Tæknótíðindi
30. september 2025
Dagsetningar framundan
- 7. október - Nýnemakvöld Hinsegin félagsins
- 8. október - Fundur um listamarkað Tækniskólans og klúbbakvöld
- 13. og 14. - október - Námsmatsdagar
- 15. - október - Vetrarfrí
- 16. - október - 2. spönn hefst
Vel heppnaður Tækniskóladagur 2025
Tækniskóladagurinn var haldinn í þriðja sinn miðvikudaginn 24. september en þá sóttu á annað þúsund nemendur og fjöldi starfsfólks viðburði í skólanum og/eða fyrirtæki í atvinnulífinu heim. Yfir 50 viðburðir voru á dagskrá og hafa aldrei jafn margir nemendur tekið þátt.
BESTU þakkir til allra sem lögðu okkur lið á þessum frábæra degi. Það var gaman að sjá hvernig tekið var á móti okkar fólki af ALÚÐ og fagmennsku.
Góð notkun á gervigreind
Gervigreind, þar á meðal spjallforrit eins og ChatGPT, er orðin aðgengileg og áhrifamikil tækni í námi og kennslu. Hún getur verið gagnleg til að styðja við sköpun, lærdóm og upplýsingaleit en notkun hennar kallar jafnframt á skýrar siðferðilegar, fræðilegar og tæknilegar reglur. Tilgangur nýrra leiðbeininga sem Tækniskólinn setur fram er til að tryggja ábyrga, gagnsæja og siðferðilega meðvitaða notkun gervigreindar í skólastarfinu.
Gert er ráð fyrir því að notendur kynni sér þessar leiðbeiningar og tileinki sér ábyrg vinnubrögð.
Nýnemakvöld Hinsegin félagsins
Hinsegin félag Tækniskólans býður nemendur skólans velkomna á nýnemakvöld þriðjudaginn 7. október í stofu 407 kl. 17–21. Markmiðið er að skapa notalegt rými þar sem nýnemar geta kynnst, tekið þátt í samtali og orðið hluti af öflugu félagslífi skólans.
Allir nemendur eru hjartanlega velkomnir, ekki bara nýnemar.
Fyrsti listamarkaður Tækniskólans
Í haust verður í fyrsta skipti haldinn listamarkaður í Tækniskólanum. Markaðurinn er ætlaður nemendum sem vilja sýna eða selja eigin verk, hvort sem það eru málverk, prent, textíl, keramik eða önnur listsköpun.
Til að undirbúa markaðinn verður haldinn fundur næsta miðvikudag kl. 16:15 í Framtíðarstofunni á Skólavörðuholti. Þar kynnum við hugmyndina nánar, ræðum saman um hvaða dagsetning hentar best og fáum ykkar ábendingar.
Veitingar í boði, öll velkomin!
Áfangar í opnu vali
Hér má sjá nánari leiðbeiningar um áfangaval og brautaskipi. Nemendum er einnig boðin aðstoð við valið hjá umsjónarkennara eða skólastjóra.