Smore logo
remove_red_eye 971
page background
Logo

Tæknótíðindi

20. janúar 2026

Tæknótíðindi20. janúar 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 21. janúar - Söngkeppni Tækniskólans - Átótjúnið
  • 22. janúar - Fjáröflunardagur hársnyrtibrautar
  • 28. janúar - Klúbbakvöld á Háteigsvegi
Söngkeppni Tækniskólans - Átótjúnið

Afsláttur fyrir nemendur Tækniskólans Afsláttur fyrir nemendur Tækniskólans

User uploaded image
zoom_out_map
Nemendum Tækniskólans býðst afsláttur hjá hinum ýmsu fyrirtækjum í atvinnulífinu, gegn framvísun nemendaskírteina skólans. Um er að ræða afsláttarkjör hjá fyrirtækjum í veitingageiranum, afþreyingariðnaði, umboðssölum verkfæra o.fl..

Finna má lista fyrirtækja, sem bjóða afsláttarkjör, HÉR.

Fjáröflunardagar hársnyrtibrautar Fjáröflunardagar hársnyrtibrautar

User uploaded image
zoom_out_map

Fimmtudaginn 22. janúar er sérstakur fjáröflunardagur hársnyrtibrautar. Þá er mögulegt að koma í Tækniskólann á Skólavörðuholti og fá klippingu, litun eða hárgreiðslu gegn vægu gjaldi. Allur ágóði rennur í sjóð sem stendur undir kostnaði af glæsilegri útskriftarsýningu hársnyrtibrautar sem er fyrirhuguð 18. mars í Ráðhúsi Reykjavíkur.


Verið öll hjartanlega velkomin á hársnyrtibraut 22. janúar - engar tímapantanir, bara mæta.

Nemendaskírteini Nemendaskírteini

User uploaded image
zoom_out_map

Við viljum benda á að nemendaskírteini eru jafnframt prentkort nemenda. Kortin má nálgast á bókasöfnum Tækniskólans á Skólavörðuholti, Háteigsvegi og í Hafnarfirði.

Kortin eru innifalin í skóla­gjöldum en það kostar 2.000 kr. að end­ur­nýja glatað kort. Nánari upplýsingar má lesa HÉR.

Samstarf BYKO og Tækniskólans Samstarf BYKO og Tækniskólans

Stór­sýn­ingin Verk og vit verður haldin dagana 19.-22. mars í Laug­ar­dals­höll og tekur Tækni­skólinn þátt í sýn­ing­unni líkt og und­an­farin ár.


Að þessu sinni vinna tvær brautir innan Tækni­skólans að spenn­andi verk­efni í sam­starfi við BYKO sem snýr að því að hanna og byggja sauna­klefa sem verður reistur í and­dyri sýn­ing­ar­innar í Laug­ar­dals­höll.


Nem­endur á hönn­unar- og nýsköp­un­ar­braut taka þátt í hönn­un­ar­sam­keppni þar sem fimm hópar, sem sam­an­standa af fjórum til fimm nem­endum hanna og kynna eigin til­lögu að sauna­klefa. Dóm­nefnd, sem skipuð er af Tækni­skól­anum og BYKO, velur í kjöl­farið sig­ur­til­lögu sem nemendur Byggingatækniskóla Tækniskólans munu reisa á sýn­ing­unni.


BYKO bauð nem­endum Tækni­skólans í skemmti­lega heim­sókn til þess að kynna sér ferlið og hrá­efnið betur áður en að hönn­un­ar­vinnan hófst.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter