Smore logo
remove_red_eye 538
page background

Vikulokin

Fyrstu skólalokunarviku að ljúka - 18.03.2020

VikulokinFyrstu skólalokunarviku að ljúka - 18.03.2020
*Mynd fyrir athygli ;)
zoom_out_map

Þið eruð frábær!!!

Nú er fyrstu viku okkar í kollvörpuðum skóla að ljúka og ég með gæsahúð. Ekki í fyrsta skipti þessa vikuna!


Nemendur og kennarar skólans hafa einfaldlega farið á kostum í vikunni og aðlagað sig breyttum aðstæðum á ljóshraða. Þvílíkur dugnaður, lausnamiðun, tæknikunnátta, frumkvæði... Þið eruð best! Þess vegna er þessi gæsahúð ;)


Ég hlakka til að fylgjast með náminu og kennslunni áfram í þessum breyttu aðstæðum sem við erum lent í. Þetta er langhlaup og mikilvægt að láta ekki deigan síga.


Ykkur nemendur hvet ég til að nota allar þær leiðir sem bjóðast til að vera í virkum samskiptum við félaga ykkar og vini. Sem betur fer er enn hægt að spjalla aðeins í tímum en einn möguleikinn í Bláa hnettinum er að starta einkasamtali við samnemanda.


Við lögðum upp í þessa vegferð með þrjú megin markmið; að halda takti, virkni og félagslegum samskiptum. Höldum áfram að hafa þessi markmið að leiðarljósi.


Skóli er svo mikið meira en námsgreinar og í þeim aðstæðum sem nú hafa skapast reynir enn meira á að við séum skapandi og lausnamiðuð og finnum leiðir til að vera virk félagslega. Tæknin til þess er til staðar og það er okkar allra að finna leiðir til að nota hana.


Ég óska ykkur góðrar helgi.


Lilja

Engin kennsla miðvikudaginn 25. mars Engin kennsla miðvikudaginn 25. mars

Ákveðið hefur verið að fella niður kennslustundir miðvikudaginn 25. mars. Það reynir talsvert á nemendur að halda dampi í breyttum aðstæðum og einnig þurfa kennarar aukinn tíma til að endurskoða kennsluhætti sína. Þessi dagur er því hugsaður fyrir nemendur til að hlaða batteríin og fyrir kennara til undirbúnings kennslu.
zoom_out_map

Hvernig líður ykkur????

Nú hafa Guðný Björg og Karen sett upp Nemendaþjónustu VA. Þar sem við viljum hafa puttann á púlsinum og sinna nemendum eins vel og okkur er unnt þá viljum við biðja alla nemendur um að svara þessari stuttu könnun.
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter