Smore logo
remove_red_eye 542
page background

Fréttabréf Síðuskóla

5. bréf - desember- skólaárið 2023-2024

Fréttabréf Síðuskóla 5. bréf - desember- skólaárið 2023-2024
zoom_out_map

Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!

Nú er desembermánuður genginn í garð með allri sinni ljósadýrð og hlýleika. Margs konar uppbrot verður á skólastarfinu í desember þar sem við munum meðal annars föndra, syngja saman jólalög á söngsal, heimsækja Minjasafnið, spurningakeppni og ýmislegt fleira. Jólasöngsalur verður á fimmtudaginn og það væri gaman ef allir koma í einhverju jólalegu þann dag.

Eins og allir vita er árshátíðin búin og hún var okkur öllum til sóma. Við getum verið stolt af flottu krökkunum okkar sem stóðu sig af stakri prýði, hvort sem um var að ræða undirbúning, leikatriði eða frágang.

Litlu jólin verða á sínum stað þann 21. desember. Fyrirkomulag litlu jólanna má sjá neðar í póstinum. Skólinn hefst svo aftur eftir jólaleyfi miðvikudaginn 3. janúar 2024 samkvæmt stundaskrá.

Nú þegar farið er að dimma er mjög mikilvægt að börnin og reyndar við öll notum endurskinsmerki eða endurskinsvesti þegar við erum í umferðinni. Í myrkri sjást gangandi og hjólandi vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu.


Starfsfólk Síðuskóla óskar nemendum og foreldrum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári um leið og við þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Með hækkandi sól tökumst við á við ný verkefni, leiðarljós okkar er að vinna saman, ná árangri og gleðjast!


Með góðri kveðju!

Ólöf, Malli og Helga

Litlu jólin Litlu jólin

zoom_out_map

Litlu jólin verða þann 21. desember. Það koma allir í skólann kl. 9.00 og fara heim um kl. 11.00. Fyrst verður hópnum skipt í salinn þar sem nemendur í leiklistarvali á miðstigi sýna jólaleikrit og heimastofur en eftir það hittast svo allir í íþróttasalnum og ganga saman í kringum jólatréð.

Frístund er opin þennan dag frá kl. 7.45-9.00 og 11.00-16.15 fyrir þá sem þar eru skráðir.

Jólaföndur

Á miðvikudaginn í síðustu viku var jólaföndurdagur hjá okkur og föndruðu nemendur og starfsfólk mikið af fallegu jólaskrauti. Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum.
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Síðustu vikur hefur verið nóg um að vera í skólanum eins og þessar myndir sýna. Síðustu vikur hefur verið nóg um að vera í skólanum eins og þessar myndir sýna.

zoom_out_map
Gunni og Felix komu og voru með fyrirlestur.
zoom_out_map
"Skáld í skólum" verkefnið kom í Síðuskóla.
zoom_out_map
Það var fjör við vígslu nýju skólalóðarinnar.
zoom_out_map

Rýmingaræfingin var ansi raunveruleg í þetta skipti þar sem "gervi" eldur var kveiktur í forstofu á A gangi.

zoom_out_map

Árshátíðin heppnaðist einstaklega vel í ár, hér má sjá leikhóp 10. bekkjar eftir vel heppnaða sýningu á Latabæ.

zoom_out_map

Starfsfólk fékk, að lokinni rýmingaræfingu, að prófa að slökkva eld.

zoom_out_map

Á döfinni

6. desember

Bjarni Fritz kemur og les fyrir 2.-7. bekk

7. desember

Jólasöngsalur - nemendur og starfsfólk klæðast einhverju jólalegu. Jólamatur í hádeginu

20. desember

Spurningakeppni í unglingadeild

21. desember

Litlu jól - jólafrí nemenda hefst

Síðuskóli Akureyri
Síðuskóli is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter