Febrúar
2. tbl 16. árg. 1. febrúar 2025
Kæru foreldrar og forsjáraðilar
Í þessu fréttabréfi má sjá yfirlit yfir það helsta sem er framundan í þessum mánuði. Febrúar er fremur stuttur mánuður þar sem hann telur aðeins 28 daga en myrkrið heldur áfram að hopa og sólin hækkar á lofti, sem gerir okkur gott. Það getur verið kalt þó birtan sé meiri svo það er mikilvægt að börnin klæði sig vel eftir veðri svo hægt sé að njóta útiverunnar betur.
Útvistardagur er áætlaður 10.febrúar og planið að við öll förum í Hlíðarfjall til að læra og leika.
Kær kveðja frá skólastjórnendum Naustaskóla
Á döfinni
3. febrúar Félak - vímuefna fræðsla 10. bekkur.
6. febrúar Mathöll Naustaskóla
6. febrúar Dagur leikskólans
7. febrúar Þorgrímur Þráinsson fræðsla fyrir 5. - 10.bekk.
7. febrúar Dagur tónlistarskólans
10. febrúar Útivistardagur
11. febrúar dagur íslenska táknmálsins.
11. febrúar Hinsegin fræðsla 9.bekkur
14. febrúar Hinsegin fræðsla 3. og 6. bekkur
- febrúar Grófin fræðsla 9.bekkur.
21. febrúar Alþjóðadagur móðurmálsins
23. febrúar Konudagurinn - upphaf Góu
Viðtalsdagar 3.-4. mars nánari upplýsingar þegar nær dregur.
Af gefnu tilefni
Tölvuöryggi og áhorf
Borið hefur á því að allt niður í yngstu nemendur skólans séu að ræða og leika eftir þáttum sem heita Squid Gameen, en aldurstakmark þáttana er 16 ára og ekki af ástæðulausu. Þættirnir fjalla í stuttu máli um " hóp af fólki í fjárkröggum sem er látinn taka þátt í nokkrum barnaleikjum. Verðlaunin eru margir milljarðar, sem hljómar ekki illa fyrr en þátttakendur átta sig á því að ef þú tapar, þá deyrðu."
Á heimasíðu SAFT má finna gagnlegar upplýsingar um áhorf og netöryggi ofl. https://www.saft.is/fraedsluefni?maincategory=Foreldrar&subcategory=Netheilr%C3%A6%C3%B0i
Myndir frá barnaþingi 13. janúar
Stórþing ungmenna í Hofi
Átján flottir fulltrúar úr Naustaskóla tóku þátt í Stórþinginu á dögunum, þar sem börn og ungmenni í sveitarfélaginu fengu tækifæri til að ræða málefni sem þeim eru hugleikin. Stórþingið er mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til að hafa áhrif á þjónustu sveitarfélagsins og framtíðarþróun þess. Hugmyndir þátttakenda verða nýttar í verkefnið Barnvænt sveitarfélag og munu þannig hafa raunveruleg áhrif á samfélagið okkar. Stórþingið í máli og myndum.
Alþjóðadagur móðurmálsins er haldin árlega 21. febrúar
Amtsbókasafnið ætlar að halda upp á daginn í heila viku.
Vikuna 17.-22. febrúar verður lifandi sýning í anddyri safnsins í tilefni dags móðurmálsins:
- Laugardaginn 15. febrúar verður fánasmiðja á safninu frá klukkan 13 -15 og ætlum við að nota fánana til þess að skreyta anddyrið á Amtsbókasafninu.
- Fimmtudaginn 20. febrúar klukkan 16:30 verður sögustund á fleiri tungumálum – íslensku, spænsku, tékknesku og þýsku og föndur á eftir.
Það er um að gera fara og gera sér glaðan dag og taka þátt, eitthvað skemmtilegt er að gerast á hverjum degi. Hér má sjá heimasíðu Amtbókasafnsins
Ö -A
Jákvæður agi
- Meginreglur Jákvæðs aga er að hjálpa til við að byggja samband væntumþykju og virðingar og þær auðvelda að finna lausnir til frambúðar.
- Jákvæður agi byggir á kennslu, skilningi, hvatningu og samskiptum.