Hvalrekinn
Ágúst 2025
Við upphaf skóla
Þá fer að líða að upphafi skólaárs hjá okkur í Hvaleyrarskóla. Það er von okkar að allir hafi haft það sem allra best í sumarfríinu og séu tilbúnir að takast á við nýjar áskoranir á komandi skólaári.
Skólasetning er mánudaginn 25. ágúst, sjá nánari tímasetningar hér fyrir neðan. Við bjóðum foreldra/forráðamenn hjartanlega velkomna á skólasetninguna og hlökkum til að sjá sem flesta.
Eins og undanfarin ár fá nemendur stærstan hluta af námsgögnum afhendan í skólanum. Nemendur þurfa þó að eiga skriffæri og annað fyrir sig í pennaveski. Fyrir veturinn þurfa nemendur að hafa 8 blýanta, 6 strokleður, 1 tunnuyddara, 2 penna svarta (Artline 210, medium 0,6) og tré og tússliti . Þetta þarf að hafa í pennaveski og mikilvægt er að merkja það nemendum. Áfram þurfa nemendur svo að eiga skólatösku, sund- og íþróttafatnað.
Mikilvægt er að við brýnum fyrir börnunum mikilvægi þess að ganga vel um námsgögnin.
Góð mæting í skóla er veigamikill þáttur í farsælli skólagöngu og vellíðan barna og unglinga. Að missa ítrekað úr kennslustundum, t.d. í lestri á yngra stigi eða stærðfræði á eldri stigum, getur haft áhrif á námsárangur þegar fram í sækir.
Mikil umræða hefur verið um farsímanotkun ungmenna undanfarið og það truflandi áreiti sem símar geta haft á nám og vinnu nemenda. Áfram verður sami háttur hafður á og á síðasta skólaári, þá verður þetta einfalt hér í Hvaleyrarskóla, símar eiga ekki að sjást á skólatíma hjá nemendum. Ef nemendur þurfa að mæta með síma í skólann eiga þeir að vera í skólatöskunni frá upphafi skóladags og þar til skóla lýkur. Mikilvægt er að þið foreldrar ræðið ábyrga notkun á símum.
Ef þið foreldrar þurfið að ná í ykkar börn þá er best að hringja á skrifstofu skólans (5650200).
Við vonum að allir nemendur hafi verið duglegir að lesa í sumar. Það er eins með lesturinn og annað sem við tökum okkur fyrir hendur að eftir því sem við æfum okkur meira þá gengur okkur betur.
Eigum ánægulegt skólaár!
Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri
Hvaleyrarskóli er hnetulaus skóli
Skólasetning
Skólasetningin mánudaginn 25. ágúst á sal skólans sem hér segir:
- Kl. 8:30 - 2., 3. og 4. bekkur
- Kl. 9:45 - 5., 6. og 7. bekkur
- Kl. 11:00 - 8., 9. og 10. bekkur
- Nemendur í 1. bekk verða boðaðir í viðtöl hjá umsjónarkennara þennan dag.
Skólasetningin hefst á sal skólans þar sem skólastjóri og deildarstjórar ræða við nemendur og foreldra. Að því loknu fara nemendur með umsjónarkennara í sína heimastofu þar sem farið er yfir skipulag vetrarins.
Þriðjudaginn 26. ágúst er skólasetning hjá nemendum í 1. bekk á sal skólans kl. 8:20. Að því loknu er Skólafærninámskeið fyrir foreldra/forráðamenn nemenda í 1. bekk til kl. 9:20. Þar verður farið yfir hagnýtar upplýsingar er varðar skólagöngu barnsins.
Kennsla hefst hjá öllum nemendum skólans þriðjudaginn 26. ágúst samkvæmt stundaskrá.
Mataráskrift skólaárið 2024-2025
Hafnarfjarðarkaupstaður gekk í sumar frá þjónustusamningi við Í-mat ehf./Matarstund um framleiðslu og framreiðslu á mat fyrir tíu leikskóla og alla grunnskóla bæjarins, ásamt frístundaheimilum.
Nánari upplýsingar koma frá fyrirtækinu eftir helgina en hægt er að skrá nemendur í mat á heimasíðunni Matarstund.
Hafnfirsk börn og starfsfólk í leik- og grunnskólum í Hafnarfirði fá gæðamáltíðir í skólunum. Hafnarfjarðarbær hefur samið við fyrirtækið Í-mat til næstu ára og fá allir skólar bæjarins og frístundaheimili sinn mat þaðan. Með samstarfinu við Í-mat tekur Hafnarfjörður mikilvægt skref í átt að heilbrigðu næringarumhverfi hafnfirskra barna.
Hádegismatur nemenda er gjaldfrjáls og ekki þarf að panta hann fyrir fram. Miðað er við að það séu tveir réttir í hádegi sem nemendur geti valið á milli; kjöt/fiskur eða grænmetisréttir og vegan þar innifalið ef við á. Valið fer fram á staðnum milli þeirra en ekki fyrir fram (svo mögulega getur annar rétturinn klárast á undan hinum svo einhverjir missi af því að hafa val um tvo rétti einhvern daginn).
Áfram geta foreldrar valið um að barn komi með morgunhressingu í skólann eða kaupi ávexti í áskrift frá Í-mat. Sömuleiðis er óbreytt með sérfæði en það er bundið læknisvottorði um ofnæmi/óþol og skal sækja um það á vef Í-mat ásamt nauðsynlegum fylgigögnum.
Þar sem umfangsmiklar breytingar eru framundan í vetur með nýjum aðila má búast við að mögulega taki tíma að koma jafnvægi á framkvæmdina og er beðið um biðlund og þolinmæði allra meðan byrjunarfasi þessara breytinga standa yfir.
Ávaxta- og grænmetishressing
Í morgunfrímínútum (á bilinu 9:15 -10:10 (um 20 mín. á hóp, hjá sumum afhent í stofur (1.-7. bk.) og öðrum í matsal (8.-10. bk.) er boðið upp á ávaxta- og grænmetishressingu í áskrift.
Síðdegishressing
Áfram verður hægt að kaupa síðdegishressingu en slíkt verður eingöngu í boði í fastri áskrift eftir vikudögum. Áskrift á síðdegishressingu fer fram í gegnum vef Skólamatar, Skráning er einnig inn á Matarstund.
Morgunverður
Dagleg rútína hefst með morgunmat, hafragraut, sem er í boði fyrir nemendur og starfsfólk skóla áður en kennsla hefst, eða um 10-15 mín. áður en fyrsta kennslustund hefst. Í boði er þorskalýsi. Engar skráningar eru fyrir þátttökunni og mæting frjáls.
Framreiðsla á hafragraut hefst mánudaginn 1. september.
Holtasel
Mánudaginn 25. ágúst eru starfsdagar í Holtaseli og því verður lokað þann dag. Mánudaginn 25. ágúst að lokinni skólasetningu eru foreldrar velkomnir að líta í heimsókn í Holtasel, kynnast starfsfólki og starfseminni.
Þriðjudaginn 26. ágúst er opnað á venjulegum tíma eftir skóla fyrir þá sem eru skráðir og búnir að fá samþykkta umsókn.
Póstur verður sendur til foreldra með nánari upplýsingum áður en Holtasel hefst.
Síminn í Holtaseli er 534-0200 og hægt er að hringja í hann þegar starfið hefst á daginn, einnig er hægt að hringja í vinnusíma deildarstjóra 664-5778.
Skjánotkun
Það er fyrst og fremst á ábyrgð foreldra hversu mikil skjánotkun er á heimilinu.
Foreldrar þurfa því að leitast við að skapa jafnvægi í lífi barna sinna og einnig að skipuleggja skjálausar stundir saman.
Hér má finna skjáviðmið fyrir börn og ungmenni.
Lestur er lífsins leikur
Lestrarfærni er forsenda virkrar þátttöku í samfélaginu og bág lestrarfærni getur haft neikvæð áhrif á námsframvindu og þar með tækifæri á lífsleiðinni síðar meir. Þær staðreyndir að lestrarfærni íslenskra barna fór halloka voru kveikja þess að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði lögðu áherslu á að móta skýra og skilvirka læsisstefnu í Hafnarfirði sem næði til nemenda, kennara og foreldra. Unnið hefur verið markvisst eftir þeirri stefnu undanfarin ár sem hefur meðal annars skilað sér í aukinni samfellu milli skólastiga og lagt línurnar um mikilvægi læsis sem grunnstoð náms.
Hér má finna endurskoðaða lestrarstefnu Hafnarfjarðar Lestur er lífsins leikur.
Mikilvægar upplýsingar frá íþróttakennurum
Matsferill
Lesfimipróf og stuðningspróf sem lögð hafa verið fyrir undanfarin ár verða hluti af Matsferli en einnig verða samræmd stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði lögð fyrir nemendur 4. – 10. bekkjar allra grunnskóla landsins í mars. Skólum er skylt að leggja prófin fyrir nemendur í 4., 6. og 9. bekk.
Teymiskennsla
Teymiskennsla verður í Hvaleyrarskóla í vetur hjá 1., 2. og 8. árgöngum.
Teymiskennsla er þegar tveir eða fleiri kennarar vinna saman að kennslu í sama bekk eða á sama aldursstigi. Í stað þess að hver kennari beri ábyrgð eingöngu á sínum hópi, bera þeir sameiginlega ábyrgð á námi og velferð nemenda.
Í teymiskennslu deila kennarar ábyrgð, skipuleggja kennsluna saman og nýta styrkleika hvers og eins til hagsbóta fyrir nemendur. Þetta getur þýtt að kennararnir skipta árganginum í minni áhópa, kenna ákveðin fög eftir sérþekkingu sinni, eða leiðbeina öllum hópnum saman.
Hverjir eru kostirnir?
Meiri sveigjanleiki: Kennarar geta skipt hópnum niður eftir þörfum nemenda.
Stuðningur fyrir nemendur: Fleiri augu og eyru fylgjast með, sem styrkir námsumhverfið og eykur líkur á að enginn gleymist.
Stuðningur fyrir kennara: Kennarar fá tækifæri til að læra hver af öðrum og finna betri lausnir saman.
Fjölbreytt kennsla: Nemendur upplifa ólíkan kennslustíl, skapandi nálganir og aukið aðgengi að einstaklingsmiðuðum verkefnum.
Markmiðið með teymiskennslu er að skapa öflugt og samstillt námssamfélag þar sem bæði nemendur og kennarar njóta góðs af.
Bjarg - deild fyrir nemendur sem sækja um alþóðlega vernd
Lestur er lífsins leikur
Aðalfundur foreldrafélagsins og fundur bekkjartengla
Við hvetjum ykkur til að mæta á fundinn og þennig eflum við gott samstarf heimilis og skóla
Bekkjartenglakvöld
Ákveðið hefur verið að halda stuttan bekkjartenglafund, ekki er búið að fastsetja fundinn en það verður gert fljótlega. Taktu þátt í starfi bekkjartengla þannig kynnist þú öðrum foreldrum í bekknum/árganginum.
Stjórn foreldrafélgsins.
Hátíð á Holtinu
Hausthátíð Foreldrafélags Hvaleyrarskóla og Hvaleyrarskóla verður haldin mánudaginn 25. ágúst milli kl. 17:00 og 19:00.
Margt skemmtilegt í boði. Hoppukastalar, matarvagnar, andlitsmálning, skátarnir grilla sykurpúða, Candy floss, pylsur, Prettyboitjokko mætir á svæðið og margt fleira.
Mentor - leiðbeiningar fyrir foreldra/forráðamenn
Reglur um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar
Við minnum á samræmdar reglur um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar en kynning á þeim er í kynningarglærum árganganna. Reglur og viðbragðsáætlun eru samræmdar þannig að ekki sé mismunun milli skóla bæjarins.
Starfsfólk skólanna í Hafnarfirði hefur áhyggjur af minnkandi skólasókn og fjölgun nemenda sem teljast falla undir skilgreiningar um skólaforðun. Í reynd eru allar fjarvistir frá skóla óheppilegar af ýmsum ástæðum og því er ekki gerður greinarmunur á fjarvistardögum þótt greinarmunur sé gerður á tilefni fjarvista. Eftir því sem skólasókn fer minnkandi taka við aukin viðbrögð af hálfu skóla til að koma sem lengst í veg fyrir að námsárangur nemenda versni vegna slakrar skólasóknar og vanlíðan aukist.
Meginefni reglanna er:
1. AÐ VIRÐING SÉ BORIN FYRIR SKÓLASÓKN
Allt skólasamfélagið (forsjáraðilar, nemendur, starfsfólk skóla) verður að bera virðingu fyrir mikilvægi skólasóknar alla 180 skóladaga nemenda í grunnskóla á hverju skólaári.
2. AÐ SKÓLA BERI ENGIN SKYLDA TIL SÉRSTUÐNINGS VEGNA LEYFA
Starfsfólk skóla ber ekki skylda til að þjónusta einstaka nemendur sérstaklega vegna fjarvista frá skóla, hverju nafni sem þær nefnast, og skulu foreldrar/ forráðmenn ekki óska eftir slíkri þjónustu (t.d. að kennarar gefi út sérstaka heimavinnu eða skilaboð þegar um er að ræða persónuleg leyfi fjölskyldna).
3. AÐ SKRÁÐ SÉ RAUNSKÓLAMÆTING Í LOK SKÓLAÁRS Á VITNISBURÐARBLAÐ NEMANDA
Allar fjarvistir, hverju nafni sem þær nefnast, búa til eina raunmætingareinkunn sem gefin er á vitnisburðarskírteini nemenda í lok skólaárs, sem prósentuhlutfall af skólasókn yfir skólaárið.
4. AÐ GEFIN SÉ ÁRLEG LOKAEINKUNN (A-D) VEGNA SKÓLASÓKNAR Á VITNISBURÐARBLAÐ
Ástundun sem snýr að fjarvistum, seinkomum og brottrekstri úr kennslustundum mynda á einu skólaári skólasóknareinkunn sem hver nemandi fær á matskvarðanum A, B+, B, C+, C og D í samræmi við kvarða (sjá fylgiskjal póstsins).
5. AÐ VIÐBRÖGÐ SKÓLA OG BARNAVERNDAR VIÐ MINNKANDI SKÓLASÓKN SÉU SAMHÆFÐ
Þótt forsjáraðilar hafi víðtækar heimildir til að tilkynna veikindi og leyfi frá skóla munu skólar bregðast við öllu slíku sem „fjarvistum“ óháð tilefni, í samræmi við reglur. Allar fjarvistir frá skóla eru óheppilegar og miklar fjarvistir (umfram 10% kennslutímans eða 18 skóladaga á skólaári) geta hamlað námsárangri barna. Það er skylda nemenda að mæta í skóla nema að löggild forföll hamli. Umræddar reglur gilda um alla grunnskóla Hafnarfjarðar jafnt og færast með nemendum flytji þeir á milli skóla innan Hafnarfjarðar á skólaárinu.
KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA
Hvalrekinn
Opnunartími skrifstofu:
Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim
Kl. 7:45 - 14:00 fös
Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/