Smore logo
remove_red_eye 136
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

10. tbl. 6. árg. - desember 2025

FréttabréfGrenivíkurskóla10. tbl. 6. árg. - desember 2025

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

User uploaded image
zoom_out_map

Tíminn flýgur áfram sem aldrei fyrr og nú höldum við inn í síðasta mánuð ársins, sjálfan jólamánuðinn. Fyrir mörgum er þetta skemmtilegasti tími ársins og hér í skólanum er undirbúningur fyrir jólahátíðina, hátíð ljóss og friðar, kominn á fullt líkt og annars staðar. Í desember höldum við í ýmsar hefðir eins og laufabrauðsdag og kyndlagöngu, og þann 19. desember höldum við litlu jól, en að þeim loknum halda nemendur í jólafrí. Nánari upplýsingar um þessa daga alla berast ykkur þegar nær dregur.


Í nóvember var ýmislegt á dagskránni. Nemenda- og foreldraviðtöl fóru fram í mánuðinum, við héldum upp á baráttudag gegn einelti, og þá fengum við frábæra heimsókn frá þeim Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Elísabetu Thoroddsen í tengslum við verkefnið Skáld í skólum. Enn fremur komu fulltrúar Glímusambands Íslands og voru með kynningu á glímu, þeirri fornu þjóðaríþrótt, og tókst sú heimsókn vel.


Sem fyrr segir er síðasti kennsludagur fyrir jólafrí föstudagurinn 19. desember og litlu jólin verða svo haldin seinni partinn þann sama dag. Að þeim loknum halda nemendur í jólafrí, en skóli hefst svo aftur að loknu jólafríi þriðjudaginn 6. janúar.


Við í skólanum vonum að þið eigið notalega aðventu og njótið hátíðarinnar sem allra best.


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Skáld í skólum Skáld í skólum

Þann 1. nóvember fengum við í skólanum góða heimsókn frá rithöfundunum Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og Elísabetu Thoroddsen, en þær komu til okkar í tengslum við verkefnið Skáld í skólum.


Í heimsókninni var farið um víðan völl en þær skoðuðu t.d. mest bönnuðu bækur heims, hvaða bækur hafa verið brenndar á báli og hvert við stefnum í pólitísku landslagi dagsins í dag. Þær veltu fyrir sér hvort bækur væru hættulegasta vopn nútímans eða bara úreld orð á blaði, hvers vegna konur skrifuðu stundum undir karlmannsnafni og veltu einnig fyrir sér ótal siðferðislegum spurningum eins og hvort sækja megi efni í bækur inn á samfélagsmiðla annars fólks og hvaða áhrif gervigreind gæti haft á ritsmíðar og listsköpun almennt.

Jól í skókassa Jól í skókassa

User uploaded image
zoom_out_map

Líkt og undanfarin ár tóku nemendur og starfsfólk Grenivíkurskóla þátt í verkefninu Jól í skókassa. Um er að ræða alþjóðlegt verkefni sem felst í því að gleðja börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir.


Skókassarnir frá Íslandi fara til barna í Úkraínu og verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til fólks sem býr við sára fátækt. Líkast til hefur þörfin fyrir hvers kyns aðstoð í Úkraínu aldrei verið meiri en um þessar mundir, í ljósi þess ömurlega stríðs sem þar geysar.


Að þessu sinni söfnuðust gjafir sem fylltu um 20 skókassa og þökkum við öllum þeim sem lögðu hönd á plóg kærlega fyrir sitt framlag.

Styrkur til jólabókakaupa Styrkur til jólabókakaupa

User uploaded image
zoom_out_map

Undanfarin ár hefur Grenivíkurskóli fengið veglega styrki frá fyrirtækjum hér á svæðinu fyrir jólin, sem nýttir hafa verið til sameiginlegra bókakaupa og bækurnar settar í bókahillur eða í heimastofur nemenda. Nemendur geta þannig valið úr glæsilegu úrvali glænýrra bóka, til viðbótar við góðan bókakost sem bókasafnið býr yfir, og er það von okkar að þetta framtak auki lestraráhuga nemenda.


Þau fyrirtæki sem styrktu verkefnið að þessu sinni eru Darri ehf., Sparisjóður Höfðhverfinga og Gjögur hf., og færum við þeim bestu þakkir fyrir frábæran stuðning!

Baráttudagur gegn einelti Baráttudagur gegn einelti

User uploaded image
zoom_out_map

Þann 11. nóvember sl. var haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti í skólanum. Safnast var saman um morguninn og horft á myndbönd þar sem meðal annars var fjallað um mikilvægi þess að við ákveðum öll að vera saman í baráttuliðinu gegn einelti og að segja frá ef við vitum af því að verið sé að leggja í einelti. Einnig spjölluðum við almennt um einelti, Olweusaráætlunina, og eineltishringinn góða, sem er gott verkfæri þegar unnið er með eineltismál.


Að því loknu hengdu nemendur og starfsfólk hin ýmsu form, sem þau höfðu föndrað, í kringum græna kallinn okkar. Markmiðið er að minna okkur öll á mikilvægi þess að taka skýra afstöðu gegn einelti og leggja okkar af mörkum í baráttunni gegn þessu samfélagsmeini.

Grænfáninn Grænfáninn

User uploaded image
zoom_out_map

Í grænfánadálki fréttabréfsins í vetur verður sjónum meðal annars beint að hinum ýmsu hugtökum sem varða umhverfisnefnd.


Hugtak desembermánaðar er gróður- og jarðvegseyðing. Gróðurhula lands getur rofnað m.a. vegna áhrifa vatns, vinds, jarðskjálfta, beitar og vegna athafna okkar mannsins. Þegar gróið land rofnar verður jarðvegurinn berskjaldaður fyrir frekari rof af völdum þessa rofafla. Mikilvægt er að grípa strax inn í og stöðva slíkt rof því annars getur þetta ferli haldið áfram og eytt miklum gróðri og jarðvegi.


Hér má nálgast frekari upplýsingar um hringrás kolefnis.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

User uploaded image
zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "hlýhugur í desember". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Glímusamband Íslands með kynningu - 6. nóvember
  • Baráttudagur gegn einelti - 11. nóvember
  • Ýmsar myndir úr skólalífinu - nóvember

Á döfinni í desember Á döfinni í desember

  • 1. desember: Fullveldisdagurinn.
  • 9. desember: Laufabrauðsdagur.
  • 16. desember: Kyndlaganga.
  • 19. desember: Litlu jól. Jólafrí hefst.
  • 23. desember: Þorláksmessa.
  • 24. desember: Aðfangadagur jóla.
  • 25. desember: Jóladagur.
  • 26. desember: Annar í jólum.
  • 31. desember: Gamlársdagur.
  • 1. janúar: Nýársdagur.
  • 5. janúar: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
  • 6. janúar: Þrettándinn. Skóli hefst á ný að loknu jólafríi.

Matseðill Matseðill

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter