Fréttabréf Síðuskóla
10. bréf - júní- skólaárið 2025-2026
Kæru foreldrar, nemendur og starfsfólk!
Núna eru síðustu skóladagarnir framundan og það styttist í sumarfrí nemenda.
Framundan eru umhverfisdagar og skipulag þeirra er að finna hér neðar í bréfinu. Gott er að skoða það skipulag vel. Þessa daga munum við nýta nærumhverfið til að læra, leika og njóta útiveru. Síðasta skóladaginn munum við svo enda á grilli í útigarðinum.
Skólaslit verða þriðjudaginn 9. júní og tímasetningar fyrir hvern árgang má sjá hér neðar í bréfinu.
Við þökkum kærlega fyrir samstarfið á þessu skólaári og bjóðum tilvonandi nemendur velkomna í skólann. Þetta fréttabréf er einnig sent á verðandi foreldra í 1. bekk.
Í haust munu 26 nemendur hefja skólagöngu í Síðuskóla. Í ár útskrifast 53 nemendur og mun því fækka lítillega í skólanum frá og með hausti. Við óskum útskriftarnemendum alls hins besta í framtíðinni og þökkum foreldrum/forráðamönnum kærlega fyrir samstarfið sl. 10 ár.
Skólasetning næsta skólaárs er mánudaginn 24. ágúst og verða sendar nánari upplýsingar í ágúst auk þess sem þær verða settar á heimasíðuna.
Marías deildarstjóri sem var í námsleyfi á þessu skólaári kemur aftur til starfa í ágúst og þökkum við Önnu Maríu Þórhallsdóttur sem leyst hefur hann af fyrir gott og farsælt samstarf.
Megið þið eiga ljúfa og góða daga í sumarleyfinu!
Bestu kveðjur úr skólanum!
Ólöf, Helga og Anna María
Námsmat vorið 2026
1.-3. bekkur
Umsagnir í íslensku, stærðfræði, náttúrufræði og samfélagsgreinum.
Lokamat gefið með hæfnitákni í íþróttum, sundi, list- verkgreinum.
4.-10. bekkur
Lokamat gefið í bókstöfum í öllum námsgreinum.
Námsmat er flutt á vitnisburðarblað sem birt er í námsmöppu á Mentor hjá nemendum í 1.-9. bekk.
Vitnisburðarblöð verða prentuð út og afhent í 4., 7. og 10. bekk.
Hér er að finna skjal með skilgreiningum á hæfnitáknum og bókstöfum á vitnisburði.
Skólaslit Síðuskóla vorið 2026
Skólaslit Síðuskóla verða þriðjudaginn 9. júní.
Árgangar mæta í heimastofur og fara saman í sal. Þar kveður skólastjórinn fyrir hönd skólans og síðan fara nemendur í sínar heimastofur þar sem hópurinn er kvaddur. Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir með sínum börnum. Við miðum við að skólinn sé í eina klukkustund.
- Klukkan 9:00 1.-5. bekkur
- Klukkan 10:00 6.-9. bekkur
Útskrift 10. bekkjar kl. 15:00 í Glerárkirkju og kaffi í skólanum á eftir fyrir nemendur, fjölskyldur þeirra og starfsfólk.
Umhverfisdagar Síðuskóla 2026
Nemendur Síðuskóla heimsóttu granna sína á Lögmannshlíð
Síðastliðinn föstudag heimsóttu nemendur úr 5., 6. og 7. bekk heimsækja nágranna sína í Lögmannshlíð, hjúkrunarheimili Heilsuverndar. Þessi frábæri hópur stóð fyrir kaffisölu á Barnamenningarhátíð og ákvað að færa íbúunum allan hagnaðinn, sem nemur 85.000 krónum, að gjöf.
Heimsóknin var afar vel heppnuð í blíðskaparveðrinu. Ungir sem aldnir komu saman í garðinum þar sem nemendur sungu.
Matsferill - niðurstöður lesfimi-, stöðu- og framvinduprófa
Í mars voru lögð fyrir stöðu- og framvindupróf í íslensku og stærðfræði í 4.-10. bekk. Prófunum er ætlað að veita nemendum, foreldrum og kennurum skýrar upplýsingar um stöðu og framfarir nemanda.
Niðurstöður verða birtar foreldrum/forsjáraðilum þann 1. júní mínum síðum á island.is. Þar er hægt að skoða niðurstöður þeirra sem fóru í prófin og þar má sjá hvernig nemendur standa í þeim þáttum sem prófað var úr og lýsingu á mikilvægum næstu skrefum í kennslu.
Auk þess er verið að færa síðustu þrjár fyrirlagnir lesfimiprófanna yfir á Ísland.is,.
Forsjáraðilar fá hnipp þegar niðurstöðurnar eru komnar á Ísland.is.
Hvað þýða niðurstöðurnar og hver eru næstu skref?
Niðurstöðurnar sýna hvar nemendur standa í námi í samhengi við jafnaldra á landsvísu og gefa til kynna hvernig við getum sem best stutt við nám þeirra.
Upplýsingarnar eru nýttar til að:
- greina hvaða nemendur þurfa markvissan stuðning og skýr inngrip
- tryggja eftirfylgd þar sem þörf er á
- veita nemendum sem standa framar auknar og krefjandi áskoranir
Við hvetjum ykkur til að fara vel yfir niðurstöðurnar þegar þær liggja fyrir.
Niðurstöðurnar styðja við fjölbreytt námsmat skólanna - þeim er á engan hátt ætlað að koma í staðinn fyrir það. Hafa ber í huga að eitt próf getur aldrei verið tæmandi þannig að það meti alla hæfni heldur gefur það vísbendingar um stöðu nemanda miðað við jafnaldra út frá matsramma prófsins.
Ef einhverjar spurningar vakna eða þið viljið ræða niðurstöðurnar nánar skuluð þið hafa samband við umsjónarkennara.
Hægt er að kynna sér stöðu- og framvinduprófin nánar á matsferill.is.
Viðhorfskönnun um upphaf skóladags
Fyrirkomulag verður því óbreytt á næsta skólaári.
Óskilamunir
Mikið er af óskilamunum í skólanum og biðjum við foreldra að koma við hjá okkur þessa síðustu daga og athuga hvort eitthvað hefur orðið eftir.
Umsjónarkennarar skólaárið 2026-2027
1. bekkur - ráðning í ferli
2. bekkur - Alda Ýr Guðmundsdóttir og Lilja Þorkelsdóttir
3. bekkur - Gréta Björk Halldórsdóttir og Sigríður Jóna Ingólfsdóttir
4. bekkur - Fríða Kristín Hreiðarsdóttir og Kristín Dögg Jónsdóttir
5. bekkur - Fríða Rún Guðjónsdóttir og Magnea Guðrún Gróa Karlsdóttir
6. bekkur - Matthildur Stefánsdóttir og Melkorka Mjöll Kristinsdóttir
7. bekkur - Kolbrún Sveinsdóttir og Rannveig Heimisdóttir
8. bekkur - Hulda Guðný Jónsdóttir og Katrín María Hjartardóttir
9. bekkur - Arna Valgerður Erlingsdóttir og Ólafur Haukur Tómasson
10. bekkur - Íris Berglind Jónasdóttir og Örvar Ágústsson
Á döfinni
2. júní
Sameiginleg útivera hjá 1. bekk og elstu deildum Síðusels og Krógabóls
1.bekkur hjálmafræðsla 12:30.
5. júní
Umhverfisdagur
8. júní
Umhverfisdagur
9. júní
Skólaslit
10., 11. og 12. júní
Skipulagsdagar