Fréttabréf Flóaskóla
júní 2026
Kæra skólasamfélag
Senn líður að skólalokum, viðburðarríkt ár að baki.
Í komandi viku fara nemendur í 5.-9. bekk í vorferðir. Miðstig í Þjórsárdal og eldri nemendur á Stokkseyri og í Þorlákshöfn. 10. bekkur fer í sína árlegu útskriftarferð að Bakkaflöt. Nemendur yngsta stigs fóru í sína vorferð í síðustu viku. Föstudaginn 5. júní er síðasti skóladagurinn. Þann dag er íþróttadagur þar sem nemendur í 7.-10. bekk taka þátt í ýmiskonar óhefðbundnum keppnisgreinum milli bekkja og safna stigum. Nemendur þess bekkjar sem safnar flestum stigum eru svo krýndir Íþróttadagsmeistarar. Dagurinn endar á fótboltamóti þar sem bekkirnir etja kappi. Síðasti leikur þess móts er svo milli útskriftarnema og starfsmanna skólans. Þennan dag er síðasti skólaakstur skólaársins.
Skólaslit og útskrift 10. bekkjar er síðan mánudaginn 8. júní. Skólaslitin hjá 1.-9. bekk eru klukkan 10:00 í Þjórsárveri síðan fara nemendur með umsjónarkennurum í sínar heimastofur, fá afhentan vitnisburð/stöðumat, kveðja og halda síðan út í sumarið. Frístund er opin mánudag, þriðjudag og miðvikudag í næstu viku og er mikilvægt að skrá nemendur þessa daga upp á skipulag.
Útskrift 10. bekkjar er síðan klukkan 17:00 þennan sama dag í Þjórsárveri. Þar verða haldnar nokkrar ræður og flutt tónlistaratriði. Líkt og venja er sláum við upp Pálínuboði í lok útskriftar, þar sem aðstandendur tíundubekkinga koma með kræsingar á veisluborðið.
Maímánuður hefur verið fekar kaldur en við höfum ekki látið það hafa áhrif á okkur. Mánuðurinn hefur einkennst að mikilli útikennslu og þar höfum við meðal annars nýtt okkur þekkingu sem við öðluðumst í Brighton í fyrravor, þar sem við lærðum m.a. að kveikja upp eld með neista og bómull, útbúa viðarkol og gera ýmiskonar handverk úti í náttúrunni. Matjurtirnar sem var vetrarsáð hafa dafnað vel, nemendur yngsta stigs hafa verið að umpotta þeim og nú bíða þær þess að vera settar í beð fyrir sumarið.
Niðurstöður matsferilsprófa lágu fyrir í lok mánaðar og við megum vel við una, niðurstöður sýna að Flóaskóli er á pari við landsmeðaltal bæði í lesskilningi og stærðfræði.
Skil á vitnisburði og stöðumati til nemenda er í aðeins breyttu formi í takti við áherslur Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Mennta- og barnamálaráðuneytis. Nemendur í 4., 7. og 10. bekk fá vitnisburð, lokaeinkunn, í bókstöfum en aðrir árgangar fá stöðumat. Nemendur í 1.-10. bekk fá svo lesferilsyfirlit og nemendur í 4.-10. bekk matsferilsyfirlit. Hér neðst í Fréttabréfinu eru nánari upplýsingar um þetta fyrirkomulag sem ég hvet ykkur til að kynna ykkur vel.
Sumarfrístund fyrir nemendur í 1.-4. bekk opnar mánudaginn 17. ágúst og skólasetning skólaársins 2026-2027 er þriðjudaginn 25. ágúst.
Farsæll vetur er að baki og við höldum glöð og sátt út í sumarið
Hlökkum til að sjá ykkur á skólaslitum og í útskrift
bestu kveðjur úr Flóaskóla
Þórunn Jónasdóttir
Litla upplestrarhátíðin
Litla upplestrarhátíðin í fjórða bekk var haldin í skólanum á miðvikudaginn 6. maí. Reyndar sýndu nemendur ekki bara snilldartakta í lestri heldur spiluðu þau líka á hljóðfæri og sungu tvö lög. Þriðji bekkur tók þátt í söngnum og fylgdist með hátíðinni enda eiga þau sviðið að ári. Fulltrúar okkar í Stóru upplestrarkeppninni komu og lásu upp ljóð að eigin vali. Þetta var mjög vel heppnuð hátíð og öllum til sóma sem að henni komu.
Skólahreysti
Skólahreystilið Flóaskóla keppti í undanúrslitum 6. maí og stóð sig alveg frábærlega vel. Krakkarnir gáfu allt í þetta og skiluðu okkur í þriðja sæti í sínum riðli, með 64 stigum og aðeins þremur stigum á eftir liðinu sem var efst í riðlinum. Sannarlega vel að verki staðið. Dagurinn var rauður í skólanum af þessu tilefni, bæði starfsmenn og nemendur rauðklæddir og margir skörtuðu nýju rauðu bolunum sem foreldrafélagið var að selja fyrir skemmstu. Elmar stýrði pepphátíð sem hófst í Þjórsárveri um 13:30, þar var lagið okkar sungið og keppendur hylltir af öllum í skólanum. Rúta með 35 manna stuðningsmannaliði lagði svo upp kl 15:00. Í Íþróttamiðstöðina að Varmá komu svo fleiri stuðningsmenn til að hvetja okkar lið. Enn fleiri sátu svo límdir við skjáina ýmist heima hjá sér eða í góðra vina hópi og sendu góða strauma. Það er frábært að sjá hversu samfélagið allt í Flóahreppi stendur á bak við keppnisliðið okkar. Í keppnisliðinu voru þau Ásta Björg Jónsdóttir, Kári Einarsson, Kristófer Máni Andrason og Lilja María Axelsdóttir. Varamenn voru þau Guðni Bóas Davíðsson og Katín Lísa Guðmundsdóttir Johnsen. Þjálfari liðsins var svo að sjálfsögðu líkt og áður hann Örvar. Við óskum þeim öllum hjartanlega til hamingju með árangurinn. Við erum afar stolt af þessum frábæru fulltrúum skólans okkar.
Smiðjur með skólunum í Uppsveitum Árnessýslu
Síðustu smiðjur vetrarins voru haldnar 7. og 8. maí. Miðstigssmiðjurnar voru hér í Flóaskóla í gær og voru þær afar vel heppnaðar. Allt skipulag var til fyrirmyndar og verkefnin á stöðvunum vel útfærð, ólík og skemmtileg. Pylsupartýið gekk mjög vel. Gestirnir okkar voru ánægðir og sáttir í lok dags og ég held að flestir hafi átt mjög góðan dag. Almenn ánægja var með smiðjurnar vetrarins. Þetta samstarf auðgar skólastarfið okkar og er ánægjuleg viðbót við verkefni skólans.
Styrkur frá Íþrótta-, æskulýðs- og menningarnefnd Flóahrepps
Eins og flest ykkar vita sem fylgst hafa með leikritum í Flóaskóla undanfarin ár þá hefur Hallfríður Ósk deildarstjóri skólans komið að handritum flestra uppsetninga á öllum stigum skólans. Hún fléttar gjarna nærumhverfið inn í leikverkin og staðfærir þekkt verk. Á Fjöri í Flóa fékk verkefnið "Leiklistarstarf í Flóaskóla" styrk að upphæð 130.000 kr frá Íþrótta-, æskulýðs- og menningarnefnd Flóahrepps. En það var einmitt Halla sem sótti um þann styrk með það í huga að efla og styrkja enn frekar leiklistarstarf í skólanum. Styrkinn nýtir hún í endurmenntun í handritagerð og til að búa til handritasafn fyrir skólann. Þannig að við getum hlakkað til næstu ára og komandi leiksýninga.
Kórar Flóaskóla sungu á Fjöri í Flóa
Vorskólavika verðandi 1. bekkinga
Vorskólavika var 11.-15. maí þar sem nemendur í verðandi 1. bekk komu í Flóaskóla og kynntust flestum innviðum hans í leik og starfi. Fimm nemendur eru væntanlegir í fyrsta bekk í haust.
Uppskeruhátíð Gullanna í grenndinni
Samstarfsverkefni Krakkaborgar og Flóaskóla, Gullin í grenndinni, þar sem nemendur hittast í Skagási skipar orðið fastan sess í skólastarfinu. Yfir veturinn hittast elstu nemendur Krakkaborgar og 1. bekkur Flóaskóla í þessu verkefni en á lokahátíðina er öllum nemendum yngsta stigs og börnum af elstu deild Krakkaborgar boðið með. Mánudaginn 18. maí var þessi uppskeruhátíð haldin í Skagási. Börnin byggðu virki úr greinum, þrykktu blómamyndir og léku sér í skóginum. Svo var endað á að grilla hamborgara sem börnin borðuðu af bestu lyst.
Langspilsvaka
Langspilsvaka var haldin í Þjórsárveri 19. maí þar spiluðu nemendur í 5. og 6. bekk undir stjórn Eyjólfs Eyjólfssonar. Einnig kom til okkar góður gestur, Jófríður Ákadóttir tónlistarkona. Þetta var mjög vel heppnuð kvöldstund og gaman að sjá langspilsvökuna sem einn af föstum liðum í starfi skólans.
Royalkvöld
Hið árlega Royalkvöld var haldið fyrir 7.-10. bekk. Nemendur mættu prúðbúnir til veislunnar, borðuðu hátíðarmat, fóru í samkvæmisleiki og skemmtu sér saman. Þetta er alltaf hátíðleg stund og starfsmenn fyllast stolti að fylgjast með þessum glæsilegu ungmennum.
Útivistar- og leikjahátíð yngsta stigs í samstarfi við Þjótanda
Föstudaginn 22. maí var lengri skóladagur hjá yngsta stigi. Venjan er að eftir hádegi á föstudögum fari nemendur í 2.-4. bekk á Þjótandaæfingu en þetta er annað árið sem slegið er upp útivistar- og leikjahátíð fyrir allt yngsta stig einn föstudag í maí í samstarfi við Þjótanda. Nemendur grilluðu, fóru í fjölbreytta útileiki, lærðu að hnýta ýmiskonar hnúta og fengu andlitsmálningu.
Miðstigskór Flóaskóla
Þriðjudaginn 26. maí fór Miðstigskórinn í uppskeruferð sem skipulögð var af stjórn kórsins og kórstjóra. Ákveðið var að fara í þessa ferð, með leyfi skólastjórnenda, þar sem kórinn er búinn að takast á við krefjandi verkefni í vetur, söngvarar hafa sýnt þrautseigju og hópurinn tekið miklum framförum sem kór. Kórinn hefur tekið að sér ýmis verkefni utan skóla, sungið á Aðventuhátíð Flóahrepps, á Fjöri í Flóa og haldið sína fyrstu tónleika í Skálholti í samstarfi við Skólakór Hvolsskóla.
Í stuttu máli sagt þá heppnaðist ferðin í alla staði mjög vel.
Fyrst var farið í heimsókn á Ásbyrgi sem er ein deild á Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. Þar söng kórinn fyrir heimilisfólk hluta af sinni tónleikadagskrá og voru viðtökur mjög góðar, enda okkar fólk til fyrirmyndar bæði hvað varðar söng og framkomu.
Þá var haldið í Baulu þar sem veðrið lék við fólk og gleðin var við völd. Þar voru svo grillaðar pylsur og eftir mat var farið í Listigarðinn í Hveragerði þar sem nemendur úr 6. bekk stýrðu leikjum.
Það var glatt og stolt fólk sem kom svo heim í Flóaskóla rétt áður en skóladegi lauk.
Kór- og vorferð yngsta stigs
Á miðvikudaginn fór yngsta stig í skemmtilega ferð í Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Ferðin hófst á söngsamveru með Yngsta stigs kór Þjórsárskóla. Voru það tónmenntakennararnir og kórstjórarnir Eyrún Jónasdóttir og Elín Sigríður Jónsdóttir sem stóðu að og skipulögðu þessa stund. Krakkarnir sungu bæði í sitt hvoru lagi og einnig sameiginlega nokkur lög. Þau sungu af krafti og innlifun og stóðu sig frábærlega.
Eftir sönginn var boðið upp á morgunhressingu og svo var nemendum skipt í tvo hópa. Annar hópurinn fór í sund í Neslaug á meðan hinn var í frjálsum leik á leiksvæðinu við Árnes og Þjórsárskóla. Í hádeginu var boðið upp á grillaðar pylsur og svo skiptu hópar um hlutverk.
Dagurinn tókst í alla staði mjög vel og þökkum við kærlega fyrir frábærar móttökur.
Vitnisburður nemenda vorið 2026
Nemendur í 4., 7. og 10. bekk fá lokamat í bókstöfum D, C, C+, B, B+, A. Aðrir árgangar fá stöðumat, samantekt hæfniviðmiða. En það er yfirlit yfir hæfniviðmið sem nemendur hafa lokið á því hæfnikorti sem þeir eru að vinna með. Hæfnikortin skiptast niður þannig að 1.-4. bekkur vinnur með eitt hæfnikort og safnar á það í fjögur ár. 5.-7. bekkur vinnur með eitt hæfnikort og 8.-10. bekkur vinnur með eitt hæfnikort. Alltaf birtist það mat sem síðast var skráð á hæfnikortið.
Á myndinni hér fyrir neðan má sjá dæmi um svona samantekt hæfniviðmiða. Prósentan er ekki alltaf 100% af því að í einhverjum tilvikum er ekki búið að meta nema hluta hæfniviðmiða. Þetta gefur ykkur aðstandendum yfirlit yfir stöðuna en þið getið alltaf farið inn í hæfnikort barnsins á Mentor ef þið viljið kynna ykkur betur hvaða hæfniviðmið liggja undir. Auk þess er velkomið að vera í sambandi við umsjónarkennara eða stjórnendur skólans ef þið viljið nánari skýringar.
Auk þess fá allir nemendur yfirlitsskjal yfir lesferil og nemendur í 4.-10. bekk fá yfirlitsskjal yfir matsferilsprófin frá í mars. Niðurstöður birtast svo á island.is hjá forsjáraðilum hvers barns, sjá nánar í bréfi sem sent var frá skólanum 1.6.2026.