Tæknótíðindi
16. september 2026

Dagsetningar framundan
- 14. september - Miðspannarmat aðgengilegt á Canvas
- 16. september - Klúbbakvöld á Háteigsvegi kl.17-21
- 24. september - Tækniskóladagurinn
- 23. september - Klúbbakvöld á Háteigsvegi kl.17-21
- 29. september - Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna
Miðspannarmat á Canvas
Í fyrradag (mánudag) birtist miðspannarmat hjá nemendum inn á Canvas fyrir áfanga sem kenndir eru á spönn 1.
Það er ekki gefið miðspannarmat/miðannarmat fyrir áfanga:
- sem eru kenndir á seinni spönn
- sem eru kenndir á önn
Hér fyrir neðan eru þeir bókstafir sem notaðir eru til viðmiðunar við matið.
A = Ágætt. Nemandanum gengur vel. (Sumir myndu segja einkunnir 7,5-10).
B = Í lagi. Nemandinn hefur tök á efninu en má ekki slá slöku við. (Sumir myndu segja einkunnir 5,5-7)
C= Ábótavant. Nemandinn þarf að taka sig á til að ná áfanganum. (Sumir myndu segja undir 5)
X= Ekki forsendur til að gefa vitnisburð
Við hvetjum aðstandendur eindregið til að skoða miðspannaramatið inni á Canvas.
Ef aðstandendur eru ekki þegar með aðgang að Canvas þá eru leiðbeiningar hérna til þess að fá aðgang: https://tskoli.is/canvas-inna/veita-adstandendum-adgang-ad-canvas/
Tækniskóladagurinn 2026
Tækniskóladagurinn verður haldinn í fjórða sinn fimmtudaginn 24. september. Markmiðið með deginum er að efla tengsl nemenda við atvinnulífið og gefa þeim tækifæri til að kynnast fjölbreyttum störfum og fyrirtækjum sem tengjast þeim fagsviðum sem kennd eru við Tækniskólann.
Nemendum býðst bæði að heimsækja fyrirtæki og sækja kynningar og fyrirlestra í skólanum. Gert er ráð fyrir að hver nemandi sæki að jafnaði tvo viðburði yfir daginn.
Hefðbundin stundatafla gildir ekki á Tækniskóladeginum og þurfa nemendur þess í stað að skrá sig á viðburði fyrir fram. Fjöldatakmarkanir eru í flestar fyrirtækjaheimsóknir og lokar skráning þegar hámarksfjölda hefur verið náð. Hér að neðan getið þið kynnt ykkur dagskrána og hvetjum við ykkur til að nýta tímann þar til í hádeginu á morgun fimmtudag vel til þess að ákveða hvað ykkur langar helst til að skrá ykkur í. Athugið að nemendur þurfa sjálfir að koma sér til viðkomandi fyrirtækis nema annað sé tekið fram í auglýsingu.
Nemendur fá sendan skráningarhlekk á morgun fimmtudag kl. 13.00 með tölvupósti og opnast þar með skráningin.
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema
Þriðjudaginn 29. september. Viltu spreyta þig?
Þriðjudaginn 29. september fer fram forkeppni Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema. Keppnin verður haldin fyrir hádegi á Skólavörðuholti og stendur yfir í tvo og hálfan tíma.
Keppnin, sem fer fram á hverju hausti, er opin öllum framhaldsskólanemum og er keppt á tveimur stigum. Efstu keppendum á hvoru stigi verður boðin þátttaka í úrslitakeppninni sem fer fram á vormánuðum.
Auk viðurkenninga og verðlauna fyrir efstu sætin er árangur keppenda hafður til hliðsjónar við val í Eystrasaltskeppnina í stærðfræði, Norrænu stærðfræðikeppnina og á Ólympíuleikana í stærðfræði.
Nemendur eru eindregið hvattir til að taka þátt og geta skráð sig með því að senda tölvupóst á eyp@tskoli.is. Þá eru þeir hvattir til að æfa sig með því að skoða gömul dæmi á vefsíðu keppninnar www.stak.is. Best er að finna dæmi með því að smella á einhverja af keppnum undanfarinna ára hægra megin á vefsíðu staks, og skruna niður og velja gamalt keppnisblað en þar er einnig að finna lausnir.
Vel heppnað nýnemaball
Nýnemaball nemendafélags Tækniskólans, NST, sem fram fór fimmtudaginn 10. september síðastliðinn í Iðnó, heppnaðist mjög vel. Margir nemendur tóku þátt í edrúpotti sem dregið verður úr í vikunni.
Nemendur skemmtu sér vel þegar Izleifur, Ragga Hólm, Aron Kristinn og Issi stigu á svið og dönsuðu gestir fram eftir kvöldi.