Smore logo
remove_red_eye 147
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

5. tbl. 4. árg. - maí 2023

FréttabréfGrenivíkurskóla5. tbl. 4. árg. - maí 2023
zoom_out_map

Kæra skólasamfélag

Þá er síðasti mánuður skólaársins runninn upp og sól og sumar handan við hornið!


Aprílmánuður hófst á páskafríi en við tóku fjörugar vikur í skólanum þar sem við héldum meðal annars upplestrarkeppni, en nánar er sagt frá því hér að neðan.


Framundan í maí - og í upphafi júní - eru svo hefðbundin vorverk; námsmat, útskriftarhátíðin Runólfur, útivistardagar og skólaslit, en að þessu sinni verður skóla slitið mánudaginn 5. júní næstkomandi.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

zoom_out_map

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk var haldin í apríl, en nemendur höfðu æft sig reglulega í allan vetur undir dyggri leiðsögn Hólmfríðar Björnsdóttur. Þann 18. apríl fór fram heimakeppni í Grenivíkurskóla og stóðu nemendur sig allir með miklum ágætum. Dómnefnd átti erfitt val fyrir höndum, en það voru þau Katla Eyfjörð Þorgeirsdóttir og Smári Signar Viðarsson sem voru valin til þess að vera fulltrúar skólans á lokahátíðinni.


Lokahátíðin var svo haldin í Hlíðarbæ þann 27. apríl, en þangað mættu lesarar frá Grenivíkurskóla, Þelamerkurskóla, Hrafnagilsskóla, Árskógarskóla, Dalvíkurskóla og Grunnskóla Fjallabyggðar. Keppendur stóðu sig allir með mikilli prýði og svo fór að Katla Eyfjörð stóð uppi sem sigurvegari. Við óskum henni, og keppendum öllum, til hamingju með frábæran árangur.

open_in_new zoom_out_map

Heilsueflandi skóli

Við vekjum athygli á klámspjalli Stígamóta þar sem hægt er að finna leiðbeiningar til foreldra um hvernig hægt er að taka samtal við börn og unglinga um klám. Það er eðlilegt og heilbrigt að unglingar séu forvitnir um kynlíf, en ljóst að óheft aðgengi að klámi getur skaðað kynheilbrigði þeirra og stuðlað að ranghugmyndum um kynlíf og samskipti. Því er mikilvægt að foreldrar taki umræðuna um þessi mál snemma og á áðurnefndri heimasíðu er að finna heilmargt efni sem getur reynst gagnlegt til þess.


Þá er gott að minnast á heimasíðuna "Sjúkt spjall", þar sem ungmenni undir 20 ára geta haft samband, nafnlaust, við ráðgjafa sem geta veitt aðstoð, stuðning, og upplýsingar um ýmislegt sem tengist samskiptum, samböndum, og ofbeldi.


Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "Mikilvægi maí". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

zoom_out_map

Grænfáninn

Ungt umhverfisfréttafólk er skemmtilegt verkefni á vegum Landverndar, en í því senda nemendur inn myndbönd þar sem fjallað er um áhugaverð efni sem varða umhverfismál. Á heimasíðunni Menntun til sjálfbærni er að finna nokkur þessara myndbanda sem gaman er að skoða.


Skoða myndböndin.

Myndir úr skólastarfinu - apríl

  • Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk - apríl 2023
  • Hitt og þetta - apríl 2023

Á döfinni í maí og júní

  • 1. maí: Verkalýðsdagurinn - frí í skólanum
  • 3. maí: Samskóladagur fyrir 5.-7. bekk í Stórutjarnaskóla
  • 18. maí: Uppstigningardagur - frí í skólanum
  • 29. maí: Annar í hvítasunnu - frí í skólanum
  • 1. júní: Útivistardagur
  • 2. júní: Útivistardagur
  • 5. maí: Starfsdagur - frí hjá nemendum. Skólaslit kl. 17:00.
open_in_new zoom_out_map
zoom_out_map

Grenivíkurskóli

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Email: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Website: http://www.grenivikurskoli.is
Location: Grenivík
Phone: 414-5413
Facebook: https://www.facebook.com/search/top?q=greniv%C3%ADkursk%C3%B3li

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter