Smore logo
remove_red_eye 193
page background

Fréttabréf Grenivíkurskóla

5. tbl. 5. árg. - maí 2024

FréttabréfGrenivíkurskóla5. tbl. 5. árg. - maí 2024

Kæra skólasamfélag Kæra skólasamfélag

zoom_out_map

Þá er síðasti mánuður þessa skólaárs runninn upp og óhætt að segja að heilmikið sé um að vera þar til skóla verður slitið þann 31. maí næskomandi kl. 15:00. Nú í upphafi mánaðar fer stór hluti unglingastigsins á Samfestinginn í Reykjavík, nemendur á yngsta stigi sjá leiksýningu ásamt nemendum leikskólans, unglingarnir fara á Samskóladag, og við fáum þar að auki góðar fræðsluheimsóknir.


Síðar í mánuðinum er svo komið að Runólfi, kveðjuhátíð 10. bekkinga, og í lok mánaðar ljúkum við skólaárinu með útivistardögum og skólaslitum.


Nemendur hafa einnig haft ýmislegt fyrir stafni síðustu vikur. Við héldum glæsilega lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar, þar sem okkar fulltrúar stóðu sig með mikilli prýði, og það sama má segja um okkar fólk í Skólahreysti sem fram fór á dögunum.


Við vonumst eftir sólríkum og mildum maí-mánuði og hlökkum til þessara síðustu vikna skólaársins!


Með kveðju úr skólanum,

Þorgeir Rúnar Finnsson

skólastjóri Grenivíkurskóla

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk

zoom_out_map

Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk var haldin í apríl, en nemendur höfðu æft sig reglulega í allan vetur undir dyggri leiðsögn Hólmfríðar Björnsdóttur. Þann 16. apríl fór fram heimakeppni í Grenivíkurskóla og stóðu nemendur sig allir frábærlega. Dómnefnd átti afar erfitt val fyrir höndum, en það voru þau Björg Guðrún Sigurbjörnsdóttir og Sindri Páll Ragnarsson sem voru valin til þess að vera fulltrúar skólans á lokahátíðinni.


Lokahátíðin var svo haldin með stæl í Grenivíkurskóla þann 23. apríl, en þangað mættu lesarar frá Grenivíkurskóla, Þelamerkurskóla, Hrafnagilsskóla, Árskógarskóla, Dalvíkurskóla og Grunnskóla Fjallabyggðar. Hátíðin var öll hin glæsilegasta og stóðu okkar fulltrúar sig með mikilli prýði.

Skólahreysti Skólahreysti

zoom_out_map

Þann 30. apríl síðastliðinn atti Grenivíkurskóli kappi við aðra skóla á Norðurlandi í Skólahreysti. Keppnin fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri og var mikil stemning meðal áhorfenda. Smári Signar, Kristjana Elín, Aníta og Tryggvi Hrafn tóku þátt fyrir hönd skólans, en Sigurður Arnfjörð og Móeiður Alma voru varamenn. Krakkarnir stóðu sig með mikilli prýði og lögðu sig svo sannarlega alla fram í keppninni.

Heilsueflandi skóli Heilsueflandi skóli

zoom_out_map

Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "mikilvægi maí". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.


Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.

Grænfáninn Grænfáninn

zoom_out_map

Landshlutafundur Grænfánans á Norðurlandi var haldinn í Stórutjarnaskóla þann 22. apríl sl., en þar voru á dagskrá fræðsluerindi og ýmislegt fleira. Þau Hilmar Mikael og Aníta sóttu fundinn fyrir hönd nemenda Grenivíkurskóla ásamt kennurunum Ingu Maríu og Eddu. Fundurinn var vel heppnaður, en þátttaka okkar var ekki síst í þeim tilgangi að blása meira lífi í Grænfánastarfið í skólanum. Stefnir skólinn að því að endurnýja fánann á næstu misserum.


Við höldum áfram að vekja athygli á fræðslupökkum sem Landvernd gefur út og nálgast má á vefsíðunni Menntun til sjálfbærni. Í þessum mánuði beinum við sjónum okkar að mat. Þó stundum mætti halda að það sé endalaust framboð af matvælum í heiminum er staðreyndin sú að matvælaframleiðsla er land- og auðlindafrek og við þurfum að hátta henni með þeim hætti að Jörðin standi undir lifnaðarháttum okkar.


Frekari upplýsingar og hugmyndir að ýmsum verkefnum má finna á hér.

Myndir úr skólastarfinu Myndir úr skólastarfinu

  • Stóra upplestrarkeppnin, heimakeppni (16. apríl) og lokahátíð (23. apríl)
  • Skólahreysti - 30. apríl

Matseðill Matseðill

open_in_new zoom_out_map

Á döfinni í maí Á döfinni í maí

  • 1. maí: Verkalýðsdagurinn - frí.
  • 7. maí: Samskóladagur í Þelamerkurskóla fyrir 8.-10. bekk.
  • 9. maí: Uppstigningardagur - frí.
  • 17. maí: Útskriftarmyndataka nemenda í 10. bekk.
  • 20. maí: Annar í hvítasunnu - frí.
  • 21. maí: Runólfur - kveðjuhátíð 10. bekkinga.
  • 23. - 28. maí: Útskriftarferð nemenda á unglingastigi.
  • 30. maí: Útivistardagur.
  • 31. maí: Útivistardagur. Skólaslit kl. 15:00.
zoom_out_map

Útgefandi: Grenivíkurskóli

Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla

Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is

Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is

Sími: 414-5413

Facebook: Grenivíkurskóli

Grenivíkurskóli
grenivikurskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter