Smore logo
remove_red_eye 549
page background
Logo

Tæknótíðindi

7. janúar 2026

Tæknótíðindi7. janúar 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 8. janúar - Kynningafundur fyrir nýnema og aðstandendur
  • 9. janúar - Lokadagur til að skrá sig úr áfanga
  • 13. janúar - Klúbbakvöld á Háteisgvegi
  • 16. janúar - Skráning til útskriftar
  • 20. janúar - Klúbbakvöld á Háteigsvegi
  • 21. janúar - Átótjúnið - Söngkeppni Tækniskólans
SKÓLADAGATAL

Velkomin á vorönn 2026 í Tækniskólanum Velkomin á vorönn 2026 í Tækniskólanum

User uploaded image
zoom_out_map
Skólastarf á vorönn 2026 er formlega hafið og kennsla hófst samkvæmt stundatöflu 5. janúar. Við bendum nemendum á vefsíðu Tækniskólans fyrir upplýsingar um helstu stoðþjónustu við nemendur s.s. námsráðgjöf, námsver, aukatíma í tilteknum greinum og þjónustu sálfræðings svo eitthvað sé nefnt. Upp­lýs­ingar um bækur og námsgögn má finna á kennsluvefnum INNU.


Við bendum á upplýsingasíðu um upphaf annar og hvetjum nem­endur til að kynna sér efni síðunnar en þar má finna ýmsar upp­lýs­ingar um skólann og skóla­starfið.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Kynningarfundur fyrir nýnema og aðstandendur 8. janúar Kynningarfundur fyrir nýnema og aðstandendur 8. janúar

User uploaded image
zoom_out_map

Á morgun fimmtudaginn 8. janúar klukkan 17.00 verður boðið upp á fjarkynn­ingu fyrir nýnema í Tækni­skól­anum og aðstand­endur þeirra.


Á kynn­ing­unni munu Hildur Ingvars­dóttir skóla­meistari og Guðrún Randalín aðstoðarskóla­meistari segja frá starf­sem­i skólans, þeirri þjón­ustu sem er í boði, nám­svefnum Innu, félags­lífi og fleiru.

Hlekkur á fjarkynninguna er hér að neðan.

Hlekkur á fjarkynningu

Kvikmyndaáfangar í boði nú á vorönn Kvikmyndaáfangar í boði nú á vorönn

User uploaded image
zoom_out_map

Nemendum Tækniskólans býðst einstakt tækifæri á vorönn 2026 með þátttöku í valáföngum í kvikmyndalæsi og heimildamyndagerð. Um er að ræða tvo 5 eininga áfanga sem kenndir verða yfir alla önnina. Leikstjórinn Ari Allansson, sem jafnframt er doktor í kvikmyndafræðum, mun kenna áfangana og mun kennslan fara fram í Tækniskólanum á Háteigsvegi.


Ítarlega frétt um málið og upplýsingar um skráningu má finna á vefsíðu skólans og einnig með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Reiknað er með að áfangarnir hefjist föstudaginn 16. og mánudaginn 19. janúar.

Nánari upplýsingar um kvikmyndaáfanga og skráning
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Átótjúnið - söngkeppni Tækniskólans 2026 Átótjúnið - söngkeppni Tækniskólans 2026

Átótjúnið, söngkeppni Tækniskólans, fer fram í Mengi miðvikudaginn 21. janúar. Hljómsveit spilar undir hjá keppendum sem munu jafnframt fá tækifæri til þess að æfa lagið sitt með hljómsveitinni.

Sigurvegari Átótjúnsins keppir svo fyrir hönd Tækniskólans í Söngkeppni framhaldsskólanna 2026.


Nemendur sem ætla að taka þátt geta skráð sig með því að smella á hnappinn hér að neðan eða nota QR kóðann á myndinni en skráningu lýkur laugardaginn 17. janúar kl. 16:00.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Skráning í söngkeppnina

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter