Fréttabréf Flóaskóla
mars 2026
Kæra skólasamfélag
Ég vil byrja á að þakka kærlega fyrir mjög góða mætingu í viðtölin í febrúar, það er dýrmætt fyrir skólann að eiga í góðu samstarfi við foreldra og forráðamenn nemenda. Það var ánægjulegt að finna að almennt virðist ríkja ánægja með skólastarfið og nám barnanna.
Í marsmánuði fá listgreinar mikið rými í skólastarfinu okkar. Íþróttirnar eiga svo sinn sess, bæði skíði og skáklistin. Námsmat í formi Matsferilsprófa verður einnig fyrirferðarmikið í skólastarfinu fram til páska.
Elsta stig verður með sýningar 10. mars næstkomandi á leikverki sem byggir á sjónvarpsþáttunum Næturvaktinni. Miðstig skólans sýnir svo sitt leikverk á fimmtudegi fyrir páskaleyfi, 26. mars. Sú sýning byggir á söngleiknum Mamma Mia. Mikil metnaður er í undirbúningi sýninganna og stefnir allt í að þær verði hinar glæsilegustu.
Við tökum þátt í undankeppni fyrir Söngkeppni Samfés á Suðurlandi. Fyrst verður valið atriði frá okkur í Flóaskóla þann 5. mars, til að senda í Suðurlandskeppnina. Það atriði keppir síðan fyrir hönd skólans í Suðurlandskeppninni þann 20. mars á Flúðum. Miðstigskórinn okkar er líka í skemmtilegu samstarfi við Hvolsskóla og verða sameiginlegir tónleikar í Skálholti 15. apríl.
Nánari upplýsingar um þessa viðburði alla eru hér fyrir neðan.
Matsferilspróf verða lögð fyrir á tímabilinu 2.-27.mars, bæði lesskilnings og stærðfræðipróf. Lögð verða fyrir próf í 4.-10. bekk. Matsferill er nýtt námsmatskerfi sem ætlað er að gefa heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda reglulega yfir skólagönguna. Í síðustu viku var sendur heim póstur til allra foreldra / forráðamanna með nánari upplýsingum um prófin og fyrirlögn þeirra.
Ný vatnsvél er komin í mötuneytið í Þjórsárveri og þangað sækja allir sér vatn. Tenging fyrir hitaborðið hefur verið færð til og borðið þar með, þannig að hægt er að ganga beggja vegna við borðið. Þetta ætti að bæta aðgengi og auðvelda umgang um matsalinn.
bestu kveðjur úr Flóaskóla
Þórunn Jónasdóttir
Söngkeppni Samfés á Suðurlandi
Undankeppni í Flóaskóla fyrir Söngkeppni Samfés á Suðurlandi er framundan 5. mars næstkomandi. Átta nemendur af elsta stigi hafa verið í valfagi hjá Hafdís Gígju kennara sem undirbýr þau fyrir þátttökuna og verða þau alls með 10 atriði. Undankeppnin fer fram í Þjórsárveri kl 18 og dómnefnd velur hvaða atriði verður fulltrúi Flóaskóla í keppninni á Suðurlandi en hún fer fram á Flúðum 20. mars næstkomandi. Þar keppa fulltrúar skóla á Suðurlandi og þrjú atriði verða þar valin til að taka þátt í úrslitakeppni Samfés sem haldin verður síðar í vor, en þar koma saman fulltrúar nemenda af öllu landinu. Það er ánægjulegt að fylgjast með hvað þessu verkefni hefur vaxið fiskur um hrygg. Fyrir ári síðan var þetta verkefni endurvakið í samstarfi Félagsmiðstöðvarinnar Zone og Flóaskóla, þá tóku þrír nemendur þátt í verkefninu og sýndu fjögur atriði. Það verður spennandi að fylgjast með þessu verkefni vaxa og dafna.
Næturvaktin einþáttungur sýndur af elsta stigi Flóaskóla
Næturvaktin er byggð á íslensku sjónvarpsþáttunum Næturvaktinni eftir Ragnar Bragason sem sýndir voru á Stöð tvö 2007. Sögusviðið þáttanna er lítil bensínstöð sem opin er allan sólarhringinn. Þar ræður ríkjum vaktstjórinn Georg Bjarnfreðarson. Undirmaður hans er Ólafur Ragnar, starfsmaður á plani. Nýráðinn starfsmaður í þjálfun er uppgjafa nemi, Daníel. Leikritið er staðfært og bensínstöðin sem er sögusvið leiksýningarinnar er í Flóahreppi, byggð við nýju Ölfusárbrúna.
Höfundur handrits og leikgerðar er Hallfríður Ósk Aðalsteinsdóttir deildarstjóri og leikstjóri er Hjálmar Benónýsson íslenskukennari. Leikritið hefur verið unnið í þema á elsta stigi. Hver nemandi á stiginu á sitt hlutverk í uppsetningunni, sem leikarar, sviðsfólk, hvíslarar, tækni- og ljósameistarar, sviðsmyndahönnuðir, leikskrárgerðarfólk, förðunarmeistarar og búningagerðarfólk.
Undirbúningur sýningarinnar hefur staðið yfir frá því byrjun janúar og hafa nemendur unnið af kappi að uppsetningu og öllum undirbúningi. Sýningar verða 10. mars kl 17:30 og 19:30. Miðaverð er 1.500 kr og sjoppa verður á staðnum. Allur ágóði rennur í sjóð sem nýttur verður upp í skíðaferð elsta stigs siðar í mánuðinum. Við hvetjum alla til að mæta á þessa frábæru sýningu, eiga skemmtilega kvöldstund og styrkja unglingana okkar.
Ullarvinnsla í textíl
Frá áramótum hefur afar skemmtilegt verkefni verið í gangi í textílkennslunni. Snædís textílkennari sem er mikil áhugakona um ull, ullarvinnslu og ullarafurðir hafði frumkvæði af því að fara með alla nemendur í 1.-7. bekk í heimsóknir í ullarvinnsluna í gömlu Þingborg. Þar hittu þau Margréti Jónsdóttur sem kynnti húsnæðið fyrir þeim og sýndi þeim ull og ullarvinnslu. Nemendur fræddust um íslensku sauðkindina, feldgerðir og íslensku sauðalitina. Miðstigs nemendur unnu síðan þæfingarverkefni með Margréti.
Í febrúar var svo fenginn að láni tóvinnukassi frá handiðnaðarsambandinu sem innihélt 10 kamba og 10 halasnældur í barnastærðum. Nemendur fengu því tækifæri til þess að prófa að spinna sitt eigið band. Þau lærðu að raða ull í kamb, að kemba ullina og loks að spinna hana. Nemendur voru mjög áhugasamir um vinnubrögðin og verkefnin tengd þessu.
Samstarf Flóaskóla og Hvolsskóla
Söngurinn ómaði í Þjórsárveri 17. febrúar síðastliðinn þegar miðstigskórinn okkar fékk miðsstigshóp Skólakórs Hvolsskóla í heimsókn. Þetta voru í heildina um 65 börn, afar vel heppnuð samvera. Hana ætlum við að endurtaka eftir páskana þegar miðstigskórinn okkar fer í Hvolskóla og hittir kórinn þar. Síðan verða kórarnir með sameiginlega tónleika í Skálholtskirkju miðvikudaginn 15. apríl kl 17:00.
Það var kórstjórinn okkar hún Eyrún sem stofnaði til þessa samstarfs við Ingibjörgu Erlingsdóttur kórstjóra Hvolsskóla en þar hefur verið blómlegt kórastarf undanfarin ár. Það er mjög dýrmætt fyrir okkar unga kór að tengjast öðrum kórum á svæðinu. Það gefur kórmeðlimum tækifæri til að eflast enn frekar og skapar vettvang til aukins þroska í kórstarfinu.
Skákáhugi í Flóaskóla og skákmót
Mikill skákáhugi er í Flóaskóla og nýta margir hverja lausa stund til að tefla. Við erum aðeins að bæta búnaðinn okkar, keyptum 6 skákklukkur nýlega og þurfum að kaupa inn fleiri ný skáksett. Þá höfum við rætt að bjóða upp á skáktíma sem hluta af vali nemenda, líkt og kórastarfið okkar er.
Þriðjudag 3. mars er Suðurlandsmót grunnskóla í skák haldið á Flúðum.í samstarfi við Skáksamband Íslands. Teflt er í tveimur flokkum. Annars fyrir 1.-7. bekk og hins vegar fyrir 8.-10. bekk og tefla 4 - 5 í hverri sveit.
Við gáfum nemendum kost á að taka þátt í þessu verkefni og skemmst er frá að segja að hátt í 40 nemendur sýndu þessu mikinn áhuga. Síðan var haldinn æfing þar sem allir fengu upplýsingar um helstu atriði sem svona mót felur í sér; skipulag, teflt með klukku og fleira sem fylgir svona stóru móti. Á föstudag enduðum við svo á þeirri niðurstöðu að átta skáksveitir af öllum stigum skólans taka þátt í mótinu. Þrjár sveitir af elsta stigi og fimm blandaðar sveitir úr 1.-7. bekk.
Mamma Mia
Mikill metnaður og vinna er lögð í undirbúning bæði hjá nemendum og starfsmönnum sem koma að verkefninu og nemendur eru mjög áhugasamir.
Leikritið verður sýnt seinnipart dags fimmtudaginn 26. mars næstkomandi. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og njóta með okkur.
Skíðaferð elsta stigs
Elsta stig skólans stefnir á þriggja daga skíðaferð norður í land á skíðasvæði Tindastóls við Sauðárkrók um miðjan mars. Skíðasvæðið gefur kost á fjölbreyttri útivist og hreyfingu, hvort sem er á skíðabrettum eða skíðum. Ferðin er ekki síður mikilvægt tækifæri til félagseflingar hópsins. Ferðin er samstarfsverkefni Félagsmiðstöðvarinnar Zone og Flóaskóla.