Smore logo
remove_red_eye 851
page background

Fréttabréf Hörðuvallaskóla

september 2021

FréttabréfHörðuvallaskólaseptember 2021

Kæra skólasamfélag

Skólastarfið fer vel af stað. Ánægjulegt var að sjá hversu mikil þátttaka var í skólaboðunarsamtölum í síðustu viku. Vonandi hafið þið foreldrar / forráðamenn fengið aðeins innsýn í skólabyrjunina í þeim samtölum.

Námskynningar hafa verið hjá okkur undanfarin ár í 1., 5. og 8.árgangi. Við stefnum á slíkar kynningar síðustu vikuna í september. Nánar verður auglýst þegar nær dregur hvernig fyrirkomulagi þeirra verður háttað.

Foreldraröltið hefur staðið sig með prýði nú í skólabyrjun og viljum við koma sérstökum þökkum á framfæri til allra þeirra sem hafa gefið af tíma sínum til að rölta um hverfið á kvöldin.

Bestu kveðjur úr skólanum

Þórunn Jónasdóttir

skólastjóri

zoom_out_map

Íþróttir og sund

Íþróttir úti

Skólaíþróttir verða utanhúss til 10.september. Mikilvægt er að nemendur séu klæddir eftir veðri og í viðeigandi íþróttafatnaði. Þegar veðrið er ekki sem ákjósanlegast þá er gott að vera með föt til skiptanna - íþróttaskó í stað stígvéla og þurr föt.

Hreyfing sem skráð er á stundaskrár nemenda í 2., 4. og 6.-10.árgangi á móti sundi hálfan vetur fara að mestu fram utanhúss.

Sund

Í sundtímum er mikilvægt að nemendur hafi meðferðis sundgleraugu, hentugan sundfatnað og gott að þeir sem eru með sítt hár séu með teygju í því. Þá er gott að hafa í huga að yngstu nemendurnir séu í þægilegum klæðnaði á sunddögum svo auðveldara sé fyrir þá að afklæðast og klæða sig án vandkvæða.

Íþróttir inni

Nemendur í 3. – 10. bekk eiga að mæta með íþróttaföt og innanhúss-íþróttaskó þegar íþróttir hafa færst inn í sal. Við viljum biðja ykkur að aðstoða okkur og minna ykkar börn á þetta. Undanfarin ár hefur það færst í aukana að nemendur mæti í íþróttafatnaði í skólann án þess að hafa föt til skiptanna eða fara í sturtu að íþróttatímum loknum. Oft verður mikil ákefð í tímum þar sem nemendur svitna mikið og þeirra vegna er gott að hafa föt til skiptanna og taka um leið ábyrgð á eigin hreinlæti. Við tökum eftir að nemendur sem eru ekki með auka íþróttaföt forðast eftir megni að svitna í fötin og leggja þar af leiðandi minna á sig í tímum.

Leiðbeiningar um skipulag skólastarfs og sóttkví

Sóttvarnalæknir hefur endurskoðað leiðbeiningar um sóttkví á öllum skólastigum og í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum. Með breytingunum má gera ráð fyrir að færri þurfi að sæta sóttkví ef smit kemur upp. Í meðfylgjandi leiðbeiningum eru skilgreind viðmið um sóttkví eftir því hvort samvera við smitaðan einstakling hafi verið mikil eða ekki. Ef samskipti hafa ekki verið mikil samkvæmt skilgreiningu verður ekki gerð krafa um sóttkví heldur smitgát og getur viðkomandi þá mætt í skólann. Hraðpróf verða notuð þegar í hlut eiga einstaklingar sem einungis þurfa að sæta smitgát, eins og nánar er skýrt í meðfylgjandi leiðbeiningum.

Kveðið verður á um breyttar reglur um sóttkví í samræmi við meðfylgjandi leiðbeiningar með breytingu á reglugerð nr. 747/2021 um sóttkví og einangrun.

Nú er komið inn hugtakið smitgát og fylgir þvi að fara í tvö hraðpróf. En ekki er búið að útfæra hvernig að því verður staðið, þannig að það er ekki komið í gagnið. Vegna þessa og nýju leiðbeininganna sem komu um síðustu helgi er verið að uppfæra leiðbeiningar ef upp kemur smit í skólasamfélaginu til að samræma við nýja reglugerð og leiðbeiningar. Verið er að vinna þær í samstarfi við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sóttvarnalækni og rakningateymið. Ég sendi upplýsingar varðandi þetta þegar þær liggja fyrir.

pdf
insert_drive_file
rakning og litahringir-.pdf
Download
602.5 KB
Hér er ný reglugerð um sóttkví, einangrun og sýnatöku
zoom_out_map

Skólakór og skák, valfög nemenda í 3.-7. bekk

Skólakór

Ása Valgerður Sigurðardóttir hefur verið ráðin sem kórstjóri við Hörðuvallaskóla . En Stefán ákvað að sinna kórstörfum nær sínum heimahögum í Árnessýslunni. Kórinn verður á skólatíma á föstudögum og skipting hópa líkt og áður, 3.árgangur saman, 4.-5. Árgangur saman og 6.-7.árgangur saman. Boðið er upp á tvo prufutíma en síðan skrá nemendur sig í kórinn og sú skráning gildir til áramóta. Hluti af kórstarfinu er að koma fram innan og utan skóla.

Skák

Líkt og undanfarin ár er boðið upp á skákennslu á skólatíma fyrir nemendur í 3.-7.árgangi. Síðan er skákval hjá 8.-10.árgangi. Skákin er kennd á miðvikudögum og fimmtudögum, hver árgangur saman í hópi. Nemendur geta prufað að mæta í 1-3 skipti en síðan er skráning sem gildir til áramóta. Hluti af skákstarfinu er að keppa á ýmsum skákmótum fyrir hönd skólans.

Ása kórstjóri Kynningarbréf.docx

Ása kórstjóri Kynningarbréf.docx

Ása Valgerður Sigurðardóttir kórstjóri Kynningartexti fyrir Hörðuvallaskóla Ágúst 2021 Komið þið sæl, nemendur og aðstandendur skólakórs Hörðuvallaskóla! Ég heiti Ása Valgerður Sigurðardóttir og er nýi kórstjórinn ykkar. Ég er menntaður tónmenntakennari og kórstjóri og hef starfað sem slík um á...

launch docs.google.com

Skólastjórnendur Hörðuvallaskóla

Stjórnendahópur skólans hefur verið aðeins breytilegur síðustu ár. Skólaárið 2021-2022 er hópurinn svona saman settur.
zoom_out_map
Þórunn Jónasdóttir skólastjóri
zoom_out_map
Nína Ýr Nielsen aðstoðarskólastjóri Vallakór
zoom_out_map

Guðbjörg Oddsdóttir aðstoðarskólastjóri í Baugakór í fjarveru Sigrúnar Ólafar

zoom_out_map
Inga F Sigurðardóttir deildarstjóri 8.-10.árgangs og stoðþjónustu í Vallakór
zoom_out_map

Sesselja Ósk Vignisdóttir deildarstjóri 1.-7.árgangs í afleysingu fyrir Guðbjörgu

zoom_out_map

Kristín G Friðbjörnsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu í Baugakór

zoom_out_map
Oddrún F Ólafsdóttir skrifstofustjóri
zoom_out_map

Unnur Helga Óttarsdóttir kennsluráðgjafi fer í árs leyfi 15. október næstkomandi

zoom_out_map

Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir aðstoðarskólastjóri í Baugakór í leyfi fram á vorönn

Framkvæmdir við skólann

Kjallari í Vallakór

Skólaárið 2022-2023 er stefnt að því að skólahúsnæði færist að hluta í kjallarann í Vallakór. Framkvæmdir vegna þess eru hafnar. Búið er að grafa frá byggingunni og saga fyrir gluggum og hurðum. Öll brotavinna er búin, sem þýðir að háværustu vinnunni er lokið, en mikil vinna er eftir til að húsnæðið verði tilbúið fyrir skólastarf. Sú vinna fer fram í vetur. Búið er að setja keðjur á glugga sem snúa að framkvæmdasvæðinu. Hægt er að framkvæma björgunaraðgerðir úr gluggunum ef til þess skyldi koma, þess vegna vill brunaeftirlitið hafa keðjur á gluggunum en ekki læsa þeim alveg. Pallur og stigi hafa verið smíðaðir við útgang. Það er búið að fara í gegnum allt húsið með brunaeftirlitinu, bæði á teikningum og staðfundum, til þess að tryggja öryggi nemenda og starfsfólks í skólanum.

Gervigrasvöllur í Baugakór

Í verkefninu Okkar Kópavogur 2020 var valið að gera gervigrasvöll á lóð skólans. Framkvæmdir þar eru hafnar en seinkun varð á afhendingu girðingar og gervigrass. Vonir standa til að þessum framkvæmdum ljúki í september.

Hér má finna matseðil ágúst og september Hér má finna matseðil ágúst og september

zoom_out_map

Kosningar í Kórnum


Laugardaginn 25.september verða alþingiskosningar. Kórinn er kjörstaður og undirbúningur fyrir kosningarnar hefst 22. einhver röskun á íþróttum getur orðið vegna þessa.

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter