Fréttabréf Síðuskóla
9. bréf - maí- skólaárið 2025-2026
Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!
Tíminn þýtur áfram og sumarið er í sjónmáli þrátt fyrir helst til lágt hitastig þessa dagana. Apríl var viðburðaríkur, við fengum ýmsa góða gesti með áhugaverðar fræðslur, héldum þemadaga og barnamenningarhátíð og enduðum mánuðinn á því að lenda í 2. sæti í undankeppni Skólahreystis sem er aldeilis góður árangur. Það var sérstaklega gaman að sjá hversu margir nemendur Síðuskóla mættu í Höllina til að hvetja sitt fólk.
Nú eru einungis rúmar fimm vikur þar til skólahaldi lýkur. Síðasti kennsludagur er 8. júní og skólaslit verða þann 9. júní. Nemendur í 1.- 9. bekk mæta á skólaslit hér í skólanum en að vanda verða nemendur 10. bekkjar útskrifaðir í Glerárkirkju. Frekari upplýsingar um fyrirkomulag skólaslita verða sendar út þegar nær dregur. Eins og jafnan er í lok skólaárs verða nokkrar breytingar á starfsmannahaldi. Þessa dagana stendur yfir skipulagning næsta skólaárs, við sendum ykkur nánari upplýsingar um leið og þær liggja fyrir.
Margt er á döfinni í maí og má finna upplýsingar um það hér neðar í fréttabréfinu. Við viljum þó sérstaklega minna á að næsta vika er í styttra lagi þar sem frí er á fimmtudaginn 14. maí, uppstigningardag, og svo er skipulagsdagur á föstudaginn 15. maí.
Bestu kveðjur úr skólanum!
Ólöf, Helga og Anna María
Síðuskóli tekur þátt í Fiðringi
Við bendum áhugasömum á að miðasala fer fram á tix.is
Strákar í hjúkrun
Strákarnir í 9. bekk fengu skemmtilega heimsókn í síðustu viku þegar Atli Dagur, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans, kynnti fjölbreytt störf í hjúkrun. Markmiðið var að sýna að hjúkrun er spennandi starf sem hentar öllum kynjum. Settar voru upp stöðvar þar sem strákarnir fengu að spreyta sig á raunverulegum verkefnum. Þeir prófuðu meðal annars hjartahnoð og heimlich til að losa aðskotahlut úr öndunarvegi. Kynningin var áhugaverð og strákarnir áhugasamir eins og sjá má hér á myndum frá heimsókninni.
Síðuskóli í Skólahreysti
Lið Síðuskóla lenti í 2. sæti í undankeppni Skólahreysti sem fram fór í Íþróttahöllinni í síðustu viku. Keppnin var æsispennandi og hnífjöfn, en aðeins tvö stig skildi á milli sigurliðsins frá Egilsstöðum og annars sætis.
Við erum afar stolt af frammistöðu okkar keppenda þeim Sóldísi, Kára, Höllu og Elíasi ásamt varamönnunum Þóru og Hermanni sem öll stóðu sig gríðarlega vel og sýndu mikla liðsheild og góðan keppnisanda.
Reiðhjól og hjálmar
Með hækkandi sól fjölgar þeim nemendum sem koma á hjóli í skólann. Við viljum því minna á eftirfarandi reglur varðandi hjólanotkun nemenda.
- Nemandi sem kemur hjólandi í skólann gerir það á ábyrgð foreldra/forráðamanna sem meta færni barnsins og aðstæður á hjólaleiðinni. Skv. 44. grein umferðarlaga mega börn yngri en níu ára ekki hjóla á akbraut án leiðsagnar og eftirlits aðila sem hefur náð 15 ára aldri. Þar af leiðandi getur skólinn ekki mælt með að þeir nemendur komi á hjóli í skólann nema í fylgd fullorðinna.
- Samkvæmt umferðarlögum er börnum yngri en 16 ára skylt að nota reiðhjólahjálm.
Ákvörðun er foreldra og á ábyrgð þeirra.
Breyttur útvistartími í maí
Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. maí. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 24.00. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum/forráðamönnum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnum sínum reglur um styttri útivistartíma.
Á döfinni
6. maí
Fiðringur, lokakeppni í Hofi
10. bekkur fer í skólaferðalag
7. maí
1. bekkur og elstu deildir Krógabóls og Síðusels vinna sameiginlegt verkefni í Síðuskóla
Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk kl. 10
10. bekkur í skólaferðalagi
8. maí
10. bekkur í skólaferðalagi
13. maí
Sultuplástur, 6. bekkur fer í heimsókn á Hælið kl. 9
14. maí
Uppstigningardagur - frídagur
15. maí
Skipulagsdagur
19. maí
Frjálsíþróttamót í Boganum - 7. bekkur
20. maí
Frjálsíþróttamót í Boganum - 6. bekkur
21. maí
Frjálsíþróttamót í Boganum - 5. bekkur
22. maí
Frjálsíþróttamót í Boganum - 4. bekkur
25. maí
Annar í hvítasunnu - frídagur
2. júní
Sameiginleg útivera hjá 1. bekk og elstu deildum Síðusels og Krógabóls
5. júní
Umhverfisdagur
8. júní
Umhverfisdagur
9. júní
Skólaslit
10., 11. og 12. júní
Skipulagsdagar