Smore logo
remove_red_eye 122
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

3. tbl. 7. árg. - mars 2026

FréttabréfGrenivíkurskóla3. tbl. 7. árg. - mars 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Þá er febrúarmánuður á enda runninn og við höldum inn í mars með hækkandi sól og fjölmörgum skemmtilegum verkefnum. Þar ber hæst að nefna Vorskemmtun, en sýningardagarnir í ár eru 18. og 19. mars. Undirbúningur er þegar kominn á fullt og skemmtileg vinna framundan við að koma Línu langsokki á svið.


Í mánuðinum verða einnig lögð fyrir, í fyrsta skipti, stöðu- og framvindupróf í stærðfræði og lesskilningi í 4.-10. bekk. Prófin eru hluti af svokölluðum matsferli og eru miklar vonir bundnar við að þau muni nýtast vel við að fá samræmt mat á stöðu nemenda og gefa kennurum kost á að skipuleggja nám og kennslu til samræmis við niðurstöður þeirra. Foreldrar og forráðamenn fá nánari upplýsingar um fyrirkomulag prófanna í tölvupósti.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Gosi - leiksýning í leiklistarvali Gosi - leiksýning í leiklistarvali

User uploaded image
zoom_out_map

Nemendur í leiklistarvali settu upp sýninguna Gilitrutt þann 24. febrúar sl. Sýningin var afar vel heppnuð og stóðu nemendur sig með mikilli prýði, en þau höfðu æft sig undir dyggri leiðsögn Hóbbu leikstjóra. Þau sem tóku þátt í leikritinu voru þau Alexander Smári, Ari Logi, Ísadóra Arnbjörg, Lýra Louise, Natalía Ösp og Selma Lind. Takk fyrir frábæra sýningu!

Grænfáninn Grænfáninn

User uploaded image
zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins ætlum við nú að deila með ykkur skemmtilegum verkefnahugmyndum. Þetta eru verkefni sem eru ætluð til notkunar í skólastarfi, en geta sannarlega líka nýst fjölskyldum sem vilja njóta saman gæðastunda þar sem náttúran og náttúruverndarmál eru í forgrunni.


Verkefni mánaðarins kallast ólík heimili. Í því er fjallað um hvernig við sem búum á jörðinni lifum við ólíkar aðstæður eftir því hvar við búum og eru þessar misjöfnu aðstæður fólks skoðaðar í verkefninu.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "í núvitund í mars". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Yngsta stig í útiskóla - 6. febrúar
  • 112-dagurinn - 11. febrúar
  • Yngsta stig á skautum - 23. febrúar
  • Gosi - leiklistarval - 24. febrúar

Á döfinni í febrúar Á döfinni í febrúar

  • 14. mars: Dagur stærðfræðinnar.
  • 18. mars: Vorskemmtun - fyrri sýning.
  • 19. mars: Vorskemmtun - síðari sýning.
  • 24. mars: Skíðadagur.
  • 27. mars: Síðasti kennsludagur fyrir páskafrí.
  • 29. mars: Pálmasunnudagur.

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter