Fréttamolar úr MS
29.04.2026
Gleðilegt sumar 🌞
Áður en vorönn lýkur er þó líka ýmislegt framundan, skuggakosningar framhaldsskólanna í dag, Landóvika í næstu viku og fardagur og dimmisjón útskriftarnema og svo brautskráning þann 30. maí.
Dagsetningar framundan
Miðvikudagur 29. apríl: Skuggakosningar í efnafræðistofunni (AÐA23) kl. 11-14.
Fimmtudagur 30. apríl: Matsdagur - dagskrá á msund.is
Föstudagur 1. maí: Verkalýðsdagurinn - frídagur
Vikan 4.-8. maí: Landóvika
Miðvikdagur 6. maí: Landóball í Gamla bíó
Fimmtudagur 14. maí: Uppstigningardagur - frídagur
Fimmtudagur 21. maí: Síðasti kennsludagur vorannar
Föstudagur 22. maí og þriðjudagur 26. maí: Matsdagar.
Miðvikudagur 27. maí: Lokaeinkunnir vorannar birtast í Innu kl. 20
Miðvikudagur 27. maí: Dimissjon útskriftarnema og 07 árgangs
Laugardagur 30. maí: Brautskráning nýstúdenta í Háskólabíó kl. 11:00
Kennslukönnun vorannar
Kennslukönnun vorannar er nú opin í Innu og verður opin til og með 10. maí. Að þessu sinni er kennslukönnun í eðlisfræði, ensku, félagsfræði, sögu, stærðfræði og í einstaka áföngum sem eru aðeins kenndir á vorönn. Endilega takið þátt!
Landó vika
Næsta vika 4.-8. maí er Landbúnaðarvika SMS. Þá stendur skólafélagið fyrir ýmsum viðburðum í skólanum og Landóballinu sem fram fer í Gamla bíó miðvikudaginn 6. maí. Dagskrá er væntanleg og miðasala hefst á næstu dögum og verður auglýst á Instagram Skólafélagsins og Skemmtinefndar SMS.
Umhverfisvika í MS
Umhverfisvika fór fram í MS dagana 20.-22. apríl. Vikan var skipulögð af umhverfisnefnd skólans en í henni sitja nemendur í Grænfánaáfanga sem Kristbjörg Árnadóttir umhverfisfræðikennari hefur umsjón með.
Í áfanganum kynnast nemendur umhverfisstjórnunarkerfi sem verkefnið Skólar á grænni græn byggir á og beita áhrifum sínum í átt að aukinni sjálfbærni innan skólans og nærsamfélagsins. Áfanginn er kenndur yfir allt skólaárið og þar fara nemendur í gegnum þau skref sem til þarf til að fá Grænfánann. Vinnan nær hámarki sínu í umhverfisviku að vori þar sem nemendur standa fyrir viðburðum tengdum umhverfismálum og með Grænfánaafhendingu.
Þann 22. apríl, sem jafnframt er Alþjóðadagur móður jarðar, afhenti Guðrún Schmidt hjá Landvernd skólanum Grænfánann í fimmta sinn. Nemendur drógu fánann að húni við mikinn fögnuð viðstaddra og gáfu svo samnemendum ís í boði Emmess í tilefni dagsins.
Í umhverfisvikunni voru nemendur duglegir að fara út og plokka rusl í nærumhverfi skólans. Það er mikilvægt að hugsa um umhverfið okkar alla daga ársins, bæði innan og utan skólans. Munum að umgengni lýsir innri manni! 💚
Danskir gestir í MS
Á dögunum fengum við góða gesti í heimsókn frá Herlufsholm Skole og Gods. Skólinn er elsti og virtasti heimavistarskóli Danmerkur, stofnaður árið 1565, og samanstóð hópurinn af nemendum og kennurum sem mættu í dönskutíma hjá okkur í MS.
Nemendur í dönsku tóku frábærlega vel á móti gestunum. Gestirnir kynntu skólann sinn, daglegt líf á heimavistinni, auk tónlistar og íþrótta í Danmörku. Þá fengu nemendur okkar tækifæri til að smakka danskt rúgbrauð með lúxus lifrarkæfu og þorskahrognum, sem og vinsælt danskt lakkrísgúmmí. Stemningin var afar lífleg og stór hópur íslenskra nemenda tók þátt í „speed-dating“ samræðum þar sem dönsku og ensku var fléttað saman með mikilli gleði.
Góður árangur í Fyrirtækjasmiðju
Nemendur á 3. ári á hagfræði- stærðfræðilínu tóku þátt í Fyrirtækjasmiðju Ungra frumkvöðla á dögunum. Fjögur MS fyrirtæki komust áfram í úrslitin, en það voru Blær, Malek, Nordsea og Sjávardjásn. Tvö þessara fyrirtækja hlutu svo sérstök verðlaun í úrslitunum en Blær fékk verðlaun fyrir öflugasta sölustarfið og Sjávardjásn fyrir bestu hönnunina.
Frábær árangur hjá nemendum 👏👏
Útskrift 30. maí
Mikilvægar dagsetningar fyrir nemendur í útskriftarfæri og nemendur á 3. ári:
- Fimmtudagur 21. maí: Fardagur - síðasti skóladagurinn. Kveðja á sal kl. 11:15-12.
- Miðvikudagur 27. maí: Dimissjon. Mæting í morgunmat í MS kl. 10. Leiðbeiningar varðandi hópaskiptingu væntanlegar.
- Fimmtudagur 28. maí: Námsmatssýning kl. 11-12. Æfing fyrir útskrift kl. 12-13. Allt í MS.
- Laugardagur 30. maí: Brautskráning í Háskólabíó. Athöfn hefst kl. 11. Nemendur mæta kl. 10.