Smore logo
remove_red_eye 131
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

8. tbl. 6. árg. - október 2025

FréttabréfGrenivíkurskóla8. tbl. 6. árg. - október 2025

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Þá er skólastarfið komið í fullan gang og nemendur fást við fjölbreytt og skemmtileg verkefni á hverjum degi. Framundan er skemmtilegur október með fallegum haustlitum og vonandi rólyndisveðri.


Ýmislegt er á döfinni í október. 7.-10. bekkur fer á árlegt grunnskólamót á Laugum í Reykjadal þann 3. október og 9. og 10. bekkur fer í heimsókn í MA, VMA og á Heimavistina þann 8. október, en það eru alltaf áhugaverðar og skemmtilegar heimsóknir. Nemendur í 7. og 8. bekk fara í skólabúðirnar að Reykjum dagana 6.-9. október og Tónlistarskóli Eyjafjarðar verður með tónleika í græna salnum þann 15. október. Þá verður árleg danssýning haldin í íþróttasalnum þann 31. október. Alltaf nóg um að vera!


Ágætt er að minnast á að nú fer skammdegið að hellast yfir og bráðum verður farið að rökkva á morgnana. Því er um að gera að foreldrar og forráðamenn skoði fatnað og skólatöskur tímanlega með tilliti til endurskinsmerkja - það eykur öryggi barnanna mikið ef þau sjást vel á leið sinni í skólann.


Að lokum bendi ég á þessa áhugaverðu grein um hvernig við getum öll stutt við lesskilning barna, hvet ykkur til að kíkja á hana.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Farsæld barna Farsæld barna

User uploaded image
zoom_out_map

Við í skólanum höldum áfram að feta okkur áfram þegar kemur að Farsældarlögunum svokölluðu. Lögin eiga að tryggja skipulag og samfellu í þjónustu fyrir börn og foreldra sem á þarf að halda, og hafa það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli fyrir farsæld barna.


Öll börn og foreldrar hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barna eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns.


Í Grenivíkurskóla er það Guðrún Árnadóttir sem sinnir hlutverki tengiliðs og ávallt hægt að hafa samband við hana, eða skólastjóra, ef óskað er upplýsinga eða ráðlegginga í tengslum við farsældarlögin og samþætta þjónustu. Þá er hún með vikulegan viðtalstíma, sem bæði nemendur skólans og forráðamenn geta nýtt sér, en hann er á mánudögum frá 11:00-12:00 í Sesseljubúð.


Hér má nálgast einblöðung þar sem hlutverk tengiliðar er útskýrt í stuttu máli.


Á heimasíðunni Farsæld barna má svo kynna sér þessi mál betur.

Fundur hjá foreldrafélaginu Fundur hjá foreldrafélaginu

Mánudagskvöldið 15. september sl. stóð foreldrafélag Grenivíkurskóla fyrir vel heppnuðum fyrirlestri í græna salnum. Alfa Jóhannsdóttir, forvarnarfulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, flutti þar fræðsluerindi fyrir foreldra sem bar yfirskriftina "Þeirra öryggi - okkar ábyrgð. Forvarnir og viðbrögð við kynferðislegu ofbeldi." Fræðslan var ætluð foreldrum barna á öllum aldri og til að mynda farið yfir netofbeldi, sem er mun algengara en við gerum okkur grein fyrir.


Eitt af því sem Alfa minnist á voru netnámskeið Barna- og fjölskyldustofu um kynferðisofbeldi og kynferðisleg hegðun barna og unglinga. Þau námskeið eru ætluð fagfólki sem starfar með börnum, en eru opin öllum á netinu sem hafa áhuga og vilja kynna sér. Námskeiðin má nálgast hér.


Fyrirlesturinn var ágætlega sóttur en í kjölfarið var svo haldinn aðalfundur foreldrafélagsins og skipað í nýja stjórn, en í henni sitja: Steinunn Adolfsdóttir, Hákon Fannar Ellertsson, Ingibjörg Valdimarsdóttir, Sigurður Gauti Benediktsson og Alicja Karkowska.

Bekkjarfundir með foreldrum Bekkjarfundir með foreldrum

User uploaded image
zoom_out_map

Mánudaginn 29. september voru haldnir bekkjarfundir með foreldrum í hverjum námshópi. Á fundunum fóru skólastjóri og umsjónarkennarar yfir nokkur atriði er varða skólastarfið og þá gafst foreldrum tækifæri á að ræða saman um málefni skólans og þeirra barna. Fundirnir voru vel heppnaðir og sköpuðust á köflum líflegar og vonandi gagnlegar umræður á þeim.


Eitt af því sem rætt var á fundunum voru viðmið um heimalestur og viðbrögð og úrræði þegar illa gengur með hann. Við minnum enn og aftur á mikilvægi heimalestrar og hvetjum öll heimili til að gera hann að föstum lið í dagskipulagi nemenda. Hér má sjá viðmiðin sem unnið er út frá í Grenivíkurskóla og þau viðbrögð sem við í skólanum munum vinna út frá þegar heimalesturinn gengur illa.

Útivistartími og umferðaröryggi Útivistartími og umferðaröryggi

User uploaded image
zoom_out_map

Þann 1. september sl. breyttust reglur um útivistartíma barna og unglinga. 12 ára börn og yngri mega lengst vera úti til kl. 20:00, en 13-16 ára börn mega vera úti til kl. 22:00. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn standi saman um að virða útivistarreglurnar.


Þá er tilvalið að fara vel yfir ýmis atriði er varða umferðaröryggi, t.d. á leið í og úr skóla. Við munum fara yfir þessi mál með nemendum hér í skólanum, en hvetjum ykkur einnig til þess að ræða þessi mál heima við. Ýmsar upplýsingar og góð ráð varðandi umferðaröryggi er að finna á þessari síðu.

Grænfáninn Grænfáninn

User uploaded image
zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins í vetur verður sjónum meðal annars beint að hinum ýmsu hugtökum sem varða umhverfisnefnd.


Hugtak októbermánaðar er náttúruauðlindir. Náttúruauðlindir geta verið afar margar og ólíkar en eiga það sameiginlegt að þær eru eitthvað sem er í náttúrunni sem við mennirnir getum nýtt okkur og þurfum jafnvel á að halda til að lifa af.


Hér má nálgast frekari upplýsingar um náttúruauðlindir.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "jákvæður október". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • 5.-7. bekkur á Húna II - 4. september
  • Sameiginlegar hreyfistundir í september - útileikir
  • Yngsta stig - ýmsar myndir frá september

Á döfinni í október Á döfinni í október

  • 3. október: 7.-10. bekkur fer á grunnskólamót á Laugum í Reykjadal.
  • 6.-9. október: 7. og 8. bekkur í skólabúðunum á Reykjum.
  • 8. október: 9. og 10. bekkur fer í heimsókn í MA, VMA og á heimavistina.
  • 13. október: Grenivíkurskóla 44 ára!
  • 15. október: Tónleikar hjá nemendum í Tónlistarskóla Eyjafjarðar kl. 8:20.
  • 22. október: Bleikur dagur.
  • 29. október: Búningadagur í tilefni af Hrekkjavöku.
  • 31. október: Danssýning kl. 13:00.

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter