Fréttabréf Grenivíkurskóla
7. tbl. 7. árg. - september 2026
Kæra skólasamfélag
Skólaárið 2026-2027 hófst með skólasetningu á skólalóðinni í blíðskaparveðri mánudaginn 24. ágúst. Það var mjög ánægjulegt að hitta nemendur og við þökkum öllum þeim sem komu og voru viðstödd kærlega fyrir komuna.
Líkt og undanfarin ár verða í grunninn þrír námshópar í skólanum í vetur, einn á hverju stigi (yngsta stig, miðstig og unglingastig).
- 1.-4. bekkur er saman í námshóp, kennarar eru Sarah, sem er umsjónarkennari, og Gabríela Sól. Emilia er stuðningsfulltrúi hópsins.
- 5.-7. bekkur er saman í námshóp. Kennarar eru Hólmfríður, sem er umsjónarkennari og Inga Rakel.
- 8.-10. bekkur er saman í námshóp. Kennarar eru Edda, Inga María, sem er umsjónarkennari og Oddný.
Guðrún, kennari ásamt Anítu, skólastjóra, mynda svo stuðningsteymi sem starfar þvert á námshópana þrjá.
Kolbrún Hlín sér um hand- og myndmenntarkennslu, Hólmfríður kennir
smíðar, Steinunn sér um íþrótta- og sundkennslu.
Skólaliðar eru Alicja og Brynhildur Jóna og starfsfólk í mötuneyti eru Óli Rúnar og Stefanie.
Skólahjúkrunarfræðingur er Kristbjörg Heiður og Emilia sér um Frístund.
Við vekjum athygli á því að þó að hópunum sé skipt í þessa grunnnámshópa, þá eru nemendur einnig í smærri hópum til dæmis í sundi, list- og verkgreinum og íþróttum. Þá hefur hvert kennarateymi sveigjanleika til að skipuleggja hópaskiptingu í bóklegum greinum eftir þörfum nemenda og viðfangsefnum hverju sinni. Áfram verður áhersla á einstaklingsmiðað nám og teymiskennslu.
Skipulag skóladagsins er samkvæmt venju, hefst flesta daga á lestri og hreyfistund og morgunmat. Á þriðjudögum er samverustund og gæðahringir eru á fimmtudögum. Skóla lýkur hjá öllum nemendum kl. 14:00 alla daga. Frístund er opin nemendum í 1.-4. bekk frá kl. 14:00-16:00 alla virka daga nema föstudaga. Emilia Bela er umsjónarmaður Frístundar.
Í Grenivíkurskóla er lögð rík áhersla á gott samstarf heimila og skóla sem er lykill að velferð, vellíðan og árangri nemenda. Farsælt samstarf byggir á trausti, góðum og lausnamiðuðum samskiptum og umburðarlyndi. Það er ósk okkar að það verði leiðarljós okkar í vetur, þannig að við getum öll unnið saman að velferð og hagsmunum nemenda.
Við biðjum foreldra og forráðamenn að hafa samband við skólann ef eitthvað er óljóst, eða eitthvað kemur upp. Þið eruð að sjálfsögðu líka alltaf velkomin að kíkja í heimsókn til okkar.
Af krafti og með gleði og bjartsýni að leiðarljósi siglum við inn í komandi skólaár.
Góð kveðja úr skólanum,
Aníta Jónsdóttir,
skólastjóri Grenivíkurskóla
Skólatöskugjafir
Líkt og undanfarin ár færir Grýtubakkahreppur nemendum í 1. bekk skólatösku að gjöf við upphaf skólagöngu þeirra. Í ár hefja þrír nemendur skólagöngu sína í 1. bekk, Dobroslav Kasich, Mía Teresa Rivera Tómasdóttir og Wincenty Tadeusz Kwiryn. Við bjóðum þau velkomin og óskum þeim velfarnaðar í leik og starfi í skólanum á næstu árum. Vonandi reynast skólatöskurnar sem þau völdu sér þeim vel!
Útivistardagar
Á útivistardegi á mánudeginum var gengið að Höfðanum, yngsta stig fann sér þar góðan stað til að fara í leiki og mið- og unglingastig gekk rösklega upp Höfðann eftir tveimur mismunandi leiðum. Gönguleiðirnar eru skemmtilegar og útsýnið af toppnum engu líkt.
Við brugðum okkur af bæ á þriðjudaginn og keyrðum til Húsavíkur í heimsókn á Hvalasafnið og í Skrúðgarðinn þeirra, sem er afar fallegur staður. Þar borðuðum við nesti og nemendur léku sér við lítinn læk sem hafði mikið aðdráttarafl.
Grænfáninn
Grænfáninn hefur það hlutverk að leiða skóla í faglegri og árangursríkri vinnu með sjálfbærni í víðum skilningi að leiðarljósi. Það er gert í sterkum tengslum við áherslur aðalnámskrár leik-, grunn- og framhaldsskóla og Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Verkefnið hefur verið nefnt af Sameinuðu Þjóðunum sem helsta innleiðingartæki menntunar til sjálfbærni í heiminum.
Heilsueflandi skóli
Grenivíkurskóli hefur frá árinu 2012 verið Heilsueflandi skóli. Einkum hefur verið lögð áhersla á hreyfingu, góða næringu og heilsusamlegt líferni yfirleitt. Nemendur fá kjarngóðan morgunmat í skólanum, gönguferðir um nágrenni skólans eru hluti af skólastarfinu og skólinn tekur þátt í verkefninu Göngum í skólann svo dæmi séu tekin.
Við hvetjum alla til að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni og huga að góðum lífsháttum - næringu, hreyfingu og svefni.
Myndir úr skólastarfinu
Á döfinni í september
- 3. september: Miðstig í siglingu með Húna ll
- 8. september: Dagur læsis
- 9. september: Göngum í skólann hefst
- 16. september: Dagur íslenskrar náttúru.
- 22. september: Samskóladagur í Valsárskóla fyrir 8.-10. bekk.
- 22. september: Samskóladagur í Þelamerkurskóla fyrir 5.-7. bekk.
- 25. september: Starfsdagur. Frí hjá nemendum.
- 26. september: Evrópski tungumáladagurinn
- 30. september: Heimsókn í VMA og MA
Matseðill
Útgefandi: Grenivíkurskóli
Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla
Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is
Sími: 414-5413
Facebook: Grenivíkurskóli