Tæknótíðindi
7. janúar 2026
Dagsetningar framundan
- 8. janúar - Kynningafundur fyrir nýnema og aðstandendur
- 9. janúar - Lokadagur til að skrá sig úr áfanga
- 13. janúar - Klúbbakvöld á Háteisgvegi
- 16. janúar - Skráning til útskriftar
- 20. janúar - Klúbbakvöld á Háteigsvegi
- 21. janúar - Átótjúnið - Söngkeppni Tækniskólans
Velkomin á vorönn 2026 í Tækniskólanum
Við bendum á upplýsingasíðu um upphaf annar og hvetjum nemendur til að kynna sér efni síðunnar en þar má finna ýmsar upplýsingar um skólann og skólastarfið.
Kynningarfundur fyrir nýnema og aðstandendur 8. janúar
Á morgun fimmtudaginn 8. janúar klukkan 17.00 verður boðið upp á fjarkynningu fyrir nýnema í Tækniskólanum og aðstandendur þeirra.
Á kynningunni munu Hildur Ingvarsdóttir skólameistari og Guðrún Randalín aðstoðarskólameistari segja frá starfsemi skólans, þeirri þjónustu sem er í boði, námsvefnum Innu, félagslífi og fleiru.
Hlekkur á fjarkynninguna er hér að neðan.
Kvikmyndaáfangar í boði nú á vorönn
Nemendum Tækniskólans býðst einstakt tækifæri á vorönn 2026 með þátttöku í valáföngum í kvikmyndalæsi og heimildamyndagerð. Um er að ræða tvo 5 eininga áfanga sem kenndir verða yfir alla önnina. Leikstjórinn Ari Allansson, sem jafnframt er doktor í kvikmyndafræðum, mun kenna áfangana og mun kennslan fara fram í Tækniskólanum á Háteigsvegi.
Ítarlega frétt um málið og upplýsingar um skráningu má finna á vefsíðu skólans og einnig með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Reiknað er með að áfangarnir hefjist föstudaginn 16. og mánudaginn 19. janúar.
Átótjúnið - söngkeppni Tækniskólans 2026
Átótjúnið, söngkeppni Tækniskólans, fer fram í Mengi miðvikudaginn 21. janúar. Hljómsveit spilar undir hjá keppendum sem munu jafnframt fá tækifæri til þess að æfa lagið sitt með hljómsveitinni.
Sigurvegari Átótjúnsins keppir svo fyrir hönd Tækniskólans í Söngkeppni framhaldsskólanna 2026.
Nemendur sem ætla að taka þátt geta skráð sig með því að smella á hnappinn hér að neðan eða nota QR kóðann á myndinni en skráningu lýkur laugardaginn 17. janúar kl. 16:00.