Smore logo
remove_red_eye 174
page background

Fréttabréf Engidalsskóla feb. 2026

Ábyrgð - Virðing - Vellíðan

FréttabréfEngidalsskóla feb. 2026Ábyrgð - Virðing - Vellíðan
User uploaded image
zoom_out_map

Kæru foreldrar/forsjáraðilar.

Hér gefur að líta fyrsta fréttabréf ársins. Það er alltaf líf og fjör í Engidalsskóla og verkefnin margvísleg. Þið fáið helstu fréttir í föstudagspóstum umsjónarkennara sem mikið er lagt í og svo koma einhverjar fréttir og myndir af verkefnum nemenda á Facebook og Instagram, aðallega í sögunni (e. story). Við hvetjum ykkur til að fylgja okkur á þeim miðlum.


Engidalsskóli er heilsueflandi grunnskóli og birtist það á margvíslegan hátt. Nú erum við á fullu í Lífshlaupinu og hvetjum við ykkur foreldrar/forsjáraðilar til að hvetja nemendur næstu tvær vikur sérstaklega til að stunda útivist og hreyfingu. Við náðum að fara með 4. bekk á skíði í Ártúnsbrekkunni í janúar og svo hvarf snjórinn. Við stefnum á skíðaferð í Bláfjöll í byrjun mars með 5.-7. bekk, vonandi verður snjórinn kominn aftur. Það er gott að fara að huga að græjum hvort þær passa eða hvort nemendur þurfa að fá leigðan búnað.


Hér fyrir neðan má sjá nýjustu niðurstöður skólans í lesfimi og ljóst er að við erum að standa okkur ágætlega miðað við landsmeðaltal. Við vitum hinsvegar að við getum gert enn betur. Að meðaltali eru einungis 50-60% nemenda að ná lestrarmarkmiðum vikunnar og þar eigum við inni. Það er nefnilega æfingin sem skapar meistarann og þó nemendur lesi töluvert í skólanum er æfingin heima líka MJÖG mikilvæg. Þegar niðurstöður Lesfimiprófa eru bornar saman við heimalesturinn er skýrt samhengi, þeir sem æfa sig mikið standa sig betur í lesfimi heldur en þeir sem æfa sig lítið. Heimalesturinn er eina heimanámið í Engidalsskóla og mikilvægt að sinna því vel svo nemandinn nái góðum tökum á lestrinum, þetta er tækifæri til að gefa barninu gott start út í lífið.


Nú eftir áramótin hófu störf hjá okkur tveir nýjir starfsmenn þeir Hinrik Jón Stefánsson og Árni Þór Eiríksson, báðir starfa þeir sem skóla- og frístundaliðar í stuðningi í skólanum og í frístund eftir hádegi.


Nokkrir ,,öðruvísi" dagar eru í febrúar:


  • 11. febrúar er foreldrasamráðsdagur og þau börn sem eiga að vera í frístund þann dag þarf að skrá sérstaklega í Völu.
  • 18. febrúar er Öskudagur og skóli til 11:30 og opnar frístund þá fyrir skráða nemendur.
  • 19. og 20. febrúar er vetrarfrí og þá er lokað bæði í skólanum og frístund.
  • 23. febrúar er starfsdagur og þá er lokað bæði í skólanum og frístund.


Allt þetta og fleira er að finna í skóladagatalinu okkar á heimasíðunni.


Með bestu kveðju,

Skólastjórnendur Engidalsskóla.

Janúar-sprettur

Lestrarsprettur í janúar gekk nokkuð vel.


Nemendur í 7. bekk unnu bekkjarkeppnina og lásu samtals 6880 mínútur. Nemendur í 4. bekk fylgdu fast á eftir með 6397 mínútur og 5. bekkur endaði í þriðja sæti með 3912 mínútur. Verðlaunin eru að fá að velja hvaða bækur eru keyptar á bókasafnið.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Niðurstöður úr lesfimi í janúar 2026

Í kjölfarið á janúar- spretti tóku nemendur lesfimipróf í fyrsta sinn eftir breytingar á lesfimiviðmiðum. Fjórir árgangar voru yfir landsmeðaltali, einn á meðaltalinu og tveir aðeins undir meðaltali. (sjá mynd)

Ný lesfimiviðmið frá og með Janúar 2026

Eldri lesfimiviðmið falla úr gildi

Áður voru niðurstöður bornar saman við fyrirfram ákveðin viðmið sem lýstu væntingum um árangur. Nú byggir matið á raunverulegum gögnum frá síðustu árum sem sýna hvernig lesfimi barna á Íslandi þróast í reynd. Þetta gefur réttari og nákvæmari mynd af stöðu hvers nemanda.

https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/frett/um-lesfimiprof-og-nyja-birtingu-a-nidurstodum

Samvinna um læsi
Gagnlegar upplýsingar um læsi.

Lestrarþjálfun í skóla og heima Lestrarþjálfun í skóla og heima

User uploaded image
zoom_out_map

Það er samstarfsverkefni heimilis og skóla að tryggja börnum farsælt lestrarnám og góða lestrarfærni.

Lestur er undirstaða alls náms og því mikilvægt að þjálfun hans fari jafnt fram í skóla og heima. Heimaþjálfunin eykur líkur á árangri. Hér til hliðar eru tillögur að heimaþjálfun sem FLÍS félag læsisfræðinga á Íslandi tók saman

pdf
insert_drive_file
ForeldrabreÌ_f_Lesferill.pdf
Mikilvægar upplýsingar til foreldra/forsjáraðila um lesfimiprófin og nýjungar í túlkun og leiðbeiningum
Download
2.0 MB
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Sáttarborð Engidalsskóla
zoom_out_map

Uppeldi til ábyrgðar - Skýr mörk Engidalsskóla

Haustið 2021 hóf Engidalsskóli innleiðingu á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Innleiðingin hefur gengið vel og munum við halda henni áfram á þessu skólaári. Lykil spurning stefnunnar er hvernig manneskja viltu vera? Gengið er út frá því að þú sért við stjórnvölinn á eigin hegðun og þó við gerum öll mistök er mikilvægt að læra af þeim. Við forðumst ásakanir, afsakanir, skammir, tuð og uppgjöf og segjum JÁ eins oft og við getum. Það er alltaf hægt að segja já en stundum þarf þó að setja skilyrði í framhaldi, já þegar við erum búin að þessu eða þegar þú ert orðinn x gamall og svo framvegis. Nánar má lesa um stefnuna á uppbygging.is


Við erum ekki með eiginlegar skólareglur en fari nemendur yfir skilgreind skýr mörk er gripið inn í og nemendum er þá vísað til skólastjórnanda sem ákveður næstu skref. Foreldrar eru boðaðir til fundar með nemendum og áætlun gerð um það sem betur má fara. Mikilvægt er að allir séu meðvitaðir um þetta.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Hollt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka Hollt og gott nesti fyrir hrausta og kraftmikla krakka

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Bæklingur - Ráðleggingar um matarræði

Útivistarreglur barna Útivistarreglur barna

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Engidalsskóli

Email: engidalsskoli@engidalsskoli.is
Website: https://www.engidalsskoli.is
Location: Breiðvangur 42, Hafnarfjordur, Iceland
Phone: 555 4433

Engidalsskóli Hafnarfirði
Engidalsskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter