Smore logo
remove_red_eye 503
page background

Hvalrekinn

10. apríl 2025

Hvalrekinn  10. apríl 2025
Hvalrekinn 10. apríl 2025
zoom_out_map

Páskakveðja

Ágætu foreldrar


Föstudaginn 11. apríl verður skertur dagur i skólanum, við getum kallað þetta uppgjör á Galdralestrarsprettinum. Við brjótum upp kennsluna með spilum, leikjum og bíói. Skólanum lýkur síðan í kringum hádegið en hádegismatur hefst kl. 11:20.


Við óskum ykkur og fjölskyldum ykkar notalegra og kærleiksríkra páska. Megi samvera og rólegheit veita ykkur gleði og næringu á þessum hátíðardögum.


Kær kveðja,

Starfsfólk Hvaleyrarskóla 🐣🌷


Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri.

zoom_out_map

Páskafrí

Páskafrí nemenda hefst að loknum skóladegi föstudaginn 11. apríl og skóli hefst aftur að loknu leyfi þriðjudaginn 22. apríl.

zoom_out_map

Lestrarsprettur ~ Galdrasprettur

Síðustu tvær vikur hefur lestrarsprettur staðið yfir í skólanum. Þemað var galdur og tók allur skólinn þátt í að hlaða glæsilegan kastala hjá bókasafninu ~ þegar bókasafnið varð að kastala. Nemendur lásu bæði heima og í skólanum og voru lesnar mínútur skráðar í sérstakt hefti sem forráðamenn kvittuðu í.

Markmiðið með lestrarsprettinum var m.a. að efla orðaforða og lesskilning með gagnvirkum lestri og bar verkefnið yfirskriftina: Galdralestur

Eldri nemendur fóru meðal annars í heimsókn til yngri nemenda, þar sem þeir lásu saman og föndruðu.

Síðan breyttist bókasafnið í kastala á þessum tveimur vikum. Nemendur fengu einn múrstein fyrir hverjar 30 mínútur sem þeir lásu og byggðu kastalann með þeim.


Gagnvirkur lestur er lesskilningsaðferð sem hefur verið mikið rannsökuð og eru niðurstöður samhljóma um að aðferðin skilar góðum árangri er kemur að skilningi í öllum greinum. Um gagnvirkan lestur má t.a.m. lesa hér og hér.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Hvaleyrarskóli Íslandsmeistari grunnskólasveita í skák

Hvaleyrarskóli er Íslandsmeistari grunnskólasveita í skák eftir æsispennandi keppni sem fram fór á sunnudaginn 29. mars. Vatnsendaskóli varð í öðru sæti og í þriðja sæti varð Húnaskóli úr Húnabyggð.

Það var snemma ljóst að baraáttan yrði á milli Hvaleyrarskóla og Vatnsendaskóla. Svo fór að fyrir lokaumferðina munaði aðeins einum vinningi. Í loka umferðinni vann Hvaleyrarskóli 3-1 á meðan Vatnsendaskóli gerði 2-2 jafntefli. Sveit Hvaleyrarskóla skipuðu: Tristan Nash Alguno Openia, Milosz Úlfur Olszewski, Kristófer Árni Egilsson og Katrín Ósk Tómasdóttir


Liðsstjóri var Ægir Magnússon.

Lið Hvaleyraskóla mun því verða fulltrúi Íslands á Norðurlandamóti Grunnskóla sem haldið verður í Helsinki daganna 12. – 14. september.


Þess má geta að í keppni grunnskóla 5.-7. bekkur mættu 36 lið til leiks. A – lið Hvaleyrarskóla var í toppbaráttunni alla tíman og endaði í fimmta sæti. B- liðið stóð sig líka vel og endaði um miðbik mótsins. Það mót var haldið laugardaginn 28. mars.

zoom_out_map

Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin var haldin í vetur eins og undanfarin ár. Upplestrarkeppnin hóf göngu sína hér í Hafnarfirði fyrir meira en 25 árum síðan. Keppnin er alltaf sett á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember sem er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Undankeppni er í skólanum í febrúar og síðan fara úrslitin fram í mars og þetta árið fóru þau fram þriðjudaginn 18. mars í Víðistaðakirkju. Áttum við þar tvo keppendur Lisbet og Jón Gísla nemendur í 7. bekk. Skemmst er frá því að segja að Jón Gísli hreppti þriðja sætið af 16 keppendum sem er glæsilegur árangur. Einnig las Adam nemandi í 7. bekk hjá okkur ljóð á pósku fyrir áhorfendur. Þau stóðu sig öll með miklum sóma.

zoom_out_map

Lisbet flytur ljóð

zoom_out_map

Adam flytur ljóð á pólsku

zoom_out_map

Jón Gísli með Nínu umsjónarkennara

zoom_out_map

Frá þemadögum í mars

Við brutum upp kennsluna í vikunni 11. - 14. mars þar sem árgangarnir unnu með þemað Áratugur. Mörg skemmtileg verkefni litu dagsins ljós og margir foreldrar mættu í heimsókn á opnu húsi föstudaginn 14. mars. Þökkum við öllum fyrir komuna. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá afrakstri þemavikunnar.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Alþjóðlegt samstarf ~ námsferð til Eistlands

Hópur nemenda úr elstu deild fór nýverið í námsferð til Tartu í Eistlandi. Ferðin var hluti af samstarfsverkefni milli skólanna þar sem áhersla var lögð á menntun, menningu og samskipti. Nemendurnir gistu hjá jafnöldrum sínum í Eistlandi og fengu þar með einstaka innsýn í daglegt líf og menningu heimamanna. Á daginn unnu þau saman að fjölbreyttum verkefnum sem tengdust bæði námi og alþjóðlegu samstarfi, en seinnipartinn nutu nemendur samverunnar með eistnesku gestgjöfunum. Nemendur okkar stóðu sig afar vel, voru sjálfstæðir, virkir í umræðum og komu vel fram. Þau voru til mikillar fyrirmyndar og skiluðu sér heim reynslunni ríkari – bæði fræðilega og félagslega. Þetta var ómetanleg upplifun sem styrkti tengslin milli skólanna og víkkaði sjóndeildarhring nemenda.
Hér má lesa ferðsögu nemenda.

zoom_out_map

Kökugerð í leikhúsi

zoom_out_map

Frá vísinda- og tæknisafni

zoom_out_map

Niðurstöður verkefna kynntar

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Geta til aðgerða

Í verkefninu Geta til aðgerða fengu nemendur í 6. bekk tækifæri til að velta fyrir sér hvernig þau gætu lagt sitt af mörkum til að hlúa að nærumhverfi sínu og náttúrunni. Verkefnið var byggt á því að efla ábyrgðarkennd, frumkvæði og samfélagslega þátttöku.

Nemendur nálguðust verkefnið á fjölbreyttan og skapandi hátt. Sumir ákváðu að fara út og tína rusl úr nærumhverfinu til að fegra og hreinsa svæðið. Aðrir fóru í gegnum óskilamuni yngstu deildar skólans og komu týndum flíkum aftur til réttra eigenda sem stuðlar að bæði endurnýtingu og ábyrgri meðferð eigna. Nokkrir nemendur skrifuðu bréf til skólastjórans þar sem þeir báðu um flokkunartunnur inn í sína heimastofu í þeim tilgangi að bæta umgengni og auðvelda endurvinnslu. Þá nýtti einn hópurinn rusl sem hráefni í listsköpun og breytti því í áhugavert listaverk til þess að vekja athygli á möguleikum endurnýtingar og sköpunargleði.

Verkefnið endurspeglar hvernig unnt er að sameina umhyggju fyrir umhverfinu við sjálfbærni, lýðræðislega þátttöku og skapandi hugsun í skólastarfi. Með því að fá að velja sjálf hvernig þau lögðu sitt af mörkum urðu nemendur virkir þátttakendur í að bæta sitt nánasta umhverfi og læra um mikilvægi eigin gjörða.

zoom_out_map

Umhverfi skólans fegrað

zoom_out_map

Bréf til skólastjórans

zoom_out_map

Óskilafatnaði komið til skila

zoom_out_map

Heimsókn í Vélsmiðjuna Héðin

Nemendur í 10. bekk þáðu boð um heimsókn í vélsmiðjuna Héðinn föstudaginn 4. apríl. En fyrirtækið er staðsett í nágrenninu eða niðri á Völlum. Það var ekki annað að sjá en að nemendur væru ánægðir með heimsóknina enda fengu þeir að prufa hin ýmsu verkefni. Það leynast örugglega vélsmiðir framtíðarinnar í þessum hóp.

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Hönd í hönd ~ skólinn knúsaður Hönd í hönd ~ skólinn knúsaður

Hönd í hönd 2025
Hönd í hönd 2
zoom_out_map

Skóladagatal Hvaleyrarskóla 2025 - 2026

Skólaráð Hvaleyrarskóla samþykkti skóladagatal næsta árs á fundi sínum miðvikudaginn 26. mars. Skóladagatalið var samþykkt í fræðsluráði miðvikudaginn 2. apríl.


  • Hér má sjá Skóladagatal Hvaleyrarskóla 2025-2026.
  • Hér má líka sjá allra fyrstu drög skóladagatals grunnskóla Hafnarfjarðar 2026-2027 (skólasetning og vetrarfrí).
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Heimanám - Hvatning

Við viljum minna á að samkvæmt reglum um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar er nám nemenda sem er í leyfi á ábyrgð foreldra. Því viljum við benda á að allar áætlanir nemenda í 1. – 10. bekk má finna inn á Mentor og hjá nemendum með spjaldtölvur/Ipad eru verkefni, áætlanir og annað efni einnig að finna inni á Google Classroom.

Foreldrar geta nálgast námsbækur og önnur gögn í skólanum.


We would like to remind you that according to the rules on school attendance in Hafnarfjörður, the education of students who are on leave is the responsibility of the parents. We would also like to point out that all plans for students in 1st - 10th grade can be found on Mentor. In addition, for students with Ipads, assignments, plans and other material can also be found on Google Classroom.

Parents can arrange to get books from the school.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

zoom_out_map

Kassabíll miðdeildar

zoom_out_map

Leikskólanemendur í heimsókn

zoom_out_map

Lesið saman

zoom_out_map

Bekkjartenglar geta sótt um styrk fyrir viðburðum

Foreldrafélag Hvaleyraskóla hefur ákveðið að styrkja bekkjatengla fyrsta til fimmta bekkjar um hámark 10.000 kr. á önn til þess að gera eitthvað skemmtilegt með bekkjunum. Fyrirkomulagið er þannig að kvittanir fyrir útlögðum kostnaði auk samantektar á heildarkostnaði eru sendar á póstfang foreldrafélagsins (foreldrafelag@hvaleyrarskoli.is). Þar þarf að koma fram nafn bekkjar og tilefni (hvað var gert með bekkjunum) og nafn, kennitala og bankaupplýsingar bekkjartengils. Foreldrafélagið gefur sér u.þ.b. viku til að endurgreiða útlagðan kostnað.
zoom_out_map

Hátíð á Holtinu

Við viljum minna á að hverfishátíð foreldrafélags Hvaleyrarskóla og Hvaleyrarskóla verður haldin fyrir framan skólann þriðjudaginn 3. júní frá kl. 17:00 - 19:00.

Munið að taka daginn frá, nánari dagskrá kemur þegar nær dregur.

Skólaslit

Skólaslit 10. bekkjar verða kl. 15:00 fimmtudaginn 5. júní.

Skólaslit 1. - 9. bekkjar verða föstudaginn 6. júní. Tímasetningar auglýstar nánar þegar nær dregur.

zoom_out_map

Hvaleyrarskóli er hnetulaus skóli

Þar sem nemendur og starfsmaður skólans er með bráðaofnæmi fyrir hnetum er Hvaleyrarskóli hnetulaus skóli og biðjum við foreldra jafnt sem starfsfólk að virða það. Nemendur og starfsfólk mega því ekki koma með hnetur í skólann.

Páskakveðja frá Hvaleyrarskóla Páskakveðja frá Hvaleyrarskóla

Páskakveðja Hvaleyrarskóli 2020
Hvaleyrarskóli 30 ára

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn

Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:00 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Hvaleyrarskóli Hafnarfirði
Hvaleyrarskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter