Fréttabréf Grenivíkurskóla
7. tbl. 6. árg. - september 2025
Kæra skólasamfélag
Þá höldum við galvösk inn í nýtt skólaár, eftir sumarfrí sem var vonandi sem flestum gæfuríkt og skemmtilegt.
Ég vil byrja á að bjóða þær Ellen Sif Skúladóttur, Söruh Skindbjerg Larsen og Emiliu Bela velkomnar til starfa við Grenivíkurskóla. Ellen kemur inn sem umsjónarkennari á miðstigi, Sarah verður umsjónarkennari á yngsta stigi og Emilia verður stuðningsfulltrúi á yngsta stigi. Við tökum vel á móti þeim og hlökkum til að starfa með þeim í vetur! Þær Gabríela Sól Magnúsdóttir og Inga Rakel Ísaksdóttir verða í fæðingarorlofi lungann úr skólaárinu, en koma að öllum líkindum eitthvað inn á vordögum.
Líkt og undanfarin ár verða í grunninn þrír námshópar í skólanum í vetur, einn á hverju stigi (yngsta stig, miðstig og unglingastig).
- 1.-4. bekkur er saman í námshóp. Í kennarateymi þess hóps eru Steinunn Adolfsdóttir, Sarah Skindbjerg Larsen og Kolbrún Hlín Stefánsdóttir, og þá verður Emilia Bela stuðningsfulltrúi í hópnum. Steinunn og Sarah eru umsjónarkennarar.
- 5.-7. bekkur er saman í námshóp. Í kennarateymi þess hóps eru Hólmfríður Björnsdóttir og Ellen Sif Skúladóttir, báðar umsjónarkennarar.
- 8.-10. bekkur er saman í námshóp. Í kennarateymi þess hóps eru Edda Björnsdóttir, Inga María Sigurbjörnsdóttir og Oddný Jóhannsdóttir. Umsjónarkennarar eru Edda og Inga María.
Guðrún Árnadóttir, kennari, og Arnheiður Björk Harðardóttir, iðjuþjálfi, ásamt skólastjóra, mynda svo stuðningsteymi sem starfar þvert á námshópana þrjá.
Kolbrún Hlín Stefánsdóttir sér um hand- og myndmenntarkennslu, Hólmfríður Björnsdóttir kennir
smíðar, Björn Andri Ingólfsson verður með íþróttir og Steinunn Adolfsdóttir mun sjá um sundkennslu.
Þótt hóparnir séu í grunninn til með þessum hætti er ekki þar með sagt að tiltekinn hópur sé alltaf allur saman í kennslustundum. Nemendum er skipt í smærri hópa í t.d. sundi, list- og verkgreinum og íþróttum. Þá hefur hvert kennarateymi sveigjanleika til að skipuleggja hópaskiptingu í bóklegum greinum eftir þörfum nemenda og viðfangsefnum hverju sinni. Áfram verður áhersla á einstaklingsmiðað nám og er það trú okkar að teymiskennslan hjálpi okkur þar með auknum sveigjanleika og sameiginlegri ábyrgð á nemendum.
Skipulag skóladagsins verður áfram með sama hætti. Við hefjum flesta daga á lestri og hreyfistund og höldum svo í morgunmat kl. 9:00. Við taka kennslulotur til kl. 14:00, en þá lýkur skóla hjá öllum nemendum, alla daga. Þá höfum við opnað fyrir Frístund eftir nokkurra ára hlé, en hún er opin nemendum í 1.-4. bekk frá kl. 14:00-16:00 alla virka daga nema föstudaga. Emilia Bela er umsjónarmaður Frístundar í vetur.
Við óskum hér eftir sem hingað til eftir góðu samstarfi við heimili nemenda, enda er það lykillinn að velferð, vellíðan og árangri nemenda skólans. Óhjákvæmilegt er þó að stundum komi eitthvað upp á í dagsins önn og viljum við hvetja foreldra og forráðamenn til að hafa samband við skólann ef upp koma atvik eða ef spurningar vakna varðandi skólastarfið.
Megi gleði, samvinna og góð samskipti einkenna skólastarfið í vetur!
Með kveðju úr skólanum,
Þorgeir Rúnar Finnsson
skólastjóri Grenivíkurskóla
Skólatöskugjafir
Líkt og undanfarin ár færir Grýtubakkahreppur nemendum í 1. bekk skólatösku að gjöf við upphaf skólagöngu þeirra. Í ár hefja sjö nemendur í 1. bekk skólagöngu sína, þau Hrefna Karítas, Klara Eyfjörð, Lada Kasich, Nikodem Marik, Rada Kasich, Zofia Szurant og Þórður Geir. Við óskum þeim velfarnaðar í leik og starfi í skólanum á næstu árum og vonum að skólatöskurnar sem þau völdu sér komi til með að reynast þeim vel!
Gönguferð í Gil
Í fyrstu lotu í valgreinum þetta haustið stóð nemendum á unglingastigi til boða svokallað útivistarval. Sú valgrein snýst í raun bara um eitt: Gönguferð í Gil þar sem átti að gista í eina nótt. 11 nemendur, ásamt þremur starfsmönnum, völdu að ganga hátt í 15 kílómetra leið um Grenjár- og Trölladal og í Gil, þar sem var mikil gleði og gaman. Það var grillað, spilað og leikið sér og þá gerðu nokkrir nemendur sér lítið fyrir og skelltu sér í léttan sundsprett í ánni! Ferðin tókst með miklum ágætum og það voru þreyttir en glaðir nemendur sem skiluðu sér til baka á Grenivík um hádegisbil þann 27. ágúst.
Nemendur og starsfólk vilja koma á framfæri sérstökum þökkum til allra þeirra sem aðstoðuðu við ferðina með skutli, leiðsögn og almennum hjálplegheitum, við metum það mikils!
Grænfáninn
Í grænfánadálki fréttabréfsins í vetur verður sjónum meðal annars beint að hinum ýmsu hugtökum sem varða umhverfisnefnd.
Hugtak septembermánaðar er framandi tegung. Þegar lífvera er flutt af mannavöldum inn á nýtt svæði er hún kölluð framandi tegund og ef hún skaðar lífríkið sem þar er fyrir þá er hún orðin framandi ágeng lífvera.
Hér má nálgast frekari upplýsingar um framandi tegundir.
Heilsueflandi skóli
Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "sjálfshjálp í september". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.
Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.
Myndir úr skólastarfinu
Á döfinni í september
- 8. september: Dagur læsis.
- 9. september: Bekkjarfundur að hausti - yngsta stig.
- 10. september: Bekkjarfundur að hausti - miðstig.
- 11. september: Bekkjarfundur að hausti - unglingastig.
- 12. september: Danskennsla hefst.
- 16. september: Dagur íslenskrar náttúru.
- 23. september: Samskóladagur í Stórutjarnaskóla fyrir 8.-10. bekk.
- 24. september: Samskóladagur í Grenivíkurskóla fyrir 5.-7. bekk.
- 26. september: Starfsdagur. Frí hjá nemendum.
Matseðill
Útgefandi: Grenivíkurskóli
Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla
Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is
Sími: 414-5413
Facebook: Grenivíkurskóli