Smore logo
remove_red_eye 599
page background
Logo

Tæknótíðindi

15. október 2025

Tæknótíðindi 15. október 2025
Tæknótíðindi15. október 2025

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 15. október - Starfsdagur
  • 16. október - Spönn 2 hefst
  • 16. október - Vöfflukaffi
  • 22. október - Klúbbakvöld
  • 23. október - Útskriftarhúfumátun
  • 29. október - Útskriftarsýning hársnyrtinema
  • 29. október - Halloween klúbbakvöld
SKÓLADAGATAL

Vöfflukaffi Tækniskólans Vöfflukaffi Tækniskólans

User uploaded image
zoom_out_map

Fimmtudaginn 16. október

Við fögnum nýrri spönn á morgun fimmtudag með því að bjóða öllum nemendum og starfsfólki upp á vöfflur. Vöfflubaksturinn fer fram í matsölum Tækniskólans á Skólavörðuholti, Háteigsvegi og í Hafnarfirði. Auk þess verða vöfflur bakaðar í aðstöðu skólans í Skeljanesi og Árleyni.

Verið öll velkomin í vöfflukaffi frá og með klukkan 14:00 og fögnum nýrri spönn með rjúkandi heitum vöfflum og meðþví.

Íslensku menntaverðlaunin Íslensku menntaverðlaunin

User uploaded image
zoom_out_map

Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 voru tilkynntar í vikunni. Fulltrúar Tækniskólans eru tilnefnd í tveimur flokkum. Annars vegar er fataiðndeild Tækniskólans tilnefnd fyrir einstaklega metnaðarfulla og faglega kennslu. Hins vegar er Gunnar Sigurjónsson, kennari á pípulagningabraut, tilnefndur fyrir einstaka alúð við nemendur og fagmennsku í starfi. Við óskum þeim innilega til hamingju.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size
Frétt um málið á vefsíðu Tækniskólans

Stöndum saman gegn ofbeldi Stöndum saman gegn ofbeldi

User uploaded image
zoom_out_map
Ofbeldi, áreiti og einelti eiga hvergi heima, hvorki í skólanum né utan hans. Í Tækniskólanum eigum við öll að geta verið við sjálf, fundið öryggi og notið virðingar. Ef eitthvað kemur upp, er mikilvægt að vita hvert hægt er að leita og hvernig hægt er að bregðast við.


Á vefnum Stopp ofbeldi! er fræðsluefni ætlað ungmennum, foreldrum og starfsfólki um kynbundið ofbeldi og áreiti, mörk, samskipti og samþykki.


Ungmenni geta einnig nýtt sér vefinn Sjúk ást þar sem finna má sjálfspróf, fræðslumyndbönd og upplýsingar um hvar hægt er að fá aðstoð.


Hægt er að tilkynna einelti, áreitni, kynferðislegt ofbeldi eða annað ofbeldi
á heimasíðu skólans.

Það er styrkur að segja frá - Stopp ofbeldi!

Tilkynna ofbeldi

Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki Alúð - Framsækni - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter