Smore logo
remove_red_eye 120
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

5. tbl. 7. árg. - maí 2026

FréttabréfGrenivíkurskóla5. tbl. 7. árg. - maí 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Þá styttist heldur betur í annan endann á þessu skólaári og einungis rétt rúmur mánuður í skólaslit. Þó er nóg um að vera þær vikur sem eftir lifa og fjölbreytt verkefni og alls konar uppbrot framundan.


Líkt og margir tóku eftir var tímabundin staða skólastjóra við Grenivíkurskóla á næsta skólaári auglýst á dögunum. Helgast það af því að undirritaður er að fara í námsleyfi og verður því ekki við störf skólaárið 2026-2027. Tvær umsóknir bárust um stöðuna og að endingu var Aníta Jónsdóttir ráðin til starfsins. Aníta er reynslumikill kennari sem einnig hefur starfað sem stjórnandi og náms- og starfsráðgjafi. Við hlökkum til samstarfsins og ég treysti því að skólasamfélagið taki hlýlega á móti henni.


En sem fyrr segir er nóg framundan áður en skóla verður slitið. Nú í upphafi mánaðar fara nemendur á unglingastigi í Samfés-ferð, í næstu viku eru samskóladagar á miðstigi og unglingastigi og síðar í mánuðinum er svo komið að Runólfi, kveðjuhátíð 10. bekkinga. Við ljúkum svo skólaárinu með útivistardögum og skólaslitum í upphafi júnímánaðar.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

User uploaded image
zoom_out_map

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk var haldin í Grenivíkurskóla þann 21. apríl síðastliðinn, en nemendur hafa æft sig reglulega í allan vetur undir dyggri leiðsögn Hólmfríðar Björnsdóttur. Að þessu sinni var keppnin með aðeins breyttu sniði, því einungis tveir nemendur eru í 7. bekk, tvíburarnir Trausti og Tristan. Það voru því nemendur í 10. bekk sem hjálpuðu til og lásu ljóð og sögur ásamt þeim bræðrum og úr varð hin besta upplestrarhátíð.


Lokahátíð keppninnar fór svo fram í Tjarnarborg í Ólafsfirði þann 28. apríl og voru þeir Trausti og Tristan fulltrúar Grenivíkurskóla í keppninni, en auk fulltrúa Grenivíkurskóla tóku þar þátt lesarar frá Þelamerkurskóla, Hrafnagilsskóla, Dalvíkurskóla og Grunnskóla Fjallabyggðar. Keppendur stóðu sig allir með mikilli prýði og svo fór að Trausti Loki hreppti annað sætið. Við óskum þeim bræðrum, og Hóbbu kennara, til hamingju með frábæran árangur!

Grænfáninn Grænfáninn

User uploaded image
zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins ætlum við nú að deila með ykkur skemmtilegum verkefnahugmyndum. Þetta eru verkefni sem eru ætluð til notkunar í skólastarfi, en geta sannarlega líka nýst fjölskyldum sem vilja njóta saman gæðastunda þar sem náttúran og náttúruverndarmál eru í forgrunni.


Verkefni mánaðarins kallast hamingja og neysla. Markmið verkefnisins er að hvetja fólk til umhugsunar og umræðu um tengsl á milli neyslu og hamingju.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "virkur apríl". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • 1.-2. bekkur á leiksýningu - 10. apríl
  • Nemendur læra á langspil í tónmennt - 13. apríl
  • Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk - 21. og 28. apríl
  • Yngsta stig skoðar fiska - 29. apríl

Á döfinni í maí Á döfinni í maí

  • 1. maí: Verkalýðsdagurinn - frí.
  • 4. maí: Samskóladagur í Valsárskóla - 5.-7. bekkur.
  • 6. maí: Samskóladagur í Þelamerkurskóla - 8.-10. bekkur.
  • 13. maí: Tónleikar í skólanum - betur auglýst síðar!
  • 14. maí: Uppstigningardagur - frí.
  • 15. maí: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
  • 24. maí: Hvítasunnudagur.
  • 25. maí: Annar í hvítasunnu - frí.

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter