Smore logo
remove_red_eye 172
page background

Fréttabréf Flóaskóla

maí 2026

FréttabréfFlóaskólamaí 2026

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

Að venju er margt um að vera í skólanum, framundan eru vorverkin og ýmsir viðburðir tengdir þeim.

Síðustu smiðjur vetrarins eru í vikunni, miðstigssmiðjur verða haldnar í Flóaskóla næstkomandi fimmtudag og smiðjur elsta stigs verða á fimmtudag og föstudag í Kerhólsskóla.

Eina viku í maí er vorskólavika þar sem nemendur í verðandi 1. bekk koma í skólann og kynnast flestum innviðum hans í leik og starfi.

Langspilsvakan í 5. og 6. bekk verður í Þjórsárveri 19. maí.

Hið árlega Royalkvöld verður haldið fyrir 7.-10. bekk miðvikudaginn 20. maí. Þá mæta nemendur í sínu fínasta pússi í Þjórsárver kl 18:00, borða veislumat, fara í samkvæmisleiki og skemmta hvert öðru.

Skólahreystin verður haldin 6. maí klukkan 17:00 og við erum að sjálfsögðu með okkar keppnislið þar.

Vorferðir verða farnar í lok maí og byrjun júní og koma nánari upplýsingar um þær í vikupóstum frá umsjónarkennurum.
Föstudaginn 5.6. er íþróttadagur þar sem nemendur í 7.-10. bekk keppa innbyrðis í ýmsum þrautum og verkefnum, dagurinn endar svo á fótboltamóti og síðasti leikur þess er milli starfsmanna og nemenda 10. bekkjar.
Skólaslit eru svo kl 10:00 mánudaginn 8. júní og kl 17:00 þann dag er útskrift 10. bekkjar.

Hér fyrir neðan eru nánari upplýsingar um þessa viðburði en einnig fréttir af viðburðum aprílmánaðar.


Við í skólanum óskum ykkur öllum gleðilegs sumars

með kærum þökkum fyrir viðburðarríkan og farsælan vetur.


Þórunn Jónasdóttir

User uploaded image
zoom_out_map

Tónleikar Miðstigskóra Flóaskóla og Hvolsskóla í Skálholti

Miðvikudaginn 15. apríl voru fyrstu formlegu tónleikar Miðstigskórsins okkar. Tónleikarnir fóru fram í Skálholtsdómkirkju einu albesta tónleika húsi landsins. Þetta var í alla staði afar vel heppnaður dagur og krakkarnir og allir sem að verkinu komu stoltir og ánægðir í lok tónleika. Á tónleikunum söng Flóaskóli fyrst einn og söng þá ABBA lög. Síðan söng Hvolsskólakórinn nokkur lög úr ýmsum áttum og að lokum sungu kórarnir saman sex lög og enduðu á söngperlunni 17.000 sólargeislar úr Bláa hnettinum. Það var aðdáunarvert að fylgjast með krökkunum. Þau sungu eins og englar, allir einbeittir og lögðu sig fram og hljómurinn í kórnum kristaltær. Tvö og tvö komu þau fram og kynntu lögin, örugg í fasi og allt blaðlaust. Það var í einu orði sagt yndislegt að horfa og hlusta. Unnur og Eyrún héldu utan um hópinn ásamt tveimur vöskum mæðrum. Eyrún og Ingibjörg kórstjóri Hvolsskólakórsins spiluðu á nýja flotta flygilinn sem var nýlega keyptur í Skálholt og Joel sem aðstoðaði okkur í Greaseævintýrinu í fyrra setti punktinn yfir i-ið með frábærum gítarleik. Sannarlega frábær samvinna milli þessara tveggja kóra sem skilaði sér í metnaðarfullum og glæsilegum tónleikum. Til hamingju öll með þessa frábæru krakka sem voru sér og skólanum sínum til sóma. Það er tilhlökkunarefni að fylgjast með kórastarfinu í Flóaskóla vaxa og dafna áfram.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map

Íslandsmót barnaskólasveita í skák

Íslandsmót barnaskólasveita 4-7. bekkur fór fram þann 18.apríl í á sólríkum vordegi í Reykjavík. Mótið var eins og síðustu ár haldið í Rimaskóla og var mjög fjölmennt og voru 34 sveitir skráðar til leiks. Tefldar voru átta umferðir. Langur dagur þar sem reyndi mikið á úthald keppanda. Strákarnir okkar voru bara að taka sín fyrstu skref i þessari vegferð og stóðu sig eins og hetjur, enduðu með 19 vinninga en bronsliðið var með 20 vinninga. Okkar lið varð í 6 sæti yfir landið en í öðru sæti yfir landsbyggðaliðin einungis hálfum vinning á eftir efsta landsbyggðaliðinu. Algjörlega frábær árangur hjá strákunum og það verður gaman að fylgjast með þeim áfram.

Leiksýning á yngsta stigi - Lína langsokkur

Þriðja og síðasta leiksýning skólaársins var 22. apríl síðastliðinn. Nú voru það yngstu börnin sem áttu sviðið og slógu í gegn. Það var frábært að sjá þessa ungu krakka á sviðinu, mörg með heilmikinn texta að flytja og leika og svo sungu þau hvert lagið á fætur öðru að stakri snilld. Aðstandendur fylltu salinn og voru að rifna úr stolti yfir þessum yndislegu börnum. Skólinn fékk hrós frá mörgum áhorfendum fyrir gott leik- og tónlistaruppeldi, enda sumir að koma á sinn fjórða viðburð á rúmum mánuði.

Eins og áður var leikmynd, búningar og öll umgjörð með miklum sóma. Við erum mjög stolt af þessari glæsilegu sýningu og öllum þem sem að henni komu.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Stóra upplestrarkeppnin

Undankeppni upplestrarkeppninnar fór fram í Þjórsárveri 16. apríl kl. 13:00. Nemendur lásu brot úr sögunni Blokkin á Heimsenda og ljóð eftir Þórarin Eldjárn. Þær stóðu sig allar eins og hetjur, enda búnar að vera í stífum æfingum hjá Unni. Í Dómnefnd sátu Margrét Drífa Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason og Hallfríður Ósk Aðalsteinsdóttir. Fulltrúar okkar í Árnesþingskeppninni voru valdar þær Matthilda Sigurðardóttir og Kristín María Sigurðardóttir. Þórhildur María Högnadóttir var varamaður.

Mánudaginn 27. apríl var svo úrslitakeppnin haldin í Þjórsárveri. Keppnin er árlegur viðburður í skólastarfi en þar gefst nemendum 7.bekkjar tækifæri til að þjálfa og efla upplestur og framkomu. Þátttakendur voru tólf og komu úr sex grunnskólum, Bláskógaskóla, Flóaskóla, Flúðaskóla, Kerhólsskóla, Reykholtsskóla og Þjórsárskóla. Nemendur höfðu greinilega undirbúið sig vel fyrir þessa áskorun og sýndu mikla færni og öryggi þegar þeir lásu úr völdum bókmenntaverkum. Þriggja manna dómnefnd, skipuð séra Guðbjörgu Arnardóttir, Katrín Rut Sigurgeirsdóttir íslenskukennari í FSu og Anna Stefanía Vignisdóttir talmeinafræðingur hjá SVÁ, valdi svo þá þrjá nemendur er þóttu skara fram úr í upplestrinum.

Hilmir Dreki Guðmundsson nemandi í Kerhólsskóla hlaut fyrsta sætið, Aron Gunnar Bjarnason Flúðaskóla var í öðru sæti og Þorbjörg Ásta Hallbjarnardóttir Kerhólsskóla í þriðja sæti.

Við óskum öllum þátttakendum til hamingju með glæsilega frammistöðu í þessu skemmtilega verkefni.

User uploaded image
zoom_out_map

Þrír efstu nemendur í úrslitum

User uploaded image
zoom_out_map

7. bekkur Flóaskóla á undankeppninni

User uploaded image
zoom_out_map

Allir þátttakendur í úrslitakeppninni

Litla upplestrarhátíðin í 4. bekk

Litla upplestrarhátíðin verður haldin hátíðleg hjá nemendum 4. bekkjar miðvikudaginn 6. maí n.k. kl 12:30.

Hátíðin er nú haldin í 16 sinn. Hún er litla systir Stóru upplestrarkeppninnar sem haldin er á hverju ári í 7. bekk. Í þeim báðum eru sömu markmið höfð að leiðarljósi, að efla upplestur, munnlega tjáningu og framkomu nemenda. Unnið er markvisst að því að bæta lestrarfærni og efla sjálfstraust nemenda í æfingaferlinu, ásamt því að sýna vandvirkni og virðingu.

Í Flóaskóla bjóða nemendur í 4. bekk aðstandendum sínum að koma á lokahátíðina. Þar flytja nemendur sönglög, ljóð og annan texta sem þau hafa verið að æfa síðustu daga. Nemendur í 3. bekk eru gestir á hátíðinni og taka þátt í söngatriði í byrjun, enda eru þau að æfa sig því þau sjá um hátíðina að ári.

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á djús og bakkelsi.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Vorskóli verðandi 1. bekkinga

Vikuna 11.-15. maí er vorskólin í Flóaskóla þá koma verðandi 1.bekkingar í skólann og kynnast flestum þáttum starfsins. Þetta er mjög mikilvægur undirbúningur fyrir skólaskiptin og hjálpar börnunum við aðlögun að nýjum skóla. Fundur verður með foreldrum þessara nemenda mánudaginn 11.5. kl 18:00.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Royalkvöld 7.-10. bekkur

Hefð er fyrir því að halda veislu í lok skólaárs, svokallað Royalkvöld. Við þetta tilefni eru 7. bekkingar boðnir velkomnir á elsta stig og 10. bekkingar eru kvaddir af unglingahópnum. Þetta er hátíðleg kvöldstund, með glæsilegum veitingum, allir í sínu fínasta pússi, salurinn skreyttur og gleðin við völd. Nemendur nota dagana fyrir Royalkvöldið í vinaleik, hver og einn dregur eitt nafn og sá er leynivinur viðkomandi þessa daga, á Royalkvöldinu upplýsa svo allir um hver þeirra leynivinur er.

User uploaded image
zoom_out_map

Langspilsvaka 5.-6. bekkja þriðjudaginn 19. maí

Líkt og undanfarin ár smíðuðu nemendur í 5. bekk sér langspil undir styrkri stjórn Eyjólfs Eyjólfssonar. Þetta árið var verkefnið á vorönn. Við höldum þeirri hefð að hafa langspilsvöku og verður hún haldin þriðjudaginn 19. maí kl 18:00 í Þjórsárveri. Líkt og í fyrra verða það nemendur í 5. og 6. bekk sem stíga á stokk. Þessi viðburður telur sem skertur nemendadagur og því er skyldumæting nemenda líkt og aðra nemendadaga. Nánari upplýsingar verða sendar út þegar þær liggja fyrir.

Útskrift 10. bekkinga og skólaslit

  • Föstudaginn 5. júní er íþróttadagur í skólanum. Hann er skipulagður af nemendum og kennurum í 7.-10. bekk, en bekkirnir keppa þá sín á milli í ýmsum óhefðbundnum greinum. Í lokin eru svo fótboltaleikir milli bekkja og síðasti leikurinn er 10. bekkingar á móti starfsmönnum skólans.

  • Mánudaginn 8.júní eru svo skólaslit kl 10:00 í Þjórsárveri, þá mæta nemendur í 1.-9. bekk ásamt foreldrum / forráðmönnum. Stutt dagskrá er í Þjórsárveri en síðan fara nemendur í sínar heimastofur með umsjónarkennurum og taka við vitnisburðum vetrarins, kveðja og halda út í sumarið.

  • Síðar þennan sama dag er svo útskrift 10. bekkjar kl 17:00 í Þjórsárveri. Búast má við um klukkustundar langri dagskrá. Hefð er fyrir því að vera með Pálínuboð, fjölskyldur útskriftarnemenda koma með meðlæti á kaffiborð og boðið er til veislu að útskrift lokinni.

pdf
insert_drive_file
Skóladagatal 2026-2027.pdf
Download
580.6 KB
Þórunn Jónasdóttir
Þórunn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter