Fréttamolar úr MS
2. nóvember 2026
Haustönn að ljúka!
Nú er fyrstu önn skólaársins að ljúka, síðasti kennsludagur er föstudagurinn 6. nóvember. Í næstu viku verður því engin kennsla en þá eru engu að síður mikilvægir dagar sem skipta nemendur máli eins og matsdagar, einkunnaskil og námsmatssýning.
💡Mikilvægar dagsetningar framundan💡
- Mánudagur og þriðjudagur 9.-10. nóvember: matsdagar - dagskrá birtist í lok vikunnar á msund.is
- Miðvikudagur 11. nóvember: Lokaeinkunnir haustannar birtast í Innu kl. 20.
- Fimmtudagur 12. nóvember: Námsmatssýning í MS kl. 11-12 - dagskrá birtist á msund.is þegar nær dregur.
- Föstudagur 13. nóvember: Stundatöflur vetrarannar birtar í Innu kl. 20. Opnað fyrir töflubreytingar í Innu.
- Mánudagur 16. nóvember: Opið fyrir töflubreytingar í Innu til kl. 15. Nemendur sem þurfa aðstoð við töflubreytingar þurfa að koma í MS þennan dag!
- Þriðjudagur 17. nóvember: Fyrsti kennsludagur vetrarannar.
- Föstudagur 27. nóvember: Síðasti dagur til að segja sig úr áfanga á vetrarönn.
Kennsla á vetrarönn hefst þriðjudaginn 17. nóvember og þá verða allir nemendur búnir að fá nýjar stundatöflur en nánari upplýsingar um þær berast þegar nær dregur.
Kennslukönnun í Innu
Kennslukönnun haustannar er opin í Innu fram á síðasta kennsludag.
Á þessari önn eru kennslukannanir lagðar fyrir í listgreinum, raungreinum og íþróttum.
Kennslukönnun er tækifæri nemenda til að láta rödd sína heyrast og við hvetjum nemendur til að taka þátt.
Lið MS í Gettu betur
Liðið skipa þau Hekla Kristín, Hinrik Hugi og Júlía Dís sem öll eru á öðru ári í MS. Til vara eru Freyja Hjaltalín og Bjarni Valur.
Nú skiptir öllu máli að hvetja sitt lið til dáða!
Áfram MS!
Lið MS í Morfís
Liðið skipa þau Aníta Björns, Arnór Orri, Jónatan, Ísabella Jóna og María Sól. Vanessa Blaga er til vara.
Liðið byrjar vel en það vann Flensborg í æfingakeppni Morfís fyrir skemmstu.
Eins og MS-ingar vita þá skiptir öllu máli að mæta á keppnirnar og hvetja sitt fólk frá upphafi til enda. Áfram MS!
Leikfélagið Thalía
Thalía, leikfélag MS, hefur ákveðið að setja upp söngleikinn Teen Beach movie vorið 2027! Ásgrímur Geir Logason hefur verið ráðinn leikstjóri.
Söng- og leikprufur standa yfir í þessari viku. Dansprufur verða auglýstar síðar, einnig verður auglýst eftir fólki í aðrar undirnefndir s.s. búningahönnun, leikmyndahönnun, förðun, hárgreiðslu o.fl.
Hvetjum ykkur til að taka þátt!
Nánari upplýsingar veitir Guðný Lilja, félagsmálastjóri.
Hægt er að fylgjast með því sem er í gangi á instagramsíðu Thalíu.
"85 vikan - fyrsta vika nýrrar annar
Fyrstu viku nýrrar annar, 16.-20. nóvember, verður "85 vikan í MS. Í þeirri viku bregða nemendur og jafnvel kennarar á leik og klæðast fötum sem voru í tísku árið 1985.
Hápunktur vikunnar er dansleikur sem haldinn verður í samstarfi við Menntaskólann í Kópavogi þann 18. nóvember í Gamla bíói. Ýmislegt fleira verður í gangi þessa viku t.d. keilukeppni á móti MK o.fl.
Oxbridge sumarnámskeið - síðasti séns að skrá sig
Áhugasömum MS-ingum gefst kostur á að sækja sumarnámskeið sumarið 2027 á vegum hinna virtu Oxford og Cambridge háskóla. Sumarið 2026 fór fjöldi nemenda úr MS á námskeiðið og voru þau afar ánægð með námskeiðið.
Nánari upplýsingar má lesa í meðfylgjandi bæklingi. Ef spurningar vakna má leita til konrektors á skrifstofu skólans.
Njótið vikunnar 🥰
Ljósmynd á forsíðu: Magnús Jóhannsson