Smore logo
remove_red_eye 322
page background

Fréttabréf VA

Október 2019. 1. tölublað.

Fréttabréf VAOktóber 2019. 1. tölublað.

Allt á fullu í skólastarfinu

Síðastliðinn mánuð hefur ýmislegt verið gert í Verkmenntaskóla Austurlands. Stórir viðburðir hafa verið haldnir, nýtt nemendaráð hefur tekið við, umhverfismál hafa verið í brennidepli og undirbúningur er hafinn fyrir Gettu-betur. Meira um það hér fyrir neðan.

Tæknidagur 2019

Tæknidagur fjölskyldunnar var haldinn í sjöunda sinn laugardaginn 5. október síðastliðinn. Mikill mannfjöldi sótti daginn heim eins og undanfarin ár. Er viðburðurinn einn sá fjölsóttasti á Austurlandi og hefur skapað sér sterkan sess í austfirsku samfélagi. Líkt og undanfarin ár var dagskráin gríðarlega fjölbreytt og ungir og aldnir fundu allir eitthvað við hæfi.


Lesa má um daginn hér fyrir neðan og sjá dagskrá hans.

Tæknidagur fjölskyldunnar 2019

Tæknidagur fjölskyldunnar 2019

Tæknidagur fjölskyldunnar 2019 Tæknidagur fjölskyldunnar var haldinn í sjöunda sinn á laugardaginn var.

launch va.is

Dagskrá

launch taeknidagur.is

Nýtt nemendaráð

Á haustdögum var efnt til kosninga í nemendaráð. Einn hópur bauð sig fram í nemendaráð og var því sjálfkjörinn. Í stjórn nemendafélagsins skólaárið 2019-2020 sitja María Bóel formaður, Birna Marín varaformaður, Steinunn Dagmar gjaldkeri og Ýr ritari. Meðstjórnendur eru Aníta Rakel, Eva Björg, Eyrún Arna og Særún Birta. Frekari upplýsingar um nemendafélagið og skipan í önnur ráð og nefndir má finna hér.


Stjórnin er strax farin að láta til sín taka og í þessum töluðu orðum er verið að taka nemendafélagsherbergið allt í gegn. Búið er að rífa niður vegg og málningarvinna að hefjast. Félagið er að panta nemendafélagspeysur og haldið var myndarlegt kaffihús á Tæknideginum. Fjöldi mála er á stefnuskrá stjórnarinnar og það verður gaman að fylgjast með þeim að störfum.

Austfirsku ólympíuleikarnir endurvaktir

Austfirsku ólympíuleikarnir voru nýlega endurvaktir. Um er að ræða samstarfsverkefni við FAS og ME. Að þessu sinni var dagurinn haldinn hér í Neskaupstað og var keppt í fjölda greina.


Afar ánægjulegt var að sjá daginn endurvakinn og verður gaman að sjá hann skjóta sterkum rótum í félagslífi skólans á næstu árum.


Hvaða skóli bar sigur úr býtum? Smelltu á fréttina hér fyrir neðan.

Austfirsku ólympíuleikarnir

Austfirsku ólympíuleikarnir

Austfirsku ólympíuleikarnir Í gær fóru fyrstu austfirsku ólympíuleikarnir í um áratug fram.

launch va.is
zoom_out_map

Keppt í Partners á Austfirsku ólympíuleikunum

zoom_out_map

Úrtökupróf í Gettu-betur

zoom_out_map

Fyrirlestur frá samtökunum Ungir umhverfissinnar

Gettu-betur undirbúningur hafinn

Undirbúningur er hafinn fyrir Gettu-betur, spurningakeppni framhaldsskólanna. Þann 11. september var haldin opin æfing sem var vel sótt og viku síðar var haldið úrtökupróf þar sem keppt var að því að komast í æfingahópinn.


Frekari fréttir af Gettu-betur undirbúningi má lesa hér fyrir neðan.

Undirbúningur fyrir Gettu betur

Undirbúningur fyrir Gettu betur

Undirbúningur fyrir Gettu betur Undirbúningur skólans fyrir Gettu betur hófst formlega í morgun með opinni æfingu.

launch va.is
Úrtökupróf Gettu betur

Úrtökupróf Gettu betur

Úrtökupróf Gettu betur Undirbúningur fyrir Gettu betur hélt áfram í dag þegar töluverður hópur nemenda þreytti úrtökupróf með það að markmiði að komast í

launch va.is

Umhverfisnefnd VA

Umhverfismál eru mjög áberandi innan skólans enda skartar hann Grænfána. Innan skólans er virk umhverfisnefnd þar sem sitja fulltrúar starfsfólks og nemenda og skipulögð eru ýmis verkefni sem snúa að umhverfismálum.


Í september fengu nemendur fræðslu frá samtökunum Ungir umhverfissinnar. Þar var fjallað um hvað við getum gert til þess að sporna við loftslagsbreytingu og hvernig við getum haft áhrif á nærsamfélag okkar og umhverfismál sem snerta okkur beint. Hægt er að kynna sér samtökin hér.


Nefndin vakti einnig athygli á plastlausum september og á degi íslenskrar náttúru var sett um fataskiptislá í skólanum. Hún vakti mikla athygli og skrifað var um hana í Austurfrétt. Fréttina má sjá hérna fyrir neðan.

Vilja vekja athygli á fatasóun

Vilja vekja athygli á fatasóun

launch austurfrett.is

Erasmus+ fréttir

Nú fer að styttast í næsta hluta verkefnisins Will to MotivatE(U). Nemendurnir Steinunn Dagmar og Atli Fannar halda til Poggibonsi á Ítalíu með starfsmönnunum Birgi og Salóme þann 20. október. Þar verður unnið í anda jafningjafræðslu og er dagskráin þéttskipuð vikuna þar á eftir. Síðan verður haldið heim þann 26.


Í desember verður síðan næsti verkefnishlutinn og þá verður haldið til Ungverjalands þar sem nemendur kynnast því að læra í gegnum leik. Umsóknarfrestur er enn fyrir Ungverjalandsferðina sem mun standa frá 9.-13. desember.


Hér fyrir neðan má sjá frekari upplýsingar um erlent samstarf innan skólans.

Erasmus+ verkefni

Erasmus+ verkefni í VA 2019 - 2021 KA102 - Nám og þjálfun -  Barist gegn brottfalli í VA II Styrkupphæð: 16.740 evrur Verkefnið felst í ferðum

launch va.is
zoom_out_map

Tæknidagur 2019

zoom_out_map

Tæknidagur 2019

zoom_out_map

Tæknidagur 2019

Tæknihornið - Padlet

Þá er komið að næsta lið í tæknihorninu. Það er hið veflæga forrit Padlet. Padlet er rafræn tafla þar sem allir geta lagt sitt af mörkum og skrifað á töfluna úr ipad, síma eða tölvu. Meðal þess sem hægt er að skrifa texta, teikna myndir, setja inn myndir og myndbönd.


Við hvetjum þig til að prófa Padlet með því að smella hér.

Á döfinni

Vetrarfrí 21.-22. október.

Langar þig að læra að búa til vefsíðu? Opið námskeið í VA. Hefst 29. október. Langar þig að læra að búa til vefsíðu? Opið námskeið í VA. Hefst 29. október.

Langar þig að læra að búa til vefsíðu?

Langar þig að læra að búa til vefsíðu?

Event in Neskaupstadhur, Iceland by Verkmenntaskóli Austurlands on Tuesday, October 29 2019

launch facebook.com
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter