Smore logo
remove_red_eye 385
page background

Fréttamolar úr MS

21.03.2025

Fréttamolarúr MS21.03.2025
zoom_out_map
Tíminn líður hratt í MS enda alltaf nóg um að vera. Árshátíðin þann 6. mars gekk vel og um 45% ballgesta tóku þátt í edrúpotti sem er ánægjulegt. Foreldraráð styrkti edrúpottinn með vinningum sem féllu vel í kramið.


Lið MS komst áfram í undanúrslit í Morfís þann 12. mars og svo frumsýndi leikfélagið Aladín á miðvikudaginn. Sýningin er stórkostleg skemmtun og hvetjum við öll til að mæta í leikhús!


Framundan er opið hús í MS og svo kosningavika SMS en þar geta öll sem eru skráð í skólafélagið boðið sig fram til fjölbreyttra starfa. Nánari upplýsingar hér neðar.

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

25.-26. mars: Matsdagar - dagskrá birtist á heimasíðunni www.msund.is á mánudag

26. mars: Opið hús í MS

31. mars-4. apríl: Kosningavika SMS

3. apríl: Miðannarmat birtist í Innu

12.-21. apríl: Páskafrí

28.-30. apríl: Umhverfisvika

Opið hús í MS - viltu vera með? Opið hús í MS - viltu vera með?

Það er komið að opnu húsi í MS þar sem við bjóðum 10. bekkinga velkomna í heimsókn og sýnum þeim skólann okkar. Opna húsið verður miðvikudaginn 26. mars kl. 16-18.


Okkur vantar hjálp nemenda í þetta verkefni, MS bolur og pizza í boði! Skráning hér: https://forms.office.com/e/4g6CME1UdM


Hlutverk ykkar verður að ganga um skólann með gesti í litlum hópum, taka vel á móti þeim og svo vantar nokkur til að baka vöfflur 🥳🧇

Aladín - nokkur sæti laus sýningar á sunnudag, mánudag og þriðjudag! 🎭 Aladín - nokkur sæti laus sýningar á sunnudag, mánudag og þriðjudag! 🎭

open_in_new zoom_out_map
Miðasala hér
Viðburður á FACEBOOK

Kosningar SMS Kosningar SMS

Kosningavika SMS verður 31. mars - 3. apríl. Skila þarf framboðum fyrir föstudaginn 28. mars og verða nánari leiðbeiningar um fyrirkomulag framboða og kosninga sendar nemendum á næstu dögum.


Öll sem eru meðlimir í skólafélaginu geta boðið sig fram og hafa kosningarétt. Við hvetjum áhugasöm að bjóða sig fram og vera með í því að móta skemmtilegt félagslíf. Hér eru nánari upplýsingar um skólafélagið og hægt að sjá skipan í ráð og nefndir síðustu ár: Skólafélag Menntaskólans við Sund - SMS | Menntaskólinn við Sund

Njótið helgarinnar 🥰 Njótið helgarinnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter