Smore logo
remove_red_eye 399
page background

Brekkuskóli

MENNTUN - GLEÐI - UMHYGGJA - FRAMFARIR

Brekkuskóli MENNTUN - GLEÐI - UMHYGGJA - FRAMFARIR

Kæru foreldrar/forráðamenn nemenda í Brekkuskóla

Veturinn fór um daginn en kom svo aftur og við fögnum því vegna þess að Brekkuskóli fékk úthlutað degi í fjallinu 23. mars og stefnir á að hafa útivistardag þann dag. Í fyrra fengu nemendur í 4. - 10. bekk að velja um nokkra möguleika sem vakti mikla ánægju þannig að við munum bjóða aftur upp á nokkra valmöguleika.

Í næstu viku ætlum við að vera með þemadaga sem verða tileinkaðir fjölmenningu í Brekkuskóla. Samfélag Brekkuskóla samanstendur af fólki sem talar um 22 tungumál og kemur frá enn fleiri löndum. Þessa daga brjótum við upp hefðbundna hópaskiptingu og stundatöflu en skóladegi lýkur þó á venjulegum tíma hjá öllum.

zoom_out_map

Framundan

15. mars þemadagur - fjölmenning

16. mars þemadagur - fjölmenning

23. mars útivistardagur

3. - 10. apríl páskafrí

20. apríl frí sumardagurinn fyrsti

26. apríl Brekkuskólaleikar

zoom_out_map

Nánar um útivistardaginn 23. mars 2023

1.- 3. bekkur

  • Kjarnaskógur - sleðar, snjóþotur og leikir


4. - 6. bekkur getur valið um:

  • Hlíðarfjall - þau sem eiga búnað
  • Kjarnaskógur - sleðar, snjóþotur og leikir
  • Braggaparkið


7. - 10. bekkur getur valið um:

  • Hlíðarfjall, þeir sem ekki eiga búnað geta leigt búnað - bretti - svig - gönguskíði
  • Gönguferð í Fálkafell, fara inn í skála og hita kakó
  • Gengið inn í Skautahöll, farið á skauta og gengið til baka


Nemendur í 4. - 10. bekk munu svara könnun í skólanum um þeirra val. Við biðjum ykkur foreldra um að ræða við börnin ykkar um það sem þau velja. Það er mikilvægt að þið aðstoðið þau við valið.

zoom_out_map

Hafðu samband

Email: brekkuskoli@brekkuskoli.is
Website: brekkuskoli.is
Location: v. Skólastíg
Phone: +354 414-7900
Facebook: https://www.facebook.com/brekkuskoli.is/

Brekkuskóli
Ábyrgðarmenn: Stjórnendur Brekkuskóla
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter