Fréttabréf Giljaskóla
2. október 2026
Kæra skólasamfélag
Þá er rúmur mánuður liðinn af skólaárinu og október genginn í garð. Haustið og litirnir í náttúrunni eru ævintýralega fallegir í hauststillunum.
Október verður viðburðaríkur með stuttmyndadögum á unglingastigi auk þess sem haustfríið er í október.
Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað í rjóðrinu okkar nú á haustdögum og hefur fimmti bekkur verið iðinn við að búa til ný eldstæði.
Nú er búið að opna ný uppgert leiksvæði sem sérstaklega er hannað fyrir sérdeild en auðvitað mega allir nýta svæðið, við erum ánægð með útkomuna og vonumst til að svæðið verði vel nýtt.
21. október er bleikur dagur- og hvetjum við alla til að fagna honum með okkur og klæðast bleiku.
Við hlökkum til samstarfs við ykkur í vetur og minnum á einkunnarorð skólans, sem eru:
Ábyrgð - Virðing - Vinsemd.
Með kveðju,
Elías, Alla og Thelma
Símafrí í grunnskólum Akureyrar - breyting
Eins og þið öll vitið þá voru símar leyfðir í skólanum á föstudögum á unglingastigi en nú hefur verið ákveðið að símar séu bannaðir alla daga í skólum sveitarfélagsins frá fyrsta föstudegi eftir haustfrí eða þann 30. október 2026.
Árshátíð - breyting á tímasetningu
Við viljum vekja athygli á því að breytingar hafa orðið á tímasetningu á árshátíð skólans en hún verður 25. og 26. nóvember í staðinn fyrir að hafa hana í apríl en þemadagar voru færðir yfir á apríl í staðinn. Við hlökkum til að byrja undirbúning á árshátíð nú í október.
Læsir - læsisapp - Bókadómar hjá 8. 9. og 10. bekk
Í Giljaskóla notum við Læsir appið til að skrá heimalestur fyrir nemendur í 1. til 7. bekk.
Nemendur í 9. og 10.bekk eiga að velja sér þrjár bækur yfir skólaárið og skila bókarýni um þær til kennara. 8. bekkur vinnur einnig með bókarýni.
Við leggjum áherslu á að nemendur lesi heima fimm sinnum í viku 15 mínútur í senn. Umsjónarkennarar skrá í Mentor eftir hvern mánuð hvort nemendur hafi náð því. Samkvæmt verklagi skólans setur umsjónarkennari sig í samband við heimilin ef markmiðum er ekki náð eftir mánuðinn og ef það gerist í þriðja skiptið þá er haldinn fundur með stjórnanda skólans.
Innan hvers mánaðar skapast gott svigrúm til að ná upp þeim dagafjölda sem þarf fyrir hvern mánuð. Til dæmis eru allt að 8 - 15 dagar sem telja ekki til skóladaga í hverjum mánuði og því ættu allir að hafa tækifæri til að ná þeim skiptum sem ætlast er til fyrir mánuðinn.
Reglulegur lestur eykur lestrarfærni, orðaforða, lesskilning og sjálfstraust í lestri.
Við hvetjum ykkur til að að styðja börnin ykkar í að ná þessu markmiði. Samstarf heimilis og skóla skiptir gríðarlega miklu máli þegar kemur að því að efla lestur og lestraráhuga barna.
Birting námsmats - Áríðandi
Birting námsmats er enn í vinnslu hjá okkur en eins og þið hafið heyrt ákvað mennta - og barnamálaráðherra að innleiða talnakvarða í námsmati í grunnskólum landsins. Við erum að vinna í þessum breytingum og verður því námsmat ekki birt foreldrum og forráðamönnum að svo stöddu á mentor eins og verið hefur. Við gerum ráð fyrir að frekari upplýsingar berist foreldrum frá ráðuneytinu nú í október. Vinna sem þessi tekur tíma og þökkum við ykkur fyrir skilninginn og þolinmæðina en hvetjum ykkur til að heyra í umsjónarkennurum ef þið þurfið upplýsingar um stöðuna hjá ykkar barni.
Við munum síðan birta upplýsingar inn á mentor um leið og við höfum forsendur til.
Frá foreldraf élaginu
Kæru foreldrar.
Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldin fimmtudaginn 8. október klukkan 16:30 í matsal skólans. Ætlum að hafa sama háttinn á og í fyrra. 10. bekkur ætlar að sjá um vöfflukaffi og barnapössun. Yngri systkini eru velkomin með og skoða allt dótið í frístund. Foreldrafélagið styrkir svo ferðasjóð 10. bekkjar fyrir.
Farið verður yfir ársreikninga, kosning stjórnar og önnur aðalfundarstörf. Sendum út skráningarlink fyrir fundinn, svo að við vitum svona nokkuð hvað þarf margar vöfflur.
Arnar Már Bjarnason, deildarstjóri forvarna og frístundamála, verður með kynningu frá starfsemi þeirra.
Einnig vil ég minna á mikilvægi bekkjarfulltrúa, og vonandi hafa allir árgangar fundið fulltrúa, því samvera með krökkunum og foreldrum er mjög mikilvæg.
Á næstu dögum munum við svo senda út í heimabanka kröfur um árgjald félagsins.
Konráð Logi Fossdal
Útivistardagur Giljaskóla
Útivistardagurinn gekk mjög vel og var gaman að sjá hvað nemendur voru glaðir eftir daginn. Fjölbreytt val var fyrir eldri nemendur og eru hér myndir frá deginum.
Endurskinsmerki
Nú þegar það er farið að dimma er mjög mikilvægt að börn og fullorðnir noti endurskinsmerki eða endurskinsvesti þegar við erum í umferðinni. Í myrkri sjást gangandi og hjólandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu.
Við biðjum ykkur um að aka varlega í kringum skólann.
Bókavika hjá 5. og 6. bekk
Í vikunni tóku 5. og 6. bekkur þátt í skemmtilegri bókaviku þar sem lestur og samvera voru í aðalhlutverki.
Á miðvikudeginum voru nemendur með sameiginlegar stöðvar þar sem bekkirnir unnu saman og áttu góða stund. Við enduðum svo bókavikuna saman í matsalnum á notalegan hátt. Tveir nemendur úr báðum bekkjum lásu fyrir okkur í sameiningu söguna Drengurinn sem hrópaði úlfur og stóðu sig með prýði. Að lestri loknum fengum við okkur heitt kakó og piparkökur og áttum notalega og skemmtilega stund saman.
Bókavikan tókst einstaklega vel og var virkilega gaman að sjá nemendur njóta þess að lesa, hlusta og eiga góða stund saman. 📚☕🍪
Framundan
11. október - Fæðingadagur forseta Íslands.
21. któber - Bleikur dagur - hvetjum alla til að klæðast einhverju bleiku þennan dag.
24. október - Fyrsti vetrardagur
26. október - Haustfrí - Frístund opin.
27. október - Haustfrí - Frístund opin.