Tæknótíðindi
15. október 2025
Dagsetningar framundan
- 15. október - Starfsdagur
- 16. október - Spönn 2 hefst
- 16. október - Vöfflukaffi
- 22. október - Klúbbakvöld
- 23. október - Útskriftarhúfumátun
- 29. október - Útskriftarsýning hársnyrtinema
- 29. október - Halloween klúbbakvöld
Vöfflukaffi Tækniskólans
Fimmtudaginn 16. október
Við fögnum nýrri spönn á morgun fimmtudag með því að bjóða öllum nemendum og starfsfólki upp á vöfflur. Vöfflubaksturinn fer fram í matsölum Tækniskólans á Skólavörðuholti, Háteigsvegi og í Hafnarfirði. Auk þess verða vöfflur bakaðar í aðstöðu skólans í Skeljanesi og Árleyni.
Verið öll velkomin í vöfflukaffi frá og með klukkan 14:00 og fögnum nýrri spönn með rjúkandi heitum vöfflum og meðþví.
Íslensku menntaverðlaunin
Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 voru tilkynntar í vikunni. Fulltrúar Tækniskólans eru tilnefnd í tveimur flokkum. Annars vegar er fataiðndeild Tækniskólans tilnefnd fyrir einstaklega metnaðarfulla og faglega kennslu. Hins vegar er Gunnar Sigurjónsson, kennari á pípulagningabraut, tilnefndur fyrir einstaka alúð við nemendur og fagmennsku í starfi. Við óskum þeim innilega til hamingju.
Stöndum saman gegn ofbeldi
Á vefnum Stopp ofbeldi! er fræðsluefni ætlað ungmennum, foreldrum og starfsfólki um kynbundið ofbeldi og áreiti, mörk, samskipti og samþykki.
Ungmenni geta einnig nýtt sér vefinn Sjúk ást þar sem finna má sjálfspróf, fræðslumyndbönd og upplýsingar um hvar hægt er að fá aðstoð.
Hægt er að tilkynna einelti, áreitni, kynferðislegt ofbeldi eða annað ofbeldi á heimasíðu skólans.
Það er styrkur að segja frá - Stopp ofbeldi!