Smore logo
remove_red_eye 151
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

9. tbl. 5. árg. - nóvember 2024

FréttabréfGrenivíkurskóla9. tbl. 5. árg. - nóvember 2024

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

zoom_out_map

Skólaárið flýgur áfram og það verða komin jól áður en við vitum af! Framundan er myrkasti tími ársins og þá er um að gera að leita allra leiða til að létta lundina og lýsa upp skammdegið. Við minnum á að gott er að skoða fatnað og töskur barnanna með tilliti til endurskinsmerkja, þau gera gæfumun.


Október var fjölbreyttur og skemmtilegur hjá okkur, á dagskrá voru t.d. tónleikar hjá Tónlistarskóla Eyjafjarðar, samskóladagur hjá miðstigi, þemavika, hrekkjavaka og ótalmargt fleira. Myndir frá völdum viðburðum og almennt úr skólalífinu má nálgast neðar í fréttabréfinu.


Nóvember verður að sama skapi viðburðaríkur. Ber fyrst að nefna foreldraviðtöl, en þau fara fram þriðjudaginn 12. nóvember. Mánudaginn 11. nóvember er starfsdagur og frí hjá nemendum. Frekari upplýsingar og skráning í foreldraviðtöl berast ykkur í tölvupósti á næstunni.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Nemendaráð 2024-2025 Nemendaráð 2024-2025

zoom_out_map

Nemendur á unglingastigi og miðstigi kusu fulltrúa í nemendaráð fyrir skólaárið 2024-2025 um daginn. Á unglingastigi voru kosnir þrír fulltrúar, en tveir á miðstigi. Nemendaráðið er að þessu sinni skipað eftirtöldum nemendum:


Hilmar Mikael Þorsteinsson - 10. bekkur

Móeiður Alma Gísladóttir - 10. bekkur

Ágúst Hrafn Guðjónsson - 8. bekkur

Angantýr Magni Guðmundsson - 7. bekkur

Lilja Katrín Harðardóttir - 5. bekkur


Við óskum þeim til hamingju með kjörið og höfum fulla trú á því að þau sinni störfum sínum af krafti í vetur.

Grænfáninn Grænfáninn

zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins í vetur verður sjónum meðal annars beint að hinum ýmsu hugtökum sem varða umhverfisnefnd.


Hugtak nóvembermánaðar er vistspor. Vistspor er aðferð til að mæla hve mikið maðurinn hefur gengið á auðlindir Jarðar, s.s. hversu hratt og mikið við nýtum náttúrulegar auðlindir Jarðar og búum til úrgang borið saman við það hversu hratt og mikið náttúran getur endurnýjað sínar auðlindir og tekið við úrganginum.


Hér má lesa meira um vistspor.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "nýjar leiðir í nóvember". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Tónleikar TE - 17. október 2024
  • Bleikur dagur - 23. október 2024
  • Danssýning - 25. október 2024
  • Skólaheimsókn elsta árgangs á Krummafæti - 30. október 2024
  • 9. og 10. bekkur í heimsókn í VMA, MA og Heimavistina - 30. október 2024
  • Hrekkjavaka - búningadagur - 31. október 2024

Á döfinni í nóvember Á döfinni í nóvember

  • 8. nóvember: Baráttudagur gegn einelti.
  • 11. nóvember: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
  • 12. nóvember: Viðtalsdagur.
  • 13. nóvember: Valgreinar - 2. lota hefst.
  • 16. nóvember: Dagur íslenskrar tungu.
  • 20. nóvember: Dagur mannréttinda barna.

Matseðill Matseðill

zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter