Smore logo
remove_red_eye 334
page background

The Weekly Update #4

January 19th, 2026

The Weekly Update #4 January 19th, 2026
The Weekly Update#4January 19th, 2026

Farsældarsáttmálinn

Í haust fórum við í góða vinnu hér í skólanum með ykkur foreldrum þar sem þið unnið farsældarsáttmála í öllum bekk. Rannsóknir hafa sýnt fram á forvarnargildi samstíga foreldrahóps auk þess sem foreldrar gegna mikilvægu hlutverki í að styðja við og stuðla að góðri menningu innan barnahópsins. Farsældarsáttmálinn gefur foreldrum tækifæri til þess að forma samstarf sín á milli og styrkja foreldrastarfið.

Við minnum ykkur á að fara eftir og nota foreldrasáttmálan. Það að gefa sér tíma og hitta bekkjarfélaga og foreldra barnsins sín eftir skóla getur reynst árangursríkt á marga vegu. Foreldrastarf gefur foreldrum tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á vináttu barna og í leiðinni auðga eigið félagslíf. Vert er að hafa í huga að hlutverk foreldra er ekki eingöngu að stuðla að góðum samskiptum milli barna, heldur líka í foreldrahópnum. Við hvetjum ykkur til að ákveða sem fyrst hvað þið ætlið að gera með bekknum ykkar. Hér er tengill inn á skjal þar sem foreldrafulltrúar geta skráð upplýsingar um bekkjarhittinga á vorönn, hvað á að gera og hvenær.

Gott endurskinsmerki er gulli betra!

Við minnum á að enn er mikið myrkur á morgnana og sérstaklega núna á meðan snjólaust er. Við hvetjum alla til að ganga í skólann á morgnana og vera með endurskinsmerki á útifatnaði og skólatösku til þess að sjást betur í myrkrinu, þetta á einnig við um nemendur sem koma með skólabíl í skólann. Mikil umferð getur verið við skólann á morgnana og þegar beðið er eftir skólabíl, þess vegna er mikilvægt að vera með endurskinsmerki.

Foreldrar sem skutla börnum sínum í skólann á morgnana er bent á að nota sleppisvæði sem er í Mímisvegi norðan við skólann. Vinsamlega akið ekki inn á efra bílastæðið við Mímisveg þegar verið er að skutla í skólann.

User uploaded image
zoom_out_map

Samráðsfundir foreldra

29. og 30. janúar. Opnað verður fyrir skráningu í viðtöl í upphafi næstu viku.

User uploaded image
zoom_out_map

Foreldrakönnun

Á hverju ári leggjur skólinn fyrir foreldrakönnun Skólapúlsins. Viljum við biðja þá foreldra sem lenda í úrtaki í ár að svara könuninni. Því fleiri sem svara því marktækari niðurstöður fær skólinn.

User uploaded image
zoom_out_map

Vetrarfrí

Dagana 19. - 20. febrúar er vetrarfrí í skólanum.

Fréttir úr skólaráði

Skólaráð Dalvíkurskóla er skipað sjö fullltrúum, þrír starfsmenn skólans, tveir fulltrúar foreldra, einn fulltrúi úr nærsamfélaginu ásamt skólastjóra. Nánar er hægt að lesa um skólaráð hér.

Skólaráð fundar fjórum sinnum á skólaárinu auk þess að boða til opins fundar fyrir foreldra þar sem boðið er upp á fræðslu eða kynningu á skólastarfinu. Á síðast fundi skólaráðs kynntu tveir nemendur í 10. bekk, þeir Viktor og Anton, samþætta verkefnavinna í íslensku, náttúru- og samfélagsfræði (Flippverkefni) og nýjungar í lestrarkennslu. Þeir voru sammála um að Flippverkefnin væru góð og þeir sýndu hvernig færni, þekking og leikni hefur aukist frá því byrjað var að vinna Flipp í 7. bekk og hvernig þeir nálguðust útfærslu verkefna út frá námsmarkmiðum og hæfni sem ætlast er til að nemendur öðlist færni í. Þeir kynntu einnig breyttar áherslur í lestrarkennslu sem felast annars vegar í því að nemendur þurfa að lesa eina bók að eigin vali sem þeir vinna verkefni úr að loknum lestri og hinsvegar bók sem allur bekkurinn les samkvæmt áætlun og vinnur verkefni upp úr. Með þessum leiðum er nemendum veitt aðhald í lestri og fylgst með að þeir lesi bæði í skólanum og heima.

Lesfimipróf og stöðu- og framvindupróf

Í janúar höfum við verið að leggja lestrarpróf fyrir alla nemendur skólans til að kanna þróun í lestrarnámi nemenda. Lesfimiprófin veita okkur upplýsingar um styrkleika og áskoranir í lestrarnáminu og hvernig við getum mætt þörfum barna til að gera lestrarnámið árangursríkt. Við minnum enn og aftur á mikilvægt hlutverk foreldra í lestrarnámi barna. Allir nemendur skólans eiga að lesa að lágmarki í 15-20 mínútur á dag. Í foreldraviðtölum í næstu viku munu umsjónarkennarar fara yfir niðurstöður lesfimiprófa og skoða framfarir í lestri.


Stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði eru ný próf sem skylt er að leggja árlega

fyrir nemendur í 4., 6. og 9. bekk. Einnig verður boðið upp á að leggja stöðu- og framvindupróf fyrir í 5., 7., 8. og 10. bekk en það er valfrjálst. Búið er að taka ákvörðun um að allir nemendur í 4.-10. bekk taki þessi próf í mars og munum við þá fá góðar upplýsingar um námslega stöðu sem nýtist á næsta ári til að meta framvindu í námi. Prófin eru rafræn og gert er ráð fyrir að niðurstöður þeirra liggi fyrir í apríl eða byrjun maí.

Fréttir úr skólastarfinu Fréttir úr skólastarfinu

User uploaded image
zoom_out_map

Fréttir úr 10. bekk

Í 10. bekk erum við þessa dagana að skoða aðdraganda og afleiðingar seinni heimsstyrjaldarinnar og jafnframt eru nemendur að velta fyrir sér hvort það sé eitthvað líkt með heiminum í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar og heiminum í dag.

Nemendur eru að vinna fjölbreytt verkefni þar sem þau þurfa meðal annars að setja sig í spor 15 ára unglings í Þýskalandi 1933 og skrifa nokkrar dagbókarfærslur, bera saman nasisma og kommúnisma, velta fyrir sér helförinni gegn Gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni og arfleifð hennar í dag. Þá erum við að horfa á kvikmyndina "Der Untergang" og vinna verkefni tengt henni. Að lokum eru nemendur að skoða auglýsingar í Morgunblaðinu eða Alþýðublaðinu frá 1920 - 1929 og skrifa kvörtunarbréf þar sem þau keyptu það sem auglýst var og það stóðst ekki væntingar.


Meðfylgjandi er mynd af kvörtunarbréfi sem nemandi í 10. bekk gerði.

Fréttir úr 9. bekk

9. bekkur hefur á fyrstu vikum ársins verið að kynna sér náttúruna og umhverfið á ýmsan máta. Meðal annars hafa þau fengið kennslu í ýmsum náttúrutengdum hugtökum eins og ljóstillífun og bruna, gróðurhúsaáhrifum og ósonlaginu og fengið fræðslu um vistheimt og náttúruvernd. Þá hafa þau verið að vinna hópverkefni um sjálfbærni. Markmiðin með þessum verkefnum eru að nemendur átti sig betur á tengslum sínum við náttúruna, efli vísindalæsi sitt og átti sig á því hvað þeir geta gert til að vernda náttúruna og lífríki hennar.

Fréttir úr 1. og 2. bekk

Fyrsti og annar bekkur byrjaði nýtt ár með vinnu með eldfjöll. Verkefnið var samþætting Byrjendalæsis og náttúrufræði þar sem unnin voru fjölbreytt lestrar, ritunar og lestrarverkefni. Skoðuð voru myndbönd af ýmsu sem tengist eldgosum og jarðskjálftum og miklar og góðar umræður sköpuðust. Við fórum á sandinn í útikennslu þar sem búin voru til eldfjöll með frjálsri aðferð. Það sem bar hæst var þó án efa að nemendur bjuggu til eldfjöll úr dagblöðum í stöðvavinnu og að lokum voru þau svo máluð. Hápunkturinn var svo þegar við gerðum tilraunir með að búa til eldgos og þær tilraunir heppnuðust afar vel við mikinn fögnuð nemenda. Þar gafst okkur tækifæri til að bæta við umræðum um varnargarða því „hraunið“ var á góðri leið með að renna út af borðinu. Þetta voru mjög skemmtilegir tímar og börnin virkilega áhugasöm og dugleg.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Fréttir frá íþróttateyminu

Við lok haustannar voru skemmtileg uppbrot í íþróttatímum með allskonar nýjum leikjum, þar sem bæði bekkjum og hópum var blandað saman. Nýir leikir litu dagsins ljós eins og Grinch og snjókorn falla, í bland við gamlar hefðir eins og ísjakahlaup, sem gleður nemendur á öllum aldri, frá 1. til 10. bekk.

Þátttakendur hlaupa eða fara yfir afmarkað svæði þar sem „ísjakar“ (til dæmis plattar, kubbar, dýnur eða merkt svæði) tákna örugga staði. Á milli ísjakanna er „hættusvæði“ sem má ekki snerta. Nemendur þurfa að hreyfa sig hratt, hugsa skynsamlega og oft vinna saman til að komast yfir án þess að detta í sjóinn.

Á unglingastigi er mikill spenningur þegar ljósin eru slökkt og skotboltaleikurinn Feluskoti er spilaður í myrkri. Óttinn kitlar í maganum, hræðslan læðist að í augnablikinu fyrir startið, spennan magnast og breytist síðan í óbeislaða gleði þegar takmarkinu er náð.

Í sundi var áhersla lögð á frjálsan leik á yngra stigi. Nemendur nutu sín í frjálsum leik með dót og juku þannig sundhæfni sína á náttúrulegan og skemmtilegan hátt þar sem gleði og sköpun réðu ferðinni.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Fréttir úr dönsku

Í dönsku í 7. bekk erum verið að vinna í námslotu um fjölskylduna. Eitt af verkefnunum sem þau vinna er að gera sit eigið ættartré á dönsku. Þar er áhersla lögð á hugmyndaauðgi og sköpun ásamt því að æfa orðaforða um fjölskylduna.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Fréttir úr 7.-8. bekk

Í 7.-8. b. hófst nýárið með innliti í horfna tíð. 7. bekkur horfði á sjónvarpsþættina um Nonna og Manna en 8. b. horfði á þættina Sigla himinfley. Tilgangurinn er annars vegar að börnin læri um og kynnist því hvernig lífið var á Íslandi á 19. öld og hins vegar hvernig var að alast upp og taka þátt í íslensku samfélagi í litlu sjávarþorpi úti á landi undir lok síðustu aldar. Að auki fræðast börnin um verk Jóns Sveinssonar, kvótakerfið, mikilvægi þess að taka ábyrgð og sýna elju og fleira. Nemendur gera skapandi verkefni sem reyna á hugmyndaflug og útsjónarsemi. Einnig er áhersla á aukinn málskilning og orðaforða.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Fréttir úr 3.-4. bekk

Við í 3. og 4. bekk getum sagt frá því að Í tilefni nýs árs ræddum við um áramótaheit og markmið sem við getum sett okkur í námi og daglegu lífi. Nemendur settu sér nokkur markmið fyrir árið og föndruðu stjörnuskraut þar sem markmiðin koma fram. Dæmi um markmið eru falleg orð sem ég get sagt við aðra, bók sem ég vil lesa, matur sem ég við borða og spil sem ég vil spila. Stjörnurnar skreyta nú stofurnar okkar og verður gaman að skoða þær aftur í lok árs.

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Nemendakönnun skólapúlsins

Nemendakönnun Skólapúlsins var lögð fyrir nemendur í 2. – 5. bekk í annað skipti nú í ár. Könnunin var lögð fyrir í október og var svarhlutfall 100%. Hér á eftir verður farið yfir helstu niðurstöður og eru þær flokkaðar í fernt, ánægja af lestri, ánægja með skólann, vellíðan í skólanum og ánægja með matinn í skólanum. Breyting frá fyrri mælingu og munur á gildi skólans miðað við landsmeðaltal eru tilgreind með lituðum stöfum, rauðum ef samanburðurinn er neikvæður en grænum ef hann er jákvæður. 0,5 stig telst ekki mikill munur, 1,0 stig telst töluverður munur og munur uppá 1,5 stig og meira telst mikill munur.

User uploaded image
zoom_out_map

Ánægja af lestri

Eins og sjá má kemur Dalvíkurskóli mjög vel út úr þessum þætti. Í nær öllum árgöngum er skólinn marktækt yfir landsmeðaltali, sem er frábær árangur þó svo að það sé neikvæð breyting í þremur árgöngum á milli ára. Ekki mikill munur er á milli kynja þegar kemur að ánægju af lestri en stúlkurnar eru örlítið hærri.

User uploaded image
zoom_out_map

Ánægja með skólann

Þessi þáttur kemur einnig vel út og erum við yfir landsmeðaltali í öllum árgöngum. Ekki mikill munur er á milli kynja en stelpurnar eru þó aðeins hærri í tveimur árgöngum. Í tveimur árgöngum er neikvæð breyting hjá okkur milli ára en í tveimur jákvæð breyting.

User uploaded image
zoom_out_map

Vellíðan í skólanum

Árgangar 2. – 5. bekkjar ágætlega út úr þessum þætti. Dalvíkurskóli er alls staðar yfir landsmeðaltali nema í einum árgangi. Miðað við niðurstöður þá er neikvæð breyting í 4 árgöngum og jákvæð breyting í einum árgangi. Við þurfum að skoða hvað veldur þessum breytingum hjá okkur þrátt fyrir að skólinn sé yfir landsmeðaltali því alltaf viljum við gera betur. Það er eins í þessum þætti og hinum tveimur að ekki er mikill munur á milli kynja en eru stelpurnar örlítið hærri þegar kemur að vellíðan í skólanum.

User uploaded image
zoom_out_map

Ánægja með matinn í skólanum.

Almenn ánægja er með matinn og er Dalvíkurskóli marktækt 12,5% yfir landsmeðaltali þegar kemur að ánægju með skólamatinn. Það kemur okkur ekki á óvart enda er boðið upp á mjög góðan mat í skólanum.

Stjórnendur Dalvíkurskóla
Stjórnendur is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter