Smore logo
remove_red_eye 643
page background
Logo

Tæknótíðindi

22. nóvember 2024

Tæknótíðindi22. nóvember 2024

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 26. og 27. nóvember - Pælum í pólitík
  • 28. nóvember - Litlu jól framhaldsskólanna
  • 29. nóvember - Fullveldiskaffi
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Pælum í pólitík - fulltrúar stjórnmálaflokka í pallborði Pælum í pólitík - fulltrúar stjórnmálaflokka í pallborði

Íslenski fáninn
zoom_out_map

Alþing­is­kosn­ingar verða haldnar þann 30. nóv­ember næst­kom­andi. Af því til­efni býður Tækni­skólinn til pallborðsumræðna með full­trúum stjórn­mála­flokk­anna dagana 26. og 27. nóv­ember.


Nem­endum skólans verður gefið tæki­færi til þess að koma spurn­ingum á fram­færi, strax á mánu­dags­morgni, með því að senda þær í gegnum „story“ hjá Tækni­skól­anum á Insta­gram.


26. nóvember kl. 12:20

  • Háteigsvegur – Hátíðarsalur
  • Hafnarfjörður – Matsalur nemenda


27. nóvember klukkan 12:20

  • Skólavörðuholt – Matsalur nemenda


Dagskrá og nánari upplýsingar um viðburðinn má sjá á vefsíðu Tækniskólans.

Litlu jól famhaldsskólanna Litlu jól famhaldsskólanna

zoom_out_map

Langar þig að upplifa kósý jólastemningu?


MS, FÁ og Tæknó halda Litlu jól framhaldsskólanna fimmtudaginn 28. nóvember kl. 14:00–16:00.


Þá eru ein­mitt 26 dagar til jóla og því ekki seinna vænna að komast í gott jóla­skap, gæða sér á kakói, hlusta á jóla­tónlist, styrkja góðgerðamál, föndra, næla sér í jóla­fötin á fata­skipti­markaði og eiga góða sam­veru­stund með vinum.


Nem­endur Tækni­skólans geta skráð sig hér og fá leyfi í tíma ef þeir mæta. Lilja Ósk starfsmaður skólans verður við kakóstöðina með nafna­lista og skráir mæt­ingu.


Láttu sjá þig á litlu – en risa­stóru jólum fram­halds­skól­anna!

Fullveldiskaffi Fullveldiskaffi

zoom_out_map
Í til­efni fullveldisdagsins þann 1. desember býður Tækni­skólinn nem­endum og starfs­fólki til hátíðarkaffihlaðborðs.


Kaffið verður haldið föstudaginn 29. nóvember og hefst kl. 9:50 í matsal nem­enda á Háteigs­vegi, í Hafnarfirði og á Skólavörðuholti.


Við hvetjum nemendur og starfsfólk til þess að mæta spari­klædd þennan dag.

Brunaæfing Brunaæfing

Brunaæfing verður í Tækniskólanum í lok næstu viku. Þá verður brunabjallan sett af stað og húsin rýmd eftir ákveðinni rýmingaráætlun.


Þegar bjallan fer í gang eiga öll að fara út og fylgja fyrirmælum þeirra sem eru í gulum vestum. Enginn má fara inn í húsin fyrr en bjallan er hætt að hringja. Áætlað er að æfingin taki um 15 til 20 mínútur ef vel gengur.


Hér má sjá rýmingaráætlun Tækniskólans og við hvetjum ykkur einnig til að horfa á rýmingarmyndbandið hér að neðan.

Rýmingarmyndband

Tölvuþjónusta Tækniskólans Tölvuþjónusta Tækniskólans

Tölvuþjónusta Tækniskólans:

  • Á Skólavörðuholti (2. hæð) – s. 514 9050
  • Á Háteigsvegi (2. hæð) – s. 514 9051
  • Í Hafnarfirði (2. hæð) – s. 514 9052


Einnig er hægt að hafa samband við tölvuþjónustuna í gegnum netfangið tolvuthjonusta@tskoli.is


Finna má ýmsar upplýsingar um tækniaðstoð á vefsíðu skólans. Til dæmis varðandi:
  • Skólanetfang
    Þessi aðgangur gildir að tölvum í skólanum og að Microsoft aðgangi nemenda
  • Lykilorð
    Hvernig er hægt að fá nýtt lykilorð
  • GitHub
    Gefur nemendum Tækniskólans aðgang að ýmsum forritum


Endilega smellið á myndina hér að neðan til að sjá hvaða fleiri gagnlegar leiðbeiningar sem má finna á síðu tölvuþjónustunnar.

Tölvuþjónusta Tækniskólans
open_in_new zoom_out_map

Vel heppnaður skólafundur Vel heppnaður skólafundur

Við þökkum nemendum og starfsfólki skólans fyrir frábæra þátttöku í skólafundi þar sem fjöldi nemenda og starfsfólks ræddu í fjölmörgum hópum um draumaskólaumhverfið (kennslustofur og aðra aðstöðu) og hverju þeir vildu breyta ef þeir stjórnuðu skólanum í einn dag. Þá ræddu sumir hópar um samhengi einingafjölda og vinnuframlags í mismunandi áföngum. Líflegar umræður sköpuðust og nú hefst úrvinnsla allra þeirra fjölmörgu hugmynda sem komu fram.


Takk fyrir ykkar framlag!

zoom_out_map
zoom_out_map
zoom_out_map

Framsækni - Alúð - Fjölbreytileiki Framsækni - Alúð - Fjölbreytileiki

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter