Smore logo
remove_red_eye 579
page background
Logo

Tæknótíðindi

26. febrúar 2026

Tæknótíðindi26. febrúar 2026

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 26. febrúar - Útskriftarhúfumátun
  • 27. febrúar - Starfsþróunardagur starfsfólks framhaldsskólanna, nemendur eru í fríi þann dag.
  • 28. febrúar - Háskóla­dag­urinn 2026
  • 5. mars - Miðannarmat
  • 5.- 6. mars - Námsmat
  • 9. mars - Starfsdagur, skóli lokaður

Eru allir búnir að klára valið fyrir haustið? Eru allir búnir að klára valið fyrir haustið?

Valið er enn opið en þar staðfesta nem­endur í dag­skóla umsókn sína um áfram­hald­andi skóla­vist á næstu önn. Það er gert með því að yfir­fara og staðfesta val næstu annar í Innu og greiða álögð skóla­gjöld. Þá þurfa þeir ekki að sækja aftur form­lega um skóla­vist.

Valið er opið

Kennslumat er opið fyrir alla áfanga í Innu Kennslumat er opið fyrir alla áfanga í Innu

User uploaded image
zoom_out_map
Kennslumat er mikilvægur liður í því að meta skólastarfið og ykkar álit skiptir miklu máli. Þátttaka er ópersónugreinanleg og tekur stuttan tíma að svara.


Kennslumatið birtist á forsíðunni í Innu undir „kannanir“ sem er uppi í hægra horni í tölvu.

Ef Inna er opnuð í síma þarf að skrolla niður forsíðuna til að finna kennslumatið.

Leikfélagið undirbýr sýninguna Þriðjudags þristurinn Leikfélagið undirbýr sýninguna Þriðjudags þristurinn

User uploaded image
zoom_out_map

Allt er farið á fullt hjá leikfélaginu Mars sem undirbýr nú sýninguna Þriðjudags þristurinn í leikstjórn Snæfríðar Gunnardóttur.


Ljósmyndari kíkti á æfingu hjá leikfélaginu í vikunni og náði nokkrum skemmtilegum myndum af hópnum.


Verkið Þriðjudags þristurinn verður frumsýnt 12. mars.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Skólafundur Skólafundur

User uploaded image
zoom_out_map

Vel heppnaður skóla­fundur var haldinn í Tækni­skól­anum miðvikudaginn 18. febrúar frá kl.10:25 til 12:05. Hefðbundin kennsla var þá lögð til hliðar og ræddu nem­endur og starfs­fólk um ýmis mál­efni er varða skólalífið.


Umræðuefni

Umræðuefni á skóla­fundi komu frá samráðsvett­vangi nem­enda, kennara og stjórn­enda í skólaráði. Á fund­inum var nem­endum skipt upp í 5–7 manna hópa og voru fjögur mál­efni tekin fyrir í hverjum hóp.


Umræðuefnin voru eftirfarandi:

  • Hvernig getur skólinn undirbúið nemendur betur fyrir lífið eftir framhaldsskóla ?
  • Hvernig getur skólinn komið betur til móts við þarfir hvers og eins nemanda?
  • Hvað er hægt að gera til þess að nemendum líði betur í skólanum?
  • Hvað vilt þú sjá gert betur í félagslífi skólans?

Hér er hlekkur á kynningarmyndband fyrir Skólafund Tækniskólans 2026.


Niðurstöður verða kynntar á nýrri spönn.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Nýsveinahátíð 2026 Nýsveinahátíð 2026

Nýsveinahátíð IMFR fór fram í 20. skipti, laug­ar­daginn 7. febrúar síðastliðinn á Natura Hotel, þar sem nýsveinar hlutu viðurkenn­ingu fyrir framúrsk­ar­andi árangur á sveins­prófi. Þessi upp­skeru­hátíð er haldin ár hvert af Iðnaðarmanna­fé­laginu í Reykjavík (IMFR) og sjá meist­ara­félög viðkom­andi iðngreina um að til­nefna ein­stak­linga sem sýnt hafa framúrsk­ar­andi árangur á sveins­prófi.


Alls hlutu 33 nýsveinar viðurkenn­ingu og af þeim eru 15 nýsveinar útskrifaðir úr Tækni­skól­anum.


For­seti Íslands, frú Halla Tóm­as­dóttir, sem jafn­framt er verndari hátíðarinnar, veitti viðurkenn­ingar og flutti ávarp til nýsveina.


Ítarlega frétt um málið má finna á vefsíðu Tækniskólans.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Háskóladagurinn 2026 Háskóladagurinn 2026

User uploaded image
zoom_out_map
Háskóladagurinn er árlegur viðburður þar sem fólki gefst færi á að kynna sér allt það fjöl­breytta nám sem er í boði í öllum háskólum landsins.


Háskóladagurinn verður haldinn í Reykjavík laugardaginn 28. febrúar, í Vestmannaeyjum 3. mars, Ísafirði 5. mars og á Akureyri 11. mars.

Nánari upplýsingar um Háskóladaginn

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter