Smore logo
remove_red_eye 797
page background
Logo

Tæknótíðindi

29. október 2024

Tæknótíðindi29. október 2024

Dagsetningar framundan Dagsetningar framundan

  • 30. otkóber - hrekkjavökuklúbbakvöld
  • 13. nóvember - miðvikudagur - skólaball (haldið með Borgó, FB, FÁ og FMOS)
  • 18. nóvember - mánudagur
    • Miðspannarmat birt
    • Kennslumat fyrir áfanga á önn og seinni spönn opnað
Á döfinni; viðburðir, stoðtímar, frídagar....

Skóladagatal Tækiskólans á PDF formi er aðgengilegt hér!

Halloweenklúbbakvöld 🎃 👻 Halloweenklúbbakvöld 🎃 👻

Á miðvikudaginn, 30. október, verður Hrekkjavaka á klúbbakvöldi. Klúbbakvöld eru sem fyrr segir frá 17:00-21:00 í Tækniskólanum á Háteigsvegi.  Stjórn ENIAC, sem hefur umsjón með klúbbakvöldum, hvetur öll til að mæta í búning og veitir verðlaun fyrir þá sem skara framúr. Verðlaun verða einnig veitt fyr¬ir skelfi¬leg¬asta graskerið í skelfikerakeppninni. Klúbbakvöld eru auglýst á Discord.   Leikfélagið Mars heldur nú vikulegar æfingar á klúbbakvöldum í Hátíðarsalnum á Háteigsvegi. Æfingar eru frá kl. 17:00-19:00. Nýliðar geta enn bæst við hópinn með því að mæta á staðinn, fylgjast með Discord-rás félagsins eða senda stjórn Mars skilaboð á Instagram.

Miðvikudaginn, 30. október, verður hrekkjavaka á klúbbakvöldi 👻 💀


Klúbbakvöld eru alla miðvikudaga (þ.e. þegar eru kennsludagar) kl. 17:00 - 21:00 og eru haldin í húsnæði Tækniskólans á Háteigsvegi.


Stjórn ENIAC, sem hefur umsjón með klúbbakvöldum, hvetur öll til að mæta í búningi 👹

og veitir verðlaun fyrir þau sem skara fram úr. Verðlaun verða einnig veitt fyrir skelfilegasta graskerið 🎃 í skelfikerakeppninni. Klúbbakvöld eru auglýst á Discord.

Slaufan, nýnemaball Tækniskólans gekk vel 👏👏 Slaufan, nýnemaball Tækniskólans gekk vel 👏👏

zoom_out_map

Nemendur Tækniskólans voru til fyrirmyndar á nýnemaballinu sem haldið var þann 23. okt. 🤩 Krakkarnir voru jákvæðir og skemmtilegir og hafði gæslan orð á því hvað þeir væru kurteisir 🥰


Einnig er gaman að segja frá því að foreldrar voru til staðar, á foreldraröltinu fyrir utan ballið, sem er mikilvægur liður í að halda utan um krakkana okkar. Takk kæru foreldrar 🙏


Ef það er eitthvað sem fór fram hjá okkur starfsfólki á ballinu eða sem betur mætti fara, má senda tölvupóst til Lilju Óskar, verkefnastjóra forvarna og félagslífs: lom@tskoli.is.


Næsta ball er miðvikudaginn 13. nóvember. Það er ekki venjan, að það sé svona stutt á milli dansleikja, en það er auðvitað vegna þess að nýnemaballinu í september var frestað.

Bleikur dagur Bleikur dagur

Takk fyrir þátttöku í bleika deginum!

Kennslumat fyrri spannar - niðurstöður Kennslumat fyrri spannar - niðurstöður

Takk fyrir góða þátttöku í kennslumati kæru nemendur 🙏 Við náðum 81% svarhlufalli sem er frábær árangur 👏👏


Kennslumat er lagt fyrir 4 sinnum á skólaári, einu sinni á hverri spönn.


Unnið er með úrtak og því ekki allir áfangar eða kennarar í kennslumati hverju sinni. Ef nemendur eða foreldrar vilja koma einhverju á framfæri varðandi áfanga (aðbúnað, kennslu eða annað) á öðrum tíma er alltaf hægt að senda inn í gegnum ábendingakerfið á vefsíðu skólans.

Gæðamarkmið - mæld í kennslumati

Hér fyrir neðan má svo sjá niðurstöður kennslumats gagnvart þeim lykilspurningum sem nýttar eru til að meta árangur skólans gagnvart gæðamælikvörðum. Í báðum mælikvörðunum er miðað við 80% ánægju nemenda (sammála + mjög sammála) og er því óhætt að segja að þetta sé góður árangur.

Frekari upplýsingar um niðurstöður kennslumats á fyrri spönn haustannar

Njótið vikunnar 🥰 Njótið vikunnar 🥰

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins
tskoli.is
Loading indicator

close

Created with

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter