfum yfir að ráða og geta foreldrar/forráðamenn farið yfir þessar upplýsingar þegar þeim hentar best.

Áfram hvetjum við foreldra/forráðamenn til að vera í góðu sambandi við umsjónarkennara barna sinna og ekki síður þá kennara sem kenna skólaíþróttir, list- og verkgreinar.


  • Stjórnendaglærur fyrir foreldra nemenda í 1. bekk.
  • 1. bekkur - glærur kennara
  • Stjórnendaglærur fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 2., 3. og 4. bekk.
  • 2. bekkur - glærur kennara
  • 3. bekkur - glærur kennara
  • 4. bekkur - glærur kennara
  • Stjórnendaglærur fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 5., 6. og 7. bekk.
  • 5. bekkur - glærur kennara
  • 6. bekkur - glærur kennara
  • 7. bekkur - glærur kennara
  • Stjórnendaglærur fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 8., 9. og 10. bekk.
  • 8. bekkur - glærur kennara
  • 9. bekkur - glærur kennara
  • 10. bekkur - glærur kennara
  • English summary
zoom_out_map

Bjarg - deild fyrir nemendur sem sækja um alþóðlega vernd

  • Hér er kynning á Bjargi á íslensku.
  • Hér er kynning á Bjargi á ensku.
zoom_out_map

Lestur er lífsins leikur

Hér er bæklingur frá Bókasafni Hafnarfjarðar um mikilvægi lesturs á:


  • Íslensku
  • Ensku
  • Pólsku
zoom_out_map

Aðalfundur foreldrafélagsins og fundur bekkjartengla

Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn í byrjun september, nánar auglýst þegar nær dregur. Hvetjum við foreldra til að mæta. Fræðsluerindi verður haldið í tengslum við fundinn.

Við hvetjum ykkur til að mæta á fundinn og þennig eflum við gott samstarf heimilis og skóla


Bekkjartenglakvöld

Ákveðið hefur verið að halda stuttan bekkjartenglafund, ekki er búið að fastsetja fundinn en það verður gert fljótlega. Taktu þátt í starfi bekkjartengla þannig kynnist þú öðrum foreldrum í bekknum/árganginum.


Stjórn foreldrafélgsins.

zoom_out_map

Hátíð á Holtinu

Hausthátíð Foreldrafélags Hvaleyrarskóla og Hvaleyrarskóla verður haldin fimmtudaginn 29. ágúst milli kl. 17:00 og 19:00.
Margt skemmtilegt í boði. Hoppukastalar, matarvagnar, andlitsmálning, skátarnir grilla sykurpúða, Candy floss, pylsur, VÆB mætir á svæðið og margt fleira.

zoom_out_map

Mentor - leiðbeiningar fyrir foreldra/forráðamenn

Hér má nálgast leiðbeiningar sem Infomenntor gefur út fyrir aðstandendur í byrjun skólaárs

Reglur um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar

Við minnum á samræmdar reglur um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar en kynning á þeim er í kynningarglærum árganganna. Reglur og viðbragðsáætlun eru samræmdar þannig að ekki sé mismunun milli skóla bæjarins.


Starfsfólk skólanna í Hafnarfirði hefur áhyggjur af minnkandi skólasókn og fjölgun nemenda sem teljast falla undir skilgreiningar um skólaforðun. Í reynd eru allar fjarvistir frá skóla óheppilegar af ýmsum ástæðum og því er ekki gerður greinarmunur á fjarvistardögum þótt greinarmunur sé gerður á tilefni fjarvista. Eftir því sem skólasókn fer minnkandi taka við aukin viðbrögð af hálfu skóla til að koma sem lengst í veg fyrir að námsárangur nemenda versni vegna slakrar skólasóknar og vanlíðan aukist.

Meginefni reglanna er:


1. AÐ VIRÐING SÉ BORIN FYRIR SKÓLASÓKN

Allt skólasamfélagið (forsjáraðilar, nemendur, starfsfólk skóla) verður að bera virðingu fyrir mikilvægi skólasóknar alla 180 skóladaga nemenda í grunnskóla á hverju skólaári.


2. AÐ SKÓLA BERI ENGIN SKYLDA TIL SÉRSTUÐNINGS VEGNA LEYFA

Starfsfólk skóla ber ekki skylda til að þjónusta einstaka nemendur sérstaklega vegna fjarvista frá skóla, hverju nafni sem þær nefnast, og skulu foreldrar/ forráðmenn ekki óska eftir slíkri þjónustu (t.d. að kennarar gefi út sérstaka heimavinnu eða skilaboð þegar um er að ræða persónuleg leyfi fjölskyldna).


3. AÐ SKRÁÐ SÉ RAUNSKÓLAMÆTING Í LOK SKÓLAÁRS Á VITNISBURÐARBLAÐ NEMANDA

Allar fjarvistir, hverju nafni sem þær nefnast, búa til eina raunmætingareinkunn sem gefin er á vitnisburðarskírteini nemenda í lok skólaárs, sem prósentuhlutfall af skólasókn yfir skólaárið.


4. AÐ GEFIN SÉ ÁRLEG LOKAEINKUNN (A-D) VEGNA SKÓLASÓKNAR Á VITNISBURÐARBLAÐ

Ástundun sem snýr að fjarvistum, seinkomum og brottrekstri úr kennslustundum mynda á einu skólaári skólasóknareinkunn sem hver nemandi fær á matskvarðanum A, B+, B, C+, C og D í samræmi við kvarða (sjá fylgiskjal póstsins).


5. AÐ VIÐBRÖGÐ SKÓLA OG BARNAVERNDAR VIÐ MINNKANDI SKÓLASÓKN SÉU SAMHÆFÐ

Þótt forsjáraðilar hafi víðtækar heimildir til að tilkynna veikindi og leyfi frá skóla munu skólar bregðast við öllu slíku sem „fjarvistum“ óháð tilefni, í samræmi við reglur. Allar fjarvistir frá skóla eru óheppilegar og miklar fjarvistir (umfram 10% kennslutímans eða 18 skóladaga á skólaári) geta hamlað námsárangri barna. Það er skylda nemenda að mæta í skóla nema að löggild forföll hamli. Umræddar reglur gilda um alla grunnskóla Hafnarfjarðar jafnt og færast með nemendum flytji þeir á milli skóla innan Hafnarfjarðar á skólaárinu.

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn

Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra/forráðamenn nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter