Smore logo
remove_red_eye 682
page background

Fréttabréf Síðuskóla

3. bréf - nóvember - skólaárið 2025-2026

FréttabréfSíðuskóla3. bréf - nóvember - skólaárið 2025-2026
User uploaded image
zoom_out_map

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!

Þá er bleikur október að baki og við höldum áfram inn í skólaárið. Næsta stóra verkefni hjá okkur er árshátíð skólans sem verður dagana 13. og 14. nóvember. Þessa dagana fara fram stífar æfingar fyrir árshátíðina og í næstu viku hlökkum við til að fá ykkur í skólann og sýna afraksturinn.

Hér neðar í fréttabréfinu má sjá hvernig skipulagið verður þessa daga. Við viljum taka fram að á þessum dögum eru þrír skóladagar á tveimur og tveir af þeim skertir nemendadagar. Nemendur koma þá til með að mæta á óhefðbundnum tíma í skólann og því mikilvægt að skoða skipulagið og tímasetningar vel.

Mánudaginn 17. nóvember er skipulagsdagur, Frístund er opin allan daginn fyrir þá sem þar eru skráðir. Þar sem Dag íslenskrar tungu þann 16. nóvember ber upp á sunnudegi verður Upphátt sem er upplestrarkeppni í 7. bekk og Litla upplestarkeppnin í 4. bekk sett þriðjudaginn 18. nóvember.


Við hvetjum nemendur til að ganga í skólann og nota endurskinsmerki. Ef nauðsynlegt er að keyra börnin í skólann þá biðjum við ykkur að fara á neðra hringtorgið. Þar komast nemendur inn á skólalóðina og geta gengið inn í sínar forstofur.


Með bestu kveðju úr skólanum og við hittumst hress á árshátíð!

Ólöf, Helga og Anna María

User uploaded image
zoom_out_map

Á döfinni

13. og 14. nóvember

Árshátíð

16. nóvember

Dagur íslenskrar tungu

17. nóvember

Skipulagsdagur, opið í Frístund allan daginn fyrir þá sem eru skráðir

18. nóvember

Upphátt upplestrarkeppnin í 7. bekk og Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk verða settar í tilefni af degi íslenskrar tungu.

20. nóvember

Dagur mannréttinda barna

User uploaded image
zoom_out_map

Árshátíð Síðuskóla 2025 - skipulag

Það styttist í árshátíð Síðuskóla og hér kemur skipulag fyrir árshátíðina sem verður haldin fimmtudaginn 13. nóvember og föstudaginn 14. nóvember. Nemendur í 10. bekk verða í aðalhlutverki með árshátíðaratriði sitt sem er leikritið Lísa í Undralandi sem sýnt er á öllum sýningum.
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Annual celebration at Síðuskóli 2025

Our annual celebration will be held Thursday 13th of November and Friday 14th of November

Students in the tenth grade will be in a leading role, showing the play Alice in Wonderland.

Below is the itinerary for these days ahead.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Skautaferð 6. bekkjar

Í vikunni sem leið skellti 6. bekkur sér á skauta í Skautahöllinni. Það voru verðlaun fyrir að vera í 1. sæti í Göngum í skólann.

Síðuskóli stóð sig sérstaklega vel í ár og var þetta besti árangur skólans undanfarin ár þar sem 91% nýttu sér virkan ferðamáta.

Hörð barátta var um fyrstu sætin en þau enduðu á eftirfarandi vegu:

3. sæti - 4. bekkur með 97% virkan ferðamáta

2. sæti - 5. bekkur með 98% virkan ferðamáta

1. ‎sæti - 6. bekkur með 99% virkan ferðamáta

Á myndunum má sjá nemendur njóta sín á svellinu í litríkri ljósadýrð.


Fleiri myndir frá skautasvellinu.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Starfsáætlun Síðuskóla

Starfsáætlun Síðuskóla fyrir skólaárið 2025-2026 er að finna á heimasíðu skólans. Grunnskólum ber að birta stefnu sína með tvennum hætti eins og grunnskólalög og aðalnámskrá grunnskóla gera ráð fyrir. Annars vegar er skólanámskrá og hins vegar starfsáætlun skólans. Starfsáætlunin er unnin í samræmi við lög og reglugerðir, aðalnámskrá og stefnu Akureyrarbæjar í skólamálum. Í henni eru ýmsar upplýsingar um skólann sem eiga erindi við skólasamfélagið og þá aðila sem tengjast skólastarfinu.



Starfsáætlun Síðuskóla skólaárið 2025-2026

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Síðuskóli - hnetulaus skóli

Við viljum minna á að Síðuskóli er hnetulaus skóli. Hér eru nemendur sem eru með bráðaofnæmi fyrir hnetum og mikilvægt er að við öll tökum tillit til þeirra.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Síðuskóli Akureyri
Síðuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter