Smore logo
remove_red_eye 255
page background

Jóla Þytur

Fréttabréf Þelamerkurskóla desember 2017

Jóla Þytur Fréttabréf Þelamerkurskóla desember 2017
zoom_out_map

Þytur í nýjum búningi

Heil og sæl foreldrar og forráðamenn nemenda Þelamerkurskóla,

Þytur, fréttabréf Þelamerkurskóla er kominn í nýjan búning og eftir áramót fær heimasíða skólans andlistupplyftingu.


Það er ótrúlegt til þess að vita að haustönnin sé á enda og að jólaleyfið sé handan við hornið.


Uppbrotsdagarnir á fimmtudag og föstudag í þessari viku hafa gengið vel. Jólaljósagangan og laufabrauðsgerðin heppnuðust vel og opnu stofurnar í dag gengu vonum framar. Allir fundu eitthvað við sitt hæfi og gátu haft bæði gagn og gaman af smiðjunum.


Myndin hérna til hliðar var einmitt tekin í einni opnu stofunni í morgun þar sem hægt var að fá neglurnar sínar lakkaðar og hárið greitt.

Á Facebook síðu skólans var líflegt í morgun - smelltu
zoom_out_map

Frá jólaljósadeginum

Á fimmtudag lýstu nemendur upp skógarjaðarinn ofan við skólann. Kertin lýstu upp langt fram eftir degi og glöddu þá sem áttu leið hjá.
zoom_out_map

Skólavinadagur

Jólaljósadagurinn er skólavinadagur. Þá fylgjast skólavinir að og kveikja saman á kertunum sínum. Hérna má sjá nokkra skólavini við kertin sín.
zoom_out_map

Jólasöngur á sal

Eríkur Stephensen hefur komið tvo morgna til okkar og stjórnað söng á sal. Við höfum æft jólalögin fyrir jólaballið á litlu jólunum. Guðlaugur kórstjóri með meiru spilar svo undir söng á sal á mánudaginn.
Smelltu hérna til að skoða myndir frá jólaljósadeginum

Fleiri uppbrotsdagarnir eftir helgina

Eftir helgina eru svo eftir þrír óvenjulegir skóladagar; smiðjudagur, skautadagur og svo litlu jólin. Í frétt á heimsíðu skólans er yfirlit yfir skipulag þessara daga. Fréttin er hérna fyrir neðan.


Ef foreldrar hafa tök á því að koma í skólann eru þeir hjartanlega velkomnir á litlu jólin okkar. Þeir geta komið t.d. í kirkjuferðina. Í kirkjunni syngur kórinn jólalög og 7. bekkingar lesa upp jólaguðspjallið. Þegar komið er heim í skóla er hægt að hlusta á marimbasveit skólans eða koma á jólaballið á litlu jólunum.

Uppbrotsdagar fyrir jól

Uppbrotsdagar fyrir jól

Uppbrotsdagar fyrir jól Fyrir jólin er hefð fyrir því að brjóta upp skólastarfið í Þelamerkurskóla. Í þessari frétt er yfirlit yfir þá daga.

launch thelamork.is
zoom_out_map

Góð sala á jólamarkaðnum

Við viljum þakka öllum sem komu á jólamarkaðinn okkar sem var í upphafi desember. Allt á markaðnum seldist upp og ágóðinn af honum varð 162 000 kr. sem rennur allur til Styrktasjóðs krabbameinssjúkra barna.

Skólastarf á nýrri önn

Skólastarfið á nýju ári hefst með viðtalsdegi 3. janúar. Í dag var opnað fyrir bókanir í viðtöl og eru foreldar hvattir til að velja sér viðtalstíma fyrir jól. Upplýsingar eru í tölvupósti frá umsjónarkennurum.


Kennt verður samkvæmt stundaskrá frá og með fimmtudeginum 4. janúar.

zoom_out_map

Jólakveðja

Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla viljum við þakka fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Við hlökkum til að starfa áfram með ykkur í nýju ári.


Með bestu jólakveðjum í skólanum,

Ingileif og Unnar

Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter