Smore logo
remove_red_eye 531
page background

Fréttabréf VA

Desember 2019. 1. tölublað.

Fréttabréf VADesember 2019. 1. tölublað.

Námsmatsdagar nálgast og önninni að ljúka

Nú er námsmatstímabilinu lokið og beðið er einkunna fyrir allt erfiðið. Desember er uppskerumánuður í skólanum, þá lýkur einni önn og önnur mun hefjast í janúar. Nánari upplýsingar um það hér fyrir neðan. Það gekk á ýmsu meðan á námsmatstíminn fór í hönd. Fresta þurfti heilum prófdegi vegna veðurs, prófað var á laugardegi og þrír nemendur voru í Erasmusverkefni nær allan próftímann og þurftu að taka prófin þegar þeir sneru aftur.


Við í VA notum tækifærið og óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!

Nám á vorönn 2020

Það er enn opið fyrir umsóknir

Athugið að enn er opið fyrir umsóknir hjá okkur. Smellið hér til að sjá allt það sem er í boði. Ef þið ætlið að sækja um dagskóla þurfið þið að hafa samband við Karen aðstoðarskólameistara í karen@va.is en sótt er um fjarnám rafrænt hér.

Lok haustannar og upphaf vorannar

Hér má sjá ýmsar tíma- og dagsetningar sem tengjast lokum haustannar 2019 og upphafi vorannar 2020

Námsmat

  • Opnað verður fyrir einkunnir í Innu föstudaginn 20. desember kl. 8:15.
  • Sama dag verður námsmatssýning kl. 12 – 13.
  • Nemendur eru hvattir til að koma og skoða námsmat sitt með kennurum.

Stundaskrár og upphaf vorannar

  • Opnað verður fyrir stundaskrár í Innu á hádegi föstudaginn 3. janúar.
  • Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 6. janúar.

Heimavist

  • Heimavist verður opnuð sunnudaginn 5. janúar kl. 17:00. Nýir nemendur á heimavist fá þá afhent herbergi.
  • Boðið verður upp á léttan kvöldverð kl. 18:00 fyrir vistarbúa.

Opnunartími skrifstofu

  • Skrifstofa skólans verður lokuð eftir hádegi föstudaginn 20. desember og opnar aftur föstudaginn 3. janúar kl. 9:00

Búið að draga í fyrstu umferð Gettu-betur

Á fimmtudaginn var dregið í fyrstu umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu-betur. VA mætir Framhaldsskólanum að Laugum fyrsta keppniskvöldið, þann 6. janúar kl. 21:00.

Áfram VA!

Molar úr kennslunni

Meðal þess sem gert var á síðustu hefðbundnu kennsludögum skólans var uppskeruhátíð í kynjafræði og myndlistasýningnemenda í iðnteikningu. Smellið á fréttirnar hér fyrir neðan og kynnið ykkur þessi frábæru verkefni nemenda frekar.
Uppskeruhátíð í kynjafræði

Uppskeruhátíð í kynjafræði

Á miðvikudaginn, síðasta kennsludag, fór fram uppskeruhátíð í kynjafræði. Þar voru nemendur í aðalhlutverki.

launch va.is
Myndlistasýning nemenda í iðnteikningu

Myndlistasýning nemenda í iðnteikningu

Nemendur í iðnteikningu undir handleiðslu Önnu Bjarnadóttur hafa unnið afar vel á önninni. Eftir þá liggur sýning verka sem má finna hér í fréttinni.

launch va.is

Erasmus+ fréttir

Í byrjun desember fóru kennararnir Þuríður og Salóme með nemendurna Steinunni, Ýr og Jónas til Szeged in Ungverjalandi til þess að taka þátt í næsta hluta verkefnisins Will to MotivatE(U).


Hópurinn hélt af stað laugardaginn 7. desember og kom aftur viku síðar. Í Ungverjalandi lærðu þau í gegnum leik og nemendurnir tengdust vel öðrum nemendum. Auk þess var notið alls hins besta sem jólin bjóða upp á í Ungverjaland, ljós og markaðir.


Næsti hluti verkefnisins fer fram hérna hjá okkur í VA en þá kemur starfsfólk frá hinum löndunum til okkar dagana 20.-24. apríl.


Það er að frétta af nemendum okkar í Viborg að á laugardaginn komu þau heim eftir fjögurra og hálfs mánaðar dvöl. Var ljúft að koma heim og einnig höfðu þau lært heilan helling. Þau fengu m.a. viðurkenningu fyrir að hafa útbúið kennslumyndbönd í skólanum.


Við höfum verið með nemanda úr Mercantec í Viborg hjá okkur síðan í september en hann er í starfsnámi fyrir utan skólann. Hann fer í dag, fimmtudag og því verða allir Erasmusnemendur komnir til síns heima fyrir jól.


Hér fyrir neðan má sjá frekari upplýsingar um erlent samstarf innan skólans.

Erasmus+ verkefni

Erasmus+ verkefni í VA 2019 - 2021 KA102 - Nám og þjálfun -  Barist gegn brottfalli í VA II Styrkupphæð: 16.740 evrur Verkefnið felst í ferðum

launch va.is

ÍÞAK1LS02

Nemendur sem æfa íþróttir geta fengið þá iðkun metna til eininga með því að skrá sig í Íþróttaakademíuna. Það kemur þá í stað skólaíþrótta. Tengiliður við íþróttafélög er Salóme Rut Harðardóttir


Frekari upplýsingar má finna hér.

Við erum virk á samfélagsmiðlum, kíktu á okkur þar! Við erum virk á samfélagsmiðlum, kíktu á okkur þar!

VA á Facebook
VA á Instagram
VA á Twitter

Á döfinni

Námsmatssýning 20. desember

Jólafrí 21. desember-5. janúar

Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá 6. janúar

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter