Smore logo
remove_red_eye 267
page background

Fréttamolar úr MS

29.04.2026

Fréttamolar úrMS29.04.2026

Gleðilegt sumar 🌞 Gleðilegt sumar 🌞

User uploaded image
zoom_out_map
...og takk fyrir ánægjulegan vetur. Það styttist í lok vorannar, um þrjár vikur eftir af kennslu og nemendur hvattir til að nýta tímann vel og sinna náminu af fullum krafti. Þannig verður uppskeran betri við annarlok.


Áður en vorönn lýkur er þó líka ýmislegt framundan, skuggakosningar framhaldsskólanna í dag, Landóvika í næstu viku og fardagur og dimmisjón útskriftarnema og svo brautskráning þann 30. maí.

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

User uploaded image
zoom_out_map

Miðvikudagur 29. apríl: Skuggakosningar í efnafræðistofunni (AÐA23) kl. 11-14.

Fimmtudagur 30. apríl: Matsdagur - dagskrá á msund.is

Föstudagur 1. maí: Verkalýðsdagurinn - frídagur

Vikan 4.-8. maí: Landóvika

Miðvikdagur 6. maí: Landóball í Gamla bíó

Fimmtudagur 14. maí: Uppstigningardagur - frídagur

Fimmtudagur 21. maí: Síðasti kennsludagur vorannar

Föstudagur 22. maí og þriðjudagur 26. maí: Matsdagar.

Miðvikudagur 27. maí: Lokaeinkunnir vorannar birtast í Innu kl. 20

Miðvikudagur 27. maí: Dimissjon útskriftarnema og 07 árgangs

Laugardagur 30. maí: Brautskráning nýstúdenta í Háskólabíó kl. 11:00

Kennslukönnun vorannar Kennslukönnun vorannar

Kennslukönnun vorannar er nú opin í Innu og verður opin til og með 10. maí. Að þessu sinni er kennslukönnun í eðlisfræði, ensku, félagsfræði, sögu, stærðfræði og í einstaka áföngum sem eru aðeins kenndir á vorönn. Endilega takið þátt!

Landó vika Landó vika

User uploaded image
zoom_out_map

Næsta vika 4.-8. maí er Landbúnaðarvika SMS. Þá stendur skólafélagið fyrir ýmsum viðburðum í skólanum og Landóballinu sem fram fer í Gamla bíó miðvikudaginn 6. maí. Dagskrá er væntanleg og miðasala hefst á næstu dögum og verður auglýst á Instagram Skólafélagsins og Skemmtinefndar SMS.

Umhverfisvika í MS Umhverfisvika í MS

User uploaded image
zoom_out_map

Umhverfisvika fór fram í MS dagana 20.-22. apríl. Vikan var skipulögð af umhverfisnefnd skólans en í henni sitja nemendur í Grænfánaáfanga sem Kristbjörg Árnadóttir umhverfisfræðikennari hefur umsjón með.


Í áfanganum kynnast nemendur umhverfisstjórnunarkerfi sem verkefnið Skólar á grænni græn byggir á og beita áhrifum sínum í átt að aukinni sjálfbærni innan skólans og nærsamfélagsins. Áfanginn er kenndur yfir allt skólaárið og þar fara nemendur í gegnum þau skref sem til þarf til að fá Grænfánann. Vinnan nær hámarki sínu í umhverfisviku að vori þar sem nemendur standa fyrir viðburðum tengdum umhverfismálum og með Grænfánaafhendingu.


Þann 22. apríl, sem jafnframt er Alþjóðadagur móður jarðar, afhenti Guðrún Schmidt hjá Landvernd skólanum Grænfánann í fimmta sinn. Nemendur drógu fánann að húni við mikinn fögnuð viðstaddra og gáfu svo samnemendum ís í boði Emmess í tilefni dagsins.


Í umhverfisvikunni voru nemendur duglegir að fara út og plokka rusl í nærumhverfi skólans. Það er mikilvægt að hugsa um umhverfið okkar alla daga ársins, bæði innan og utan skólans. Munum að umgengni lýsir innri manni! 💚

Grænfáninn í MS - greinargerð um Grænfánaverkefnið 25-26

Danskir gestir í MS Danskir gestir í MS

Á dögunum fengum við góða gesti í heimsókn frá Herlufsholm Skole og Gods. Skólinn er elsti og virtasti heimavistarskóli Danmerkur, stofnaður árið 1565, og samanstóð hópurinn af nemendum og kennurum sem mættu í dönskutíma hjá okkur í MS.


Nemendur í dönsku tóku frábærlega vel á móti gestunum. Gestirnir kynntu skólann sinn, daglegt líf á heimavistinni, auk tónlistar og íþrótta í Danmörku. Þá fengu nemendur okkar tækifæri til að smakka danskt rúgbrauð með lúxus lifrarkæfu og þorskahrognum, sem og vinsælt danskt lakkrísgúmmí. Stemningin var afar lífleg og stór hópur íslenskra nemenda tók þátt í „speed-dating“ samræðum þar sem dönsku og ensku var fléttað saman með mikilli gleði.

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Góður árangur í Fyrirtækjasmiðju Góður árangur í Fyrirtækjasmiðju

User uploaded image
zoom_out_map

Nemendur á 3. ári á hagfræði- stærðfræðilínu tóku þátt í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla á dögunum. Fjögur MS fyrirtæki komust áfram í úrslitin, en það voru Blær, Malek, Nordsea og Sjávardjásn. Tvö þessara fyrirtækja hlutu svo sérstök verðlaun í úrslitunum en Blær fékk verðlaun fyrir öflugasta sölustarfið og Sjávardjásn fyrir bestu hönnunina.


Frábær árangur hjá nemendum 👏👏

User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map
User uploaded image
zoom_out_map

Útskrift 30. maí Útskrift 30. maí

User uploaded image
zoom_out_map Show in original size

Mikilvægar dagsetningar fyrir nemendur í útskriftarfæri og nemendur á 3. ári:

  • Fimmtudagur 21. maí: Fardagur - síðasti skóladagurinn. Kveðja á sal kl. 11:15-12.
  • Miðvikudagur 27. maí: Dimissjon. Mæting í morgunmat í MS kl. 10. Leiðbeiningar varðandi hópaskiptingu væntanlegar.
  • Fimmtudagur 28. maí: Námsmatssýning kl. 11-12. Æfing fyrir útskrift kl. 12-13. Allt í MS.
  • Laugardagur 30. maí: Brautskráning í Háskólabíó. Athöfn hefst kl. 11. Nemendur mæta kl. 10.

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Menntaskólinn við Sund Msund
Menntaskólinn is using Smore to create beautiful newsletters
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter