Fréttabréf Flóaskóla
janúar 2026
Kæra skólasamfélag
Gleðilegt ár og kærar þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Haustönn þessa skólaárs er liðin og var hún að venju viðburðarrík. Nemendur fengust við fjölmörg ólík viðfangsefni undir handleiðslu starfsfólks. Unnið var með samspil hefðbundinna daga og uppbrotsdaga enda er slíkt mikilvægt í dagsins önn og skapar góða heild í skólastarfinu.
Nýtt ár hefst með þemaverkefni út frá sköpun sem er einn af sex grunnþáttum menntunar. Sköpun byggist á forvitni, áskorun og leit að lausn með ólíkum aðferðum hvers og eins. Verkefnum þessa þema er ætlað að efla nemendur í að njóta þess að skapa og uppgötva, örva forvitni og áhuga og virkja ímyndunarafl.
Í þemanu vinnur yngsta stig með íslenska þjóðhætti og landnámið. Þar beina þau sjónum að fjölskyldum, fatnaði, atvinnu, gömlu mánuðunum, torfbæjunum og ýmsum fornum hlutum, sverðum, skjöldum, höfuðfötum og fleiru.
Miðstigið vinnur með söguna í víðum skilningi. Hver nemendahópur dregur einn áratug á tímabilinu 1900–2025 sjónum er beint að því hvernig lífið var þessum áratug, upplýsingum er safnað um menningu, samfélag og atburði og efnið sett fram á skýran og skapandi hátt.Elsta stig setur upp leikrit sem byggt er á Næturvaktinni en að venju er staðfært og tengt við nærsamfélagið. Nemendur hafa þegar skipt sér upp í hin ýmsum verkefni tengd leikritinu og sýningu þess. Stór hópur stígur á svið og leikur í verkinu. En það er í mörg horn að líta, leikmynd, búningar og leikmunir, hljóð og ljós og markaðsmál. Auk þessa verða ýmis skapandi verkefni í gangi á þematímabilinu. Sýningar verða svo kringum mánaðarmót febrúar - mars.
En þetta er bara byrjunin, við lítum með tilhlökkun til komandi mánaða sem bíða okkar með fjölbreyttum viðfangsefnum og ýmsum nýjum áskorunum.
Hlökkum til samstarfs og samveru á nýju ári
Bestu kveðjur úr Flóaskóla
Þórunn Jónasdóttir
Ný gjaldskrá tók gildi frá 1.1.2026 fyrir vistun í frístund
Umferðargetraun
Samfélagslögreglan á Suðurlandi kom í 5. bekk fyrir jólin þar var kynning á samskiptum á netinu og umferðarfræðsla. Síðan var lögð fyrir umferðargetraun með verðlaunum. Dregið var úr innsendum svörum. Ásdís Una var ein þeirra heppnu, hún fékk gefins bók sem henni var færð rétt fyrir jólin.
Viðburðir á aðventu
Nemendur skólans tóku margir þátt í aðventuhátíð sem haldin var í Flóahreppi. Skólakórarnir okkar mættu fyrstir á svið og heilluðu alla áheyrendur með yndislegum söng og fallegri framkomu. Víða mátti sjá tár á hvarmi því hvað er yndislegra en tærar barnaraddir sem hljóma í söng 💖. Svo stigu á stokk fimm dömur af miðstigi og dönsuðu af stakri snilld 🤩. Við áttum líka nemendur sem komu fram undir merkjum Tónlistarskóla Árnessýslu og léku á hljóðfærin sín af miklu listfengi. Sannarlega dýrmætt fyrir okkur að sjá hversu margir nemendur sinna þessum listgreinum hjá okkur. Svo þegar dagskráratriðum á sviði lauk tók kakóbarinn við, þar stóðu nemendur í 10. bekk vaktina. Það er dýrmætt fyrir skólastarfið að sjá nemendur okkar blómstra í viðburðum sem haldnir eru í sveitarfélaginu og það tengir líka skólann og starfsemi hans vel inn í nærsamfélagið.
Um miðja aðventu sýndu nemendur í 1.-7. bekk helgileik og jólaleikrit, viðburður sem alltaf er jafn hátíðlegur og er í hugum margra ómissandi í aðdraganda jóla.
Foreldra- og nemendasamtöl 10.2. næstkomandi, takið daginn frá
Hvað er Matsferill?
Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem dregur upp heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum hvers nemanda reglulega yfir skólagönguna. Þetta er stafrænt viðmót, lögð eru fyrir próf og niðurstöður eru birtar bæði fyrir einstaklinga en einnig fyrir hvern skóla og landið í heild. Þannig munu nemendur, forsjáraðilar og skólar fá meiri og betri upplýsingar um stöðu og framvindu í námi og íslenskt skólakerfi hafa greiðari aðgang að vönduðum mælingum. Niðurstöður mælinganna eiga að auðvelda skólanum að fylgjast með hverjum nemanda svo hægt sé að veita viðeigandi kennslu og stuðning. Þar sem upplýsingar úr Matsferli eru lika aðgengilegar á landsvísu þá eiga þær einnig að gera skólayfirvöldum bæði í sveitarfélögum og á alþingi kleift að greina mögulegar áskoranir í skólakerfinu og því ætti að vera skýrara hvort og hvar þarf að ráðast í nauðsynlegar umbætur.
Samræmd stöðu og framvindupróf Matsferils
Samræmd stöðu- og framvindupróf Matsferils í lesskilningi og stærðfræði verða lögð fyrir nemendur allra grunnskóla landsins á tímabilinu 2.-27. mars. Skólum er skylt að leggja prófin fyrir nemendur í 4., 6. og 9. bekk. En hverjum skóla í sjálfsvald sett að leggja prófin fyrir 5., 7., 8. og 10. bekk. Í Flóaskóla hefur verið ákveðið að leggja prófin fyrir alla nemendur í 4.-10.bekk.