Smore logo
remove_red_eye 608
page background

Fréttamolar úr MS

31. ágúst 2023

Fréttamolar úrMS31. ágúst 2023

Gleðilegt nýtt skólaár! Gleðilegt nýtt skólaár!

zoom_out_map

Kæru nemendur.


Velkomin í skólann á haustönn 2023. Skólaárið okkar hefst með öflugri nýnemadagskrá og nóg um að vera næstu daga.


Framundan eru nokkrar dagsetningar sem þið skuluð leggja á minnið:


  • Föstudagur 1. september: Frestur til að segja sig úr áfanga til kl. 14:00. Nemandi þarf að koma á skrifstofu skólans og fylla út sérstakt eyðublað í þessum tilgangi.
  • Þriðjudagur 5. september: Nýnemaball SMS í Gamla bíó
  • 6.-8. september: Nýnemaviðtöl þar sem nýnemar geta sóst eftir að komast í nefndir SMS

Skóladagatal Menntaskólans við Sund skólaárið 2023-2024 Skóladagatal Menntaskólans við Sund skólaárið 2023-2024

open_in_new zoom_out_map

Smellið á myndina fyrir betri upplausn 👆👆👆 Smellið á myndina fyrir betri upplausn 👆👆👆

Ný heimasíða Ný heimasíða

Við höfum tekið nýja heimasíðu í gagnið þar sem þið finnið ýmsar upplýsingar um allt mögulegt í skólanum. Þarna er m.a. hægt að bóka tíma hjá námsráðgjöfum og hjúkrunarfræðingi, lesa allt um námsbrautir og námslínur, senda inn tilkynningar og fylgjast með fréttum úr skólalífinu. Einnig finnið þið starfsmannalista og hlekki á kerfi skólans.
➡️ Smellið hér til að skoða heimasíðuna ⬅️

Nýr félagsmálastjóri 🙂 Nýr félagsmálastjóri 🙂

zoom_out_map
Guðný Lilja Pálsdóttir er nýr félagsmálastjóri MS, en hún er tengiliður Skólafélagsins við stjórn skólans. Hún vinnur náið með skólafélaginu og styður nemendur í málefnum sem tengjast félagslífinu.


Guðný er með aðstöðu í Viskusteini - upplýsinga- og tæknimiðstöð og er þar við alla daga nema föstudaga. Einnig er hægt að hafa samband við Guðnýju á felagsmalastjori@msund.is​

Náms- og starfsráðgjöf Náms- og starfsráðgjöf

Í MS starfa þrír námsráðgjafar sem aðstoða nemendur við ýmis mál. Á heimasíðunni má lesa meira um þjónustuna.

open_in_new zoom_out_map
➡️ Smelltu hér til að bóka tíma hjá námsráðgjafa ⬅️

Skólahjúkrunarfræðingur 🏥 Skólahjúkrunarfræðingur 🏥

zoom_out_map

Skólahjúkrunarfræðingur Menntaskólans við Sund er Berglind Guðmundsdóttir. Nemendur geta komið við, bókað tíma rafrænt eða sent tölvupóst. Fyrirspurnir mega vera nafnlausar. Hjúkrunarfræðingur er bundinn þagnarskyldu.


Viðverutími og staðsetning

  • Viðvera: Þriðjudaga kl. 9-15 og miðvikudaga kl. 8-11.
  • Staðsetning: Undraland (innst til vinstri í Jarðsteini)

Skólahjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og svarar spurningum um ýmis heilsufarsleg vandamál varðandi:

  • Meiðsli og sjúkdóma
  • Áfengis- og eiturlyfjaneyslu
  • Reykingar
  • Kynheilbrigði
  • Tilfinningaleg og geðræn vandamál
  • Verki eða vanlíðan
  • Mataræði og hreyfing
  • Sjálfsmynd og líkamsímynd

Auk viðtalstíma fyrir nemendur mun skólahjúkrunarfræðingur

  • vera með fræðslu í skólanum sem tengist heilbrigðismálum
  • vera í samstarfi við forvarnarfulltrúa skólans við vinnu að forvörnum
  • vera innanhandar með ráðgjöf til kennara og starfsfólks
  • sjá um eftirfylgni nemenda sem eiga við veikindi eða önnur vandamál að stríða
  • finna meðferðarúrræði fyrir nemendur sem á því þurfa að halda.
➡️ Smelltu hér til að bóka tíma hjá Berglindi ⬅️

Jöfnunarstyrkur Jöfnunarstyrkur

Jöfnunarstyrkur er námsstyrkur fyrir nemendur sem búa og stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni. Umsóknarfrestur er til 15. október á haustönn og 15. febrúar á vorönn. Nánari upplýsingar á heimasíðu Menntasjóðs.

Nýnemaballið - mikilvægt Nýnemaballið - mikilvægt

  • Nýnemaballið fer fram í Gamla bíó þriðjudaginn 5. september kl. 22-1
  • Miðasala er hafin og fer fram í gegnum AUR. AUR rukkun er send á alla nemendur skólans og þeir ýmist samþykkja og kaupa miða eða hafna rukkun. Spurningar er varða miðasöluna sendist á nemendafélagið á Instagram eða á sms@msund.is
  • Nýnemaballið er eingöngu fyrir nemendur MS
  • Allir nýnemar þurfa að blása í áfengismæli við inngöngu á ballið og skrá sig þar með í edrúpottinn.
  • Skilyrði fyrir inngöngu á ballið að nýnemar blási - hringt í forsjárfólk ef nemandi neitar að blása eða mælist undir áhrifum
  • Öllum nemendum skólans boðið að blása við innganginn og skrá sig þar með í edrúpott
  • Veglegir vinningar í edrúpotti
  • Nemendur í edrúpotti mega bjóða með sér gesti á næsta ball

Njótið helgarinnar 🥰 Njótið helgarinnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter