Fréttabréf Grenivíkurskóla
3. tbl. 7. árg. - mars 2026
Kæra skólasamfélag
Þá er febrúarmánuður á enda runninn og við höldum inn í mars með hækkandi sól og fjölmörgum skemmtilegum verkefnum. Þar ber hæst að nefna Vorskemmtun, en sýningardagarnir í ár eru 18. og 19. mars. Undirbúningur er þegar kominn á fullt og skemmtileg vinna framundan við að koma Línu langsokki á svið.
Í mánuðinum verða einnig lögð fyrir, í fyrsta skipti, stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi í 4.-10. bekk. Prófin eru hluti af svokölluðum matsferli og eru miklar vonir bundnar við að þau muni nýtast vel við að fá samræmt mat á stöðu nemenda og gefa kennurum kost á að skipuleggja nám og kennslu til samræmis við niðurstöður þeirra. Foreldrar og forráðamenn fá nánari upplýsingar um fyrirkomulag prófanna í tölvupósti.
Með kveðju úr skólanum,
Þorgeir Rúnar Finnsson
skólastjóri Grenivíkurskóla
Gosi - leiksýning í leiklistarvali
Nemendur í leiklistarvali settu upp sýninguna Gilitrutt þann 24. febrúar sl. Sýningin var afar vel heppnuð og stóðu nemendur sig með mikilli prýði, en þau höfðu æft sig undir dyggri leiðsögn Hóbbu leikstjóra. Þau sem tóku þátt í leikritinu voru þau Alexander Smári, Ari Logi, Ísadóra Arnbjörg, Lýra Louise, Natalía Ösp og Selma Lind. Takk fyrir frábæra sýningu!
Grænfáninn
Í grænfánadálki fréttabréfsins ætlum við nú að deila með ykkur skemmtilegum verkefnahugmyndum. Þetta eru verkefni sem eru ætluð til notkunar í skólastarfi, en geta sannarlega líka nýst fjölskyldum sem vilja njóta saman gæðastunda þar sem náttúran og náttúruverndarmál eru í forgrunni.
Verkefni mánaðarins kallast ólík heimili. Í því er fjallað um hvernig við sem búum á jörðinni lifum við ólíkar aðstæður eftir því hvar við búum og eru þessar misjöfnu aðstæður fólks skoðaðar í verkefninu.
Heilsueflandi skóli
Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "í núvitund í mars". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.
Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.
Myndir úr skólastarfinu
Á döfinni í febrúar
- 14. mars: Dagur stærðfræðinnar.
- 18. mars: Vorskemmtun - fyrri sýning.
- 19. mars: Vorskemmtun - síðari sýning.
- 24. mars: Skíðadagur.
- 27. mars: Síðasti kennsludagur fyrir páskafrí.
- 29. mars: Pálmasunnudagur.
Matseðill
Útgefandi: Grenivíkurskóli
Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla
Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is
Sími: 414-5413
Facebook: Grenivíkurskóli